Hver mun stöðva blóðbaðið sem flæðir um Palestínu? Katrín Harðardóttir skrifar 2. mars 2024 11:30 Í meira en sjö og hálfan áratug hefur palestínska þjóðin grátið. Á hverjum degi eykst neyð hennar. Hún grét eftir fyrstu hörmungarnar árið 1948, eftir áfallið árið 1967, og hún hefur grátið vegna landflótta og þjáninga sem hafa fylgt henni fram að hörmungunum nú í október á síðasta ári. Myndir af eyðileggingu og ógæfu birtast af borgum, þorpum og flóttabúðum í Palestínu. Og ekki aðeins frá Gaza-svæðinu. Allur heimurinn varð vitni að grímulausum brotum ísraelska hernámsliðsins, árásum ísraelskra sérsveita á Ibn Sina-sjúkrahúsið í Jenín, undir því yfirskini að handtaka eftirlýsta einstaklinga, sem leiddi til píslarvættisdauða þriggja palestínskra manna. Í aðdraganda þessa skotmarks var fjöldi morða, endurteknar árásir landnema á palestínska borgara og eignir þeirra í þorpum og borgum á Vesturbakkanum. Hernám Ísraela beinist að öllu palestínsku og þeir þreytast ekki á að finna nýjar leiðir til að seðja drápshungrið. Ástæður innrása og hroka Ísraelshers er ekki þær sem haldið er fram, að berjast gegn Hamas og hinu íslamska Jihad. Svæðin sem herinn ræðst inn á eru ekki á valdi Hamas-hreyfingarinnar. Grimmd þessara árása staðfestir blóðugar og yfirvegaðar áætlanir öfgafullra ísraelskra stjórnvalda, sem miða að því að þrýsta á Palestínumenn til að yfirgefa heimaland sitt, og eftir meira en fjóra mánuði tekur dauðinn í borgum og búðum á Gaza-svæðinu á sig sífellt hræðilegri og skelfilegri myndir. Sprengt er með flugvélum og skriðdrekum til að koma í veg fyrir að matur og lyf berist til barna og kvenna, ráðist er inn á sjúkrahús og moskur og kirkjur jafnaðar við jörðu. Jafnvel grafir fara ekki varhluta af offorsi hernámsliðsins. Ég veit ekki hver réttlætingin fyrir því er. Með því að hvetja hlutlaus alþjóðasamtök til að réttlæta að Gaza-svæðið verði yfirgefið og einoka Palestínumenn enn frekar, getur Ísrael haldið áfram þjóðarmorðinu í Palestínu, án ábyrgðar eða eftirlits, með stuðningi Bandaríkjamanna, Breta og Þjóðverja. Það er mikil ógæfa að leiðtogar heimsins kenni Palestínumönnum um hvernig komið er, í leit þeirra að frelsi frá óréttlætinu, og réttlæti frekar þetta fjöldamorð hernámsins á palestínskum börnum. Þeir virða heldur ekki vilja þjóða sinna til að styðja Palestínu. Í mörgum höfuðborgum Evrópu, sérstaklega þeim löndum þar sem ríkisstjórnir styðja yfirgang Ísraels, eru haldnar mótmælagöngur þar sem krafist er vopnahlés og þess að þjóðarmorðið sé stöðvað, en þessar ríkisstjórnir skella skollaeyrum við og kjósa að líta undan þegar kemur að Gaza. Og þegar þessir blóðugu, sársaukafullu atburðir tengjast Ísraelum, er jöfnunni snúið á hvolf. Dagurinn sem hernámsliðið staðhæfði að tólf starfsmenn UNRWA hafi tekið þátt í atburðunum 7. október flýttu margir leiðtogar heimsins sér að votta Ísrael samúð sína með því að hætta aðstoð við UNRWA. Leiðtogar heimsins gleyma ályktun alþjóðastofnunar Sameinuðu þjóðanna nr. 302. Þessi ályktun var gefin út af allsherjarþinginu, við lok Palestínustríðsins sem stóð frá 1947-49, og húnefnist/verður efndþegar íbúar Palestínu eiga rétt á að snúa aftur til heimalands síns. Alþjóðasamfélagið, sem hefur þagað í meira en sjö og hálfan áratug vegna þeirra hörmunga sem hafa dunið yfir palestínsku þjóðinni, verður að uppfylla skyldur sínar gagnvart UNRWA og finna lausn sem bindur enda á þjáningarnar með því að stofna sjálfstætt ríki með Jerúsalem sem höfuðborg og endurkomu palestínskra flóttamanna til borga sinna og þorpa. Einnig hafa leiðtogar