Stofnun viðbragðsteymis við vá Bragi Björnsson og Guðmundur Björnsson skrifa 17. nóvember 2023 13:01 Samkvæmt almannavarnalögum er það Ríkislögreglustjóri sem fer með málefni almannavarna í umboði ráðherra og lögreglan ber ábyrgð á leitar- og björgunaraðgerðum á landi en óumdeilt er að Slysavarnafélagið Landsbjörg (SL) gegnir lykilhlutverki í öllum vegameiri leitar- og björgunarstörfum hérlendis. Fyrir liggur að landsmenn allir reið sig á þjálfaða sjálfboðaliða SL í neyð og án þeirra væri samfélagið ekki í stakk búið til að bregðast við neyðarástandi. Þá gegnir Rauði Kross Íslands (RKÍ) einnig veigamiklu hlutverki að hlúa að og tryggja öryggi þeirra sem verða fyrir áföllum. Á grundvelli laga um almannavarnir hefur verið sett fram stefna ríkisins í almannavarna- og öryggismálum sem miðar að því að íslenskt samfélag sé öruggt. Í samræmi við stefnu stjórnvalda í almanna- og öryggismálum frá 2021 er nú unnið að heildarendurskoðun íslensku almannavarnalaganna. Markmiðið er að efla almannavarnakerfið landsins, styrkja það sem vel gengur og bæta það sem betur má fara. Nýr veruleik kallar á nýjar lausnir Sá nýi veruleiki sem blasir við Íslendingum vegna vaxandi náttúruhamfara, kallar á nýja sýn og ætti að hafa áhrif á það endurmat á almannavarnakerfi þjóðarinnar sem nú er unnið að. Vísindamenn spá því að eldsumbrot og jarðskjálftar verði viðvarandi næstu áratugi í grennd við þéttbýlasta svæði landsins. Augljóst er að það mun valda áður óþekktu álagi á sjálfboðaliða björgunarsveitanna og Rauða Krossins ef ekki verður brugðist við. Að sama skapi er ljóst að það er óvarlegt og í raun ósanngjarnt að ætlast til þess að sjálfboðaliðar sinni öllum þeim störfum sem viðvarandi náttúruhamfaraástandi fylgir. Markmið og tilgangur bæði SL og RKÍ er að bregðast við óvæntu neyðarástandi og vinna að forvörnum en ekki sinna langtíma varðgæslu eða aðstoð. Með hliðsjón af þessu væri vert við endurskoðun á almannavarnakerfi landsins að íhuga stofnun sérstakrar sveitar launaðra sérfræðinga innan almannavarnakerfisins, sem hefði það meginhlutverk að sinna öryggismálum sem falla utan hefðbundinna starfa lögreglu og sjálfboðaliða björgunarsveitanna. Tvíþætt hlutverk viðbragðsliðs við vá Aukin tíðni náttúruhamfara á Íslandi krefst þess að tiltækt sé viðbragðsteymi við vá sem geti starfað við erfiðar aðstæður til lengri tíma. Þó að sjálfboðaliðar hafi unnið lofsvert starf í yfirstandandi náttúruhamförum, krefst margbreytileiki, umfang og alvarleiki nýlegra náttúruatburða annars konar viðbúnaðar en stuðst hefur verið við hingað til. Að sama skapi kallar aukin straumur ferðamanna til landsins á nýjar áskoranir í öryggismálum s.s. þörf á samfelldri viðveru viðbragðsaðila á varasömum stöðum sem erfitt er að manna með sjálfboðaliðum. Sérhæft lið fagfólks í fullu starfi myndi leysa þennan vanda en ekki síður létta undir starfi björgunarsveitanna. Andlegt og líkamlegt álag á okkar frábæru sjálfboðaliða, sem nú sem fyrr bera hitann og þungann af viðbrögðum við þeirri vá sem vofir yfir okkur á Reykjanesskaga, er t.d. vaxandi áhyggjuefni. Teymi vel þjálfaðs atvinnufólks gæti létt þá byrði og stuðlað að betra jafnvægi milli vinnu, einkalífs og sjálfboðaliðastarfa björgunarsveitafólks. Þannig yrði dregið úr álagi á björgunarsveitirnar, sem er mikilvægt því áfram mun samfélagið treysta á öfluga sjálfboðaliða SL til að sinna leitar- og björgunarstörfum og öðrum viðamiklum aðgerðum í neyð. Eðlilegt væri að hlutverk þessa liðs yrði vel skilgreint og gerðar væru ákveðnar menntunar kröfur til þeirra sem þar störfuðu. Sjá mætti fyrir sér að grunnurinn að menntunni væri byggð á námskeiðum björgunarskóla SL, námskeiðum Landvarða og hluta að námi lögregluskólans. Mætti í þessu sambandi líta til svokallaðra „löggæsluvarða“ hjá þjóðgarðastofnun bandaríkjanna (NPS Law Enforcement Ranger) varðandi starfsskyldur. Ætla má að margt björgunarsveitarfólk myndi sækja í þessi störf enda er þar að finna reynslumikið fólk með brennandi áhuga á neyðar- og björgunarstörfum. Efnahagslegur ávinningur Efnahagur Íslands, sem er mjög háður ferðaþjónustu, sem byggir verulega á góðu orðspori Íslands sem öruggur ferðamannastaður. Það skiptir því miklu máli að tryggt sé að ferðamenn upplifi sig áfram örugga á ferðum sínum um landið og að þeir skynji að þeim verði komið til bjargar ef með þarf. Þannig gæti þetta lið viðbragðsliða sinnt störfum sem sérstakir landverðir auk þess að vera til taks við náttúruhamfarir. Það myndi einnig geta skipt sköpum við að efla fræðslu, aðstoð og að leiðbeina ferðamönnum og þar með auka öryggi þeirra og heildarupplifun á Íslandi. Sérstaklega er þetta brýnt þar sem sífellt er orðið erfiðara að manna t.d. hálendisgæslu björgunarsveitanna. Þessi nálgun myndi ekki aðeins vernda og aðstoða gesti okkar heldur einnig viðhalda góðu orðspori Íslands sem öruggur og ábyrgur ferðamannastaður. Fjármögnun Áætla má að nægja myndi að u.þ.b. 200 einstaklingar skipuðu umrætt viðbragðslið sem dreifast myndi á vel skilgreinda staði í öllum landsfjórðungum. Slíkur fjöldi atvinnumanna gæfi möguleika á sérhæfingu þeirra í ýmsum verndar- og gæslustörfum sem er mikilvægt til að takast á við flókið hættuástand. Þá ætti slíkur fjöldi að duga til tryggja samfellda viðveru á áhættumiklum stöðum og sinna samstarfi við sjálfboðaliðahópa sem væru áfram til taks. Sjá mætti fyrir sé að verkefnið væri fjármagnað aðallega með gjaldi sem ferðamenn greiddu vegna heimsóknar sinnar til landsins sem næmi 10 -15 evrum sem mætti kallast öryggisgjald. Miðað við núverandi ferðamannafjölda gæti þetta gjald numið um fjórum milljörðum árlega. Sú fjárhæð ætti að duga til rekstur slíks liðs auk þess að styðja etv. fjárhagslega við starfsemi SL, því eðlilegt væri að ákveðið hlutfall þessa gjalds færi til björgunarsveitanna enda hafa þær verulegan kostnað að leit-og björgun ferðamanna sem eðlilegt er að ferðamenn standi straum af að hluta. Niðurstaða Að koma á fót launuðu viðbragðsteymi við vá innan almannavarnakerfis Íslands er fyrirbyggjandi aðgerð og skref í átt að því að tryggja öryggi og vellíðan bæði íbúa landsins og ferðamanna. Um væri að ræða ígrundaða fjárfestingu í framtíð þjóðarinnar sem felst í því að vernda ekki bara líf og limi fólks heldur einnig efnahag og náttúrufegurð gegn þeim áskorunum sem okkar síbreytilega og óblíða náttúra skapar. Stofnun sérhæfðs viðbragðsliðs við vá er ekki bara nauðsyn heldur stefnumótandi ráðstöfun til að efla getu Íslands í hamfaraviðbrögðum til framtíðar, aðlagast alþjóðlegri þróun og takast á við þær áskoranir sem okkar fallega og einstaka land er sífellt að leggja fyrir okkur. Við teljum það sé nú kjörið tækifæri að gefa þessari hugmynd gaum þar sem unnið er að endurskoðun laga um almannavarnir. Bragi Björnsson, lögmaður og félagi í SL.Guðmundur Björnsson, ferðamálafræðingur og leiðsögumaður. Höfundar eru áhugamenn um viðbrögð við vá og öryggismál. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Eldgos á Reykjanesskaga Almannavarnir Guðmundur Björnsson Mest lesið Íslenska er leiðinleg Nói Pétur Á Guðnason Skoðun Árásir á gyðinga í skugga þjóðarmorðs Helen Ólafsdóttir Skoðun Hverjum voru ráðherrann