Sérhagsmunagæsla verði til þess að afa sé komið fyrir uppi í sveit Árni Sæberg skrifar 11. febrúar 2024 16:07 Sigurbjörg Erla er bæjarfulltrúi Pírata. Bæjarfulltrúi í Kópavogi fer hörðum orðum um meirihluta bæjarstjórnar og áform hans um að „lífsgæðakjarni“ fyrir eldra fólk verði reistur utan vaxtamörk höfuðborgarsvæðisins. Bæjarfulltrúinn segir málið afhjúpa ófaglegheit, skammsýni og sérhagsmunagæslu meirihlutans.
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, bæjarfulltrúi Pírata í Kópavogi, ritar aðsenda grein hér á Vísi í dag þar sem hún veltir því fyrir hvað eigi að gera við afa. Þar fjallar hún um boðaða uppbyggingu í landi Gunnarshólma í Kópavogi, þar sem á að koma eldri borgurum Kópavogs fyrir. Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, tilkynnti áformin í lok janúar eftir að bæjarráð vísaði þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar. Í tilkynningu sagði viljayfirlýsing um uppbygginguna yrði afgreidd á fundi bæjarstjórnar Kópavogs 13. febrúar næstkomandi. Áformin feli í sér uppbyggingu heils íbúðahverfis með búsetuíbúðum, sérstaklega sniðnum að þörfum fólks yfir sextugu. Þá sé gert ráð fyrir allt að 1.200 hjúkrunarrýmum í hverfinu þegar það er fullbyggt. Það jafngildi um helmingi þeirra hjúkrunarrýma sem ráðgert er að vanti á höfuðborgarsvæðinu á næstu fimmtán árum. Eldra fólki sé hollt að umgangast yngra Sigurbjörg Erla fer ekki í neinar grafgötur með það að hún er alfarið á móti áformum meirihlutans. Hún nefnir til að mynda að samkvæmt öldrunarfræðunum sé það eldra fólki, eins og öðru fólki, hollt og gott að vera í félagslega blönduðu umhverfi, nálægt yngri kynslóðum og nálægt góðum almenningssamgöngum, sem þjóni sérstaklega vel þeim sem geta ekki lengur ekið bíl. „Frá Gunnarshólma, reitnum sem um ræðir, er um 2 klukkustunda gangur í næsta jaðar byggðar Kópavogs og engar almenningssamgöngur. Þessi hugmynd gengur því gegn allri betri vitneskju um hvað hlúi að andlegri og líkamlegri heilsu þessa hóps.“ Furðar sig á litlu úrvali Sigurbjörg Erla segir að vissulega þurfi að byggja íbúðir fyrir eldra fólk og hjúkrunarrými. Það sé óumdeilt og þörfin brýn. Við eigum þó ekki að gera það með því að byggja einsleitt hverfi þar sem fólk sextíu ára og eldri sé aðskilið- frá restinni af samfélaginu. Fyrir utan það hvað staðsetningin feli í sér mikla einangrun þá snúist hugmyndir fjárfestanna og bæjarstjóra um byggingu búseturéttaríbúða eingöngu, enga fjölbreytni í búsetuformi með eignaríbúðum og leiguíbúðum í bland sem þjónai fjölbreyttum hópi. „Í allri umfjöllun um lífsgæðakjarna er einmitt lögð áhersla á fjölbreytileika í íbúðaformi sem einskonar kjarna í hugmyndafræðinni, og jafnvel þá lágmarkskröfu stenst þessi tillaga ekki. Þar með er ekki um valfrelsi að ræða heldur í besta falli þvingað val, svona eins og að bjóða krökkum upp á val um að panta pizzu eða fá soðinn fisk í kvöldmatinn.“ Hafi sennilega fengið landið á spottprís Sigurbjörg Erla segir að innan núverandi áætlana vanti ekki lóðir til uppbyggingar, eins og bæjarstjórinn hafi gefið í skyn í „einskonar hræðsluáróðri til höfuðs lykilprinsippum í svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins.“ Í skipulagi sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu séu áætlaðar yfir 58 þúsund íbúðir innan núverandi vaxtarmarka sem jafngildi heimili fyrir um 148.000 nýja íbúa. Að byggja þar fyrst þjóni almannahagsmunum. „Hvers vegna leggur bæjarstjórinn þá til að byggja við Gunnarshólma? Það verður hún sjálf að upplýsa betur um en við vitum að eigendur reitsins, sem hafa eflaust fengið hann á góðu verði sem beitiland, hafa mikinn hag undir því að þarna byggist íbúðarhúsnæði. En skipulag og þróun sveitarfélaga eiga ekki að vera á forsendum sérhagsmuna einstaka fjárfesta heldur á forsendum almennings byggt á greiningum og upplýstri ákvarðanatöku. Við kjörnir fulltrúar eigum að gæta almannahags fyrst og fremst.“ Eldri borgarar hafi orðið forviða af hryllingi Sigurbjörg Erla segir verðugt að nefna að áform um byggð í Gunnarshólma hafi verið borin undir fulltrúa Landssambands eldri borgara. „Viðbrögð þeirra hafa verið varlega orðað ansi dræm en þeir sátu víst ,,forviða” af hryllingi undir kynningunni.“ Á viðburði um uppbyggingu lífsgæðakjarna í haust hafi fulltrúar eldri borgara rætt hvað skipti máli við slíka uppbyggingu og þar hafi komið fram viljinn til að búa sem næst börnum og barnabörnum, nálægt þjónustu og nálægt almenningssamgöngum. Svo væri líka gaman að vera í návígi við hvort annað. „ Þetta þýðir félagsleg blöndun og að byggja fyrir eldra fólk inni í byggð frekar en að einangra það langt fyrir utan ystu þéttbýlismörk.“ Bæjarstjórn með upp á punt Loks segir Sigurbjörg Erla að bæjarstjórn muni taka málið til umfjöllunar og afgreiðslu á fundi sínum næstkomandi þriðjudag. „En slíka praktíska aðferðarfræði, eins og formlega samþykkt, lætur bæjarstjóri Kópavogs reyndar ekki þvælast fyrir sér enda hefur hún þegar „handsalað samstarfið“ við fjárfestana eins og sést á mynd sem birtist með viðtali við bæjarstjóra í Kópavogspóstinum. Bæjarstjórn er þar með bara upp á punt í meðförum bæjarstjórans sem afhjúpar ekki bara ófaglegheit, skammsýni og sérhagsmunagæslu í þessu máli en líka þá ólýðræðislegu takta sem hafa í raun einkennt kjörtímabilið.“ Fréttin hefur verið uppfærð.
Eldri borgarar Kópavogur Skipulag Tengdar fréttir Segir áform um eldriborgarabyggð úr takti við öll framtíðarplön bæjarins Bæjarfulltrúi Píarata í Kópavogi segist hafa rekið upp stór augu þegar fréttir birtust af því fyrir helgi að bærinn hefði áform um að reisa byggð fyrir aldraða í Gunnarshólma. Mikið hafi verið deilt um málið í bæjarráði og enn eigi eftir að afgreiða það hjá bæjarstjórn. 30. janúar 2024 13:25 Mest lesið Selja sinn sögufrægasta grip til að lifa af sumarið Innlent Segir Íran hafa farið yfir strikið Erlent Sigfús Aðalsteinsson: Trömpistinn sem vill bjarga Íslandi Innlent Sofnaði undir stýri og svipt bílprófinu í hálft ár Innlent Flúði á brott eftir alvarlega líkamsárás Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Aukinn hraði í framsókn Rússa Erlent Benz brann í Breiðholti Innlent Fregnir af eldsvoða á flugvelli í Teheran Erlent Vilja milljarð frá First Water sem hafnar vanefndum Innlent Spáir því að Fljótagöng verði næstu jarðgöng Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Brautskráningar Háskóla Íslands Sigfús Aðalsteinsson: Trömpistinn sem vill bjarga Íslandi Bókun 35 aftur rædd fram á nótt Spáir því að Fljótagöng verði næstu jarðgöng Flúði á brott eftir alvarlega líkamsárás Selja sinn sögufrægasta grip til að lifa af sumarið Sofnaði undir stýri og svipt bílprófinu í hálft ár Benz brann í Breiðholti Minnihlutinn mætir ekki á morgun Vilja milljarð frá First Water sem hafnar vanefndum Allt á suðupunkti á Alþingi, árásir í Íran og fágætur flygill Selma nýr skólameistari á Króknum Hafa enga hugmynd hve lengi segulómstækið verður ónothæft Þórdís kemur Þorgerði til varnar: „Birtingarmynd pólitískra öfga“ Skúringatæki pikkfast utan á eina segulómtækinu á Hringbraut Stofnandi Viðreisnar segir Daða seilast í vasa almennings Burðardýr með þrettán kíló í farangrinum hlaut þungan dóm Sverrir Jónsson ráðinn skrifstofustjóri Alþingis Þyrlan afturkölluð og hinn slasaði sóttur á björgunarskipi Draga úr framkvæmdum um meira en fjórðung vegna rekstrarstöðvunar PCC Kæra utanríkisráðherra fyrir landráð Segja skellt á Skattinn og að „ofbeldi“ viðgangist í nefndinni „Kanntu ekki að skammast þín?“ Hrósaði meirihlutanum og sendi þeim gamla pillu Árásir á Íran og átök á Alþingi Lögðu hald á töluvert magn fíkniefna og milljónir í reiðufé Ísland fyrsta landið til að dreifa Naloxone í öll fangelsi Segir reikninginn ekki enda hjá eldri borgurum Nemandinn sem stakk Ingunni nítján sinnum: Segir „tæknilega séð mögulegt“ að hann geri það aftur Kínverskur dómur um banaslys skipti engu máli og TM slapp Sjá meira
Segir áform um eldriborgarabyggð úr takti við öll framtíðarplön bæjarins Bæjarfulltrúi Píarata í Kópavogi segist hafa rekið upp stór augu þegar fréttir birtust af því fyrir helgi að bærinn hefði áform um að reisa byggð fyrir aldraða í Gunnarshólma. Mikið hafi verið deilt um málið í bæjarráði og enn eigi eftir að afgreiða það hjá bæjarstjórn. 30. janúar 2024 13:25