heimsins ekki rétt á að víkja sér undan skyldum ríkisstjórna sinna, þar sem þjónusta UNRWA nær til 75% palestínsku þjóðarinnar, og auðvitað eru þetta flóttamenn, hverrar afar og ömmur, feður og mæður fluttu frá þorpum og borgum í Palestínu. Hinn bitri veruleiki sem fólk á Gaza býr við er langt umfram það sem manneskja getur þolað. Sjúku fólki fjölgar stöðugt, við niðurnítt heilbrigðiskerfi, vegna umsáturs um Gaza í meira en átján ár og þeirrar stigmögnunar ofbeldis sem íbúar Gaza hafa þurft að þola. Palestínumaðurinn mun rísa sterkari en áður. Reynslan hefur sannað að það er erfitt að reyna að leggja undir sig íbúa Gaza og það er ómögulegt að flytja þá frá heimalandi sínu. Þetta hefur komið í ljós undir því eldhrauni sem ísraelskar flugvélar og skriðdrekar láta rigna yfir svæðið. Palestínskir borgarar munu ekki yfirgefa landið, og ef þeir yfirgefa jörðina, munu líkamar þeirra verða eftir. Í dag er kallað á alþjóðasamfélagið og stofnanir þess, ákafar en nokkru sinni fyrr, að segja: „Hættu að skipta þér af lífi fólksins“. Í síðustu viku var barn að biðja um hjálp frá Rauða hálfmánanum í beinni í sjónvarpinu. Kúlunum rigndi yfir bílinn sem hún var í og drap æsku hennar. Í dag verða lönd heimsins sem hafa alltaf krafist frelsis og mannúðar að halda aftur af Ísraelum. Ísraelska eyðileggingarvélin starfar samkvæmt Alþjóðadómstólnum í Haag og Ísrael er skylt að hlusta á kröfur aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. Þrautseigja Ísraelsstjórnar við að útrýma börnum, konum og öldruðum í öruggu skjóli alþjóðlegrar þöggunar sannar að lönd heimsins taka þátt í þessu þjóðarmorði, mannshugurinn nær ekki utan um að engum í þessum heimi sé unnt að hamla árásum Ísraels. Það er hreint út sagt ótrúlegt. Þögn ríkja heims undir áframhaldandi þjóðarmorði Ísraels mun greiða leið fyrir önnur lönd til að stunda þjóðarmorð, án þess að neinn dragi þau til ábyrgðar eða fæli þau frá gjörðum sínum. Höfundur er þýðandi og birtir greinina fyrir hönd vinar frá Palestínu. مًنْ يوقف شلال الدم النازف في فلسطين؟ لأكثر من سبعة عقود ونصف يئن الشعب الفلسطيني، في كل يوم تتفاقم حالته بؤساً، فمنذ نكبته الأولى عام 1948، ثم نكسته في عام 1967 وما واكب ذلك من مأسي وتشريد وعذابات حتى نكبته في أكتوبر/2023، مشاهد الدمار والويلات تنبعث من مدن وقرى ومخيمات فلسطين وليس قطاع غزة فحسب، شاهد العالم بأسره انتهاك الاحتلال الإسرائيلي الصارخ والمتمثل بمداهمة القوات الخاصة الإسرائيلية لأحد المرافق الطبية في مدينة جنين والمتمثل بمستشفى ابن سينا، بحجة اعتقال مطلوبين، أسفر ذلك عن استشهاد ثلاثة من أبناء الشعب الفلسطيني. سبق هذا الاستهداف الكثير من عمليات الاغتيال، علاوة على اعتداءات المستوطنين المتكررة على المواطنين الفلسطينيين وممتلكاتهم في قرى ومدن الضفة الغربية، الاحتلال الإسرائيلي يستهدف كل ما هو فلسطيني، كما ويتفنن بإيجاد السبل التي تمكنه من إشباع شهية القتل لديه، فاقتحامات الجيش الإسرائيلي وغطرسته ليس كما يدعي لمحاربة حركة حماس والجهاد الإسلامي. فالمناطق التي داهمها لا تخضع لسيطرة حركة حماس، كما أن وحشية هذه المداهمات تؤكد النوايا الدموية المبيتة للحكومة الإسرائيلية المتطرفة، والهادفة إلى دفع الفلسطيني لترك أرضه ووطنه، وأيضاً مسلسل الموت لأكثر من ثلاث شهور في مدن ومخيمات قطاع غزة يأخذ أشكالاً أكثر فظاعة وإرهاباً، فتارة يقصف بالطائرات والدبابات وأخرى بمنع وصول الغذاء والدواء للأطفال والنساء، واقتحام المستشفيات، وقصف المساجد والكنائس، حتى القبور لم تسلم من عبث قوات الاحتلال، لا أدري ما المبرر لذلك؟! وأخرى بالتحريض على المنظمات الدولية المحايدة لإيجاد المبررات لديه لدفعها مغادرة قطاع غزة، والتفرد بالفلسطينيين، لفعل المزيد من الإبادة الجماعية دون حسيب أو رقيب، وتمعن إسرائيل في قتل الفلسطينيين وسط تأييد أمريكي وبريطاني وألماني، والمؤسف أيضاً أمام هذا كله نجد من قادة العالم من يلوم الفلسطيني على سعيه للتحرر والخلاص من الظلم الذي لحق به، ويبرر للاحتلال قتله للأطفال الفلسطينيين. كما أنهم لم يحترموا إرادة شعوبهم المساندة للفلسطينيين، ففي العديد من عواصم الأوروبية وبخاصة تلك الدول التي تؤيد حكوماتها إسرائيل في عدوانها تخرج من هذه الدول مسيرات احتجاجية تطالب بضرورة وقف الإبادة الجماعية في قطاع غزة، لكن هذه الحكومات تصم آذانها وتعمي عيونها عندما يتعلق الأمر في غزة وما يجري فيها من أحداث دموية مؤلمة، وعندما يكون الأمر متعلق بالإسرائيليين تنقلب المعادلة راساً على عقب، يوم أن ادعى الاحتلال كذباً أن اثنا عشر من موظفي الأونروا شاركوا في أحداث السابع عشر من أكتوبر، هرولت العديد من عواصم العالم لتبدي تعاطفها مع إسرائيل بوقف مساعداتها للأونروا، وتناسى قادة العالم أن المنظمة الدولية جاءت بقرار رقم 302 الصادر عن الجمعية العامة للأمم المتحدة، وهذا القرار ينتهي العمل به عندما يتحقق للفلسطيني حقه في العودة إلى وطنه الذي هُجر منه قسراً، فالمجتمع الدولي الذي صمت لأكثر من سبعة عقود ونصف على ما حل بالشعب الفلسطيني من نكبات، عليه أن يفي بالتزاماته تجاه الأونروا وأن يجد حلاً ينهي عذاباته بإقامة دولته المستقلة وعاصمتها القدس وعودة اللاجئين الفلسطينيين إلى مدنهم وقراهم، أيضاً لا يحق لقادة العالم أن يتنصلوا من التزامات حكوماتهم، فخدمات الأونروا تغطي ما نسبته 75% من الشعب الفلسطيني، وبالطبع هؤلاء هم لاجئون، هاجر أجدادهم وآبائهم من قراهم ومدنهم في فلسطين التاريخية. الواقع المرير الذي يحياه الناس في غزة يفوق قدرة البشر على التحمل، فأعداد المرضى في تزايد مستمر، في ظل نظام صحي في قطاع غزة متهالك، نتيجة الحصار لأكثر من ثمانية عشر عاماً المفروض على قطاع غزة، جولات من التصعيد كابدها أهل غزة، وفي كل جولة ينهض الفلسطيني أقوى من ذي قبل. التجربة أثبتت أنه من الصعب محاولة تركيع اهل غزة، كما أن تهجيرهم من وطنهم أمر مستحيل، وهذا ما بات واضحاً تحت حمم النار التي تمطرها الطائرات والدبابات الإسرائيلية إلا أن المواطنين الفلسطينيين باقين في أرضهم، لن يغادروها، وإن غادروا ترابها، ستخلد جثامينهم في باطنها. إن المجتمع الدولي اليوم ومؤسساته مطالبة أكثر من أي وقت مضى، أن تقول "كفى عبثاً بأرواح الأطفال"، بالأمس طفلة تستنجد طواقم الهلال الأحمر الفلسطيني على الهواء مباشرة، أمطرت رشقات الرصاص سيارتها فقتلت طفولتها، اليوم دول العالم التي لطالما تدعي الحرية والإنسانية عليها أن تلجم آلة الدمار الإسرائيلية وتعمل بمخرجات محكمة العدل الدولية في لاهاي، وإلزام إسرائيل الإصغاء لمطالب السيد الأمين العام للأمم المتحدة. إن إمعان الحكومة الإسرائيلية في إبادة الأطفال والنساء والشيوخ في ظل صمت عالمي، يثبت أن دول العالم مشاركة في هذه الإبادة، ولا يمكن لعقل بشري أن يتخيل أن لا أحد في هذا العالم لا يمكنه لجم هجمية إسرائيل، هذا الأمر لا يصدق، صمت دول العالم على مضي إسرائيل في قتلها للأطفال والنساء والشيوخ وهدم المساكن، سيفسح المجال أمام دول أخرى لأن تمارس الإبادة الجماعية، دون أن تجد من يحاسبها أو يردعها على فعلتها. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Átök í Ísrael og Palestínu Mest lesið Ekki í okkar nafni Hópur félagsmanna Samfylkingarinnar og óflokksbundið jafnaðarfólk Skoðun Þarf vinnuskóli að vera vesen? Íris Róbertsdóttir Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir Skoðun Hverjir borga brúsann? Franklín Ernir Kristjánsson Skoðun Hinn sjö mánaða Sam Fahd Abu Haikal Sveinn Þórhallsson Skoðun Við viljum ekki ölmusu, við viljum fá að koma heim Dagmar Valsdóttir Skoðun Misskilningur: RÚV, Silfrið og meint hlutdrægni Hjörvar Sigurðsson Skoðun Kæru landar – af hverju eigum við að segja nei í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Djarfar senur klipptar út Elías Blöndal Guðjónsson Skoðun Eyja með stöðugt gengi, lítið atvinnuleysi og lága húsnæðisvexti Svanborg Sigmarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Við þurfum ekki ESB – eða hvað? