Hamar/Þór upp í efstu deild á meðan Aþena og KR fara í umspil Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 2. apríl 2024 21:15 Sæti í Subway-deild kvenna fagnað. Karfan.is Hamar/Þór tryggði sér í kvöld sæti í Subway-deild kvenna á næstu leiktíð með sigri á Ármanni. Aþena og KR mættust í leik sem hefði getað skilað sigurliðinu upp hefði Hamar/Þór tapað sínum leik. Bæði lið fara nú í umspil um sæti í Subway-deildinni ásamt Tindastól og Snæfelli.
Gestirnir frá Hveragerði og Þorlákshöfn vissu að sigur myndi skila liðinu upp í deild þeirra estu. Segja má að sigurinn hafi aldrei verið í hættu þrátt fyrir áhlaup heimaliðsins í þriðja leikhluta. Lokatölur 72-82 og Hamar/Þór komið upp. Aniya Thomas fór fyrir sigurliðinu en hún skoraði 24 stig, gaf 7 stoðsendingar og tók 6 fráköst. Jóhanna Ágústsdóttir kom þar á eftir með 18 stig. Í liði Ármanns var Jónína Karlsdóttir stigahæst með 22 stig ásamt því að taka 6 fráköst og gefa 4 stoðsendingar. Úr leik Aþenu og KR.Vísir/Hulda Margrét Aþena tók á móti KR í leik sem hefði getað skilað öðru hvoru liðinu upp um deild. Fór það svo að Aþena vann fjögurra stiga sigur, 61-57, og endar í 2. sæti. Sianni Martin var stigahæst í liði Aþenu með 21 stig á meðan Asa Wolfram skoraði 17 og tók 6 fráköst. Í liði KR var Perla Jóhannsdóttir stigahæst með 15 stig, 5 stoðsendingar og 4 fráköst. KR endar sæti neðar og bæði lið fara því í umspil um sæti í Subway-deildinni. Þar verða einnig Tindastóll sem endaði í 4. sæti 1. deildar og Snæfell sem endaði næstneðst í Subway-deildinni.
Körfubolti Subway-deild kvenna Hamar Þór Þorlákshöfn Aþena Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti 36 ára fyrrum NFL-stjarna látin Sport Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Fleiri fréttir Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Sjá meira