Illa fengin dekk uppspretta dómsmáls Jón Þór Stefánsson skrifar 22. mars 2024 15:13 Dómurinn er á þeirri skoðun að manninum hefði átt að vera ljóst að dekkin væru þýfi. Vísir/Vilhelm Karlmaður hlaut í vikunni sextíu daga fangelsisdóm, skilorðsbundna til tveggja ára, í Héraðsdómi Vesturlands vegna dekkja.
Maðurinn var ákærður fyrir hylmingu. Honum var gefið að sök að hafa um einhvern tíma, á tímabilinu frá fjórða febrúar til og með fyrsta mars í fyrra, hafa á heimili sínu tvo dekkjaganga með álfelgum. Í ákæru segir að manninum hafi vitað, eða hafi átt að vera ljóst að dekkjagangarnir væru þýfi. Hann hafi þar af leiðandi haldið dekkjunum ólöglega frá eiganda þeirra, en þeim hafði verið stolið þegar þau voru utandyra á ótilgreindum stað skömmu áður. Maðurinn mætti ekki í þingfestingu málsins sem fór fram fyrr í þessum mánuði. Fjarvera hans var metin að jöfnu við játningu, en í dómnum segir að sú afstaða sé ekki í bága við gögn málsins. Brotið telst því sannað og maðurinn var því sakfelldur. Hann hafði ekki hlotið dóm áður, en líkt og áður segir var hann dæmdur í sextíu daga skilorðsbundið fangelsi.
Dómsmál Mest lesið Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Innlent Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Innlent Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Innlent Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Innlent 33 ára sósíalisti hafði betur gegn Cuomo í New York Erlent Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Innlent Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Innlent Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Innlent Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Innlent Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Innlent Fleiri fréttir Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Meirihluti vill stöðva málþóf á Alþingi Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Verður nýr skólameistari á Húsavík Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Slagsmál á hóteli í miðborginni Margir í vandræðum vegna of skyggðra rúðna Tillögur um skattalækkanir felldar: Segir ótrúlegt að hlusta á rök „Skattfylkingarinnar“ Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Reiður Trump, fiskeldisáform í Eyjafirði og fjölbragðaglíma Efla samstarf Háskóla Íslands og Íslenskrar erfðagreiningar Vilja bjóða út eftirlit en meirihlutanum líst ekkert á það Stuðningur við veiðigjaldafrumvarpið dregst saman Ekki um sama þvott að ræða í Björg og Fönn Páll skipstjóri krefur Ríkisútvarpið um milljónir króna „Þetta rugl í Kastljósi í gær af hálfu forsætisráðherra er skammarlegt“ Sjá meira