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Það er verið að efla framhaldsskóla og verkmenntun Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Seiðkarlar fyrri alda Steingrímur Gunnarsson skrifar Skoðun Hverjir borga brúsann? Franklín Ernir Kristjánsson skrifar Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um gangbrautirnar? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Misskilningur: RÚV, Silfrið og meint hlutdrægni Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Árnar eru ekki hreinsistöð fyrir sjókvíaeldi Brynjar Arnason skrifar Skoðun Þarf vinnuskóli að vera vesen? Íris Róbertsdóttir skrifar Skoðun Djarfar senur klipptar út Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Hinn sjö mánaða Sam Fahd Abu Haikal Sveinn Þórhallsson skrifar Skoðun Eyja með stöðugt gengi, lítið atvinnuleysi og lága húsnæðisvexti Svanborg Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Við viljum ekki ölmusu, við viljum fá að koma heim Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Ekki í okkar nafni Hópur félagsmanna Samfylkingarinnar og óflokksbundið jafnaðarfólk skrifar Skoðun Mannúðin sett í varðhald í brottfararbúðum Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Óuppfyllt loforð í húsnæðismálum í Kópavogi Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Ísland vísar veginn í beinni nýtingu jarðhita Nótt Thorberg skrifar Skoðun Gjafakvótakerfið sem ráðherra Viðreisnar vill ekki kannast við Jón Kaldal skrifar Skoðun Hvað á að gera við afa? Stefanía Fanney Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Vandræðagangur ráðuneytis við kerfisbreytingar setur þingnefnd í vanda Leifur Þorkelsson skrifar Skoðun Hugleiðingar um heimili fyrir færniskert fólk á ýmsum aldri Sigrún Huld Þorgrímsdóttir skrifar Skoðun Verðbólga eða atvinnuleysi, hvort viltu frekar? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Um brottfararstöð og vistun barna Grímur Grímsson,Víðir Reynisson,Sandra Sigurðardóttir,Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir,Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Kæru landar – af hverju eigum við að segja nei í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Stöðugleiki eða sveigjanleiki Sigurjón Njarðarson skrifar Skoðun Lágt atvinnuleysi? Lítum á tölurnar Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Nýtt kvótakerfi í sjókvíaeldi — á kostnað landeigenda og veiðiréttarhafa Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Heilbrigðiseftirlit á heima í nærumhverfinu Kolbrún Georgsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna styðja Íslendingar dánaraðstoð og hvað veldur andstöðu? Ingrid Kuhlman skrifar Sjá meira
Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir Skoðun
Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar
Skoðun Eyja með stöðugt gengi, lítið atvinnuleysi og lága húsnæðisvexti Svanborg Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Vandræðagangur ráðuneytis við kerfisbreytingar setur þingnefnd í vanda Leifur Þorkelsson skrifar
Skoðun Hugleiðingar um heimili fyrir færniskert fólk á ýmsum aldri Sigrún Huld Þorgrímsdóttir skrifar
Skoðun Um brottfararstöð og vistun barna Grímur Grímsson,Víðir Reynisson,Sandra Sigurðardóttir,Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir,Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar
Skoðun Nýtt kvótakerfi í sjókvíaeldi — á kostnað landeigenda og veiðiréttarhafa Jóhann Helgi Stefánsson skrifar
Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir Skoðun