Vakna upp við milljarðs þynnku eftir sögulega gott tímabil Aron Guðmundsson skrifar 27. nóvember 2023 12:31 Christian Horner, liðsstjóri Red Bull Racing og Max Verstappen, ökumaður liðsins og heimsmeistari síðustu þriggja tímabila, fagna góðum árangri í Abu Dhabi í gær. Vísir/Getty Red Bull Racing, með Hollendinginn Max Verstappen í fararbroddi, bar höfuð og herðar yfir andstæðinga sína á nýafstöðnu tímabili í Formúlu 1. Verstappen varð heimsmeistari ökumanna og Red Bull Racing heimsmeistari bílasmiða. Árangur og stigasöfnun sem sér til þess að liðið mun þurfa að borga hæsta þátttökugjaldið í sögu Formúlu 1 ætli það sér að vera á meðal keppenda á næsta tímabili.
Árangur Red Bull Racing á nýafstöðnu tímabili var hreint út sagt ótrúlegur. Liðið vann 21 af 22 keppnum tímabilsins og sankaði að sér 860 stigum í stigakeppni bílasmiða. Verstappen tryggði sér sinn þriðja heimsmeistaratitil á ferlinum löngu áður en tímabilið leið undir lok og endaði hann á toppi stigakeppninnar með 575 stig, 290 stigum meira en liðsfélagi sinn Sergio Perez sem tók annað sæti stigakeppninnar. Þessir yfirburðir Red Bull Racing á tímabilinu sjá hins vegar til þess að liðið mun þurfa að greiða 7,4 milljónir Bandaríkjadala í þátttökugjald til Alþjóða akstursíþróttasambandsins (FIA) ætli það sér að vera með bíla á rásröðinni á næsta tímabili. Liðsmenn Red Bull Racing gátu leyft sér að fagna vel og innilega í gær þegar að Formúlu 1 tímabilið 2023 leið undir lok.Vísir/Getty Umrætt þátttökugjald er það hæsta sem eitt lið hefur þurft að borga í sögu Formúlu 1 en um árabil hefur regluverk FIA, varðandi þátttökugjöld liða, verið á þá leið að það tekur að stórum hluta mið af stigasöfnun liðsins í stigakeppni bílasmiða tímabilið á undan. Regluverkið, sem samþykkt var og innleitt árið 2013, sér til þess að liðin í Formúlu 1 þurfa að greiða grunngjald upp á 500 þúsund Bandaríkjadali, rúmar 69 milljónir íslenskra króna, til þess að vera með lið í mótaröðinni. Ofan á það bætast síðan gjöld sem taka mið af stigunum sem liðið vann sér inn tímabilið á undan og er kostnaðurinn við hvert stig 5 þúsund Bandaríkjadalir, rúmar 690 þúsund íslenskar krónur. Þá þarf heimsmeistari bílasmiða hvers tímabils, í þessu tilviki Red Bull Racing, að greiða 6 þúsund Bandaríkjadali eða því sem jafngildir tæpum 830 þúsundum íslenskra króna. En líkt og íslenskt samfélag er Formúla 1 ekki undanskilið þeim áhrifum verðbólgu. Því hafa þessi gjöld sem talin eru upp hér að ofan hækkað töluvert fyrir tímabil næsta árs. Grunngjaldið sem liðin þurfa að borga hefur því hækkað úr 500 þúsund Bandaríkjadölum upp í 657 þúsund Bandaríkjadali. Kostnaðurinn við hvert unnið stig er kominn vel yfir 6 þúsund Bandaríkjadali og nú þarf Red Bull Racing að greiða yfir 7800 Bandaríkjadali fyrir að vera ríkjandi heimsmeistari í keppni bílasmiða. Allt í allt þarf liðið því að reiða fram rúmar 7,4 milljónir Bandaríkjadala, rúman einn milljarð íslenskra króna, fyrir 10. Desember næstkomandi til þess að fullgilda þátttökurétt sinn á 2024 tímabilinu í Formúlu 1. Verstappen, besti ökumaður heims um þessar mundir, því verður ekki neitað.Vísir/Getty Til samanburðar er ljóst að liðin sem enduðu í öðru og þriðja sæti í stigakeppni bílasmiða, Mercedes (409 stig) og Ferrari (406 stig), munu þurfa að greiða ívið lægra gjald til þess að fullgilda þátttökurétt sinn. Rúmar 3,3 milljónir Bandaríkjadala, eða um 455 milljónir íslenskra króna, er gjaldið sem Mercedes og Ferrari munu þurfa að greiða. „Þetta er lúxusvandamál,“ sagði Christian Horner, liðsstjóri Red Bull Racing, aðspurður um skoðun sína á þátttökugjaldi liðsins fyrir næsta ár. „Þetta er ansi há ávísun fyrir okkur að skrifa til FIA.“
Mest lesið Harma rasíska og transfóbíska grein liðsfélaga Sveindísar Fótbolti Alfreð hissa: Veit að Íslendingar geta mun betur Handbolti Haaland fór sem Jókerinn að versla bleyjur Enski boltinn Segir sönginn um Jota á tuttugustu mínútu hafa áhrif á leik Liverpool Enski boltinn „Hugsaði að ég myndi aldrei gera þetta aftur“ Sport Hlýtur að vera alvöru krísufundur í Valsheimilinu um helgina Körfubolti Besta byrjun Chicago Bulls síðan Jordan var í liðinu Körfubolti Fullkomin þrenna kom Lampard úr sjöunda himni Enski boltinn Kóngarnir í Færeyjum: Töpuðu ekki leik allt tímabilið Fótbolti Dagskráin í dag: Doc Zone, frábærir leikir í enska og Bónus-deild kvenna Sport Fleiri fréttir Verstappen telur sig ekki geta barist um titilinn Hlupu inn á Formúlu 1-brautina: „Ég hefði getað drepið þá“ Yfirburðir Norris sem er kominn á toppinn Norris á ráspól og forysta Piastri í hættu Grunur um nauðgun á heimili Schumachers Segir að formúlu 1 vanti nú illmenni Russell fyrstur í mark í Singapúr og McLaren tryggði sigur bílasmiða George Russell á ráspól í Singapúr Hringt í flesta eigendur í Formúlu 1 eftir brottreksturinn frá Red Bull Sjá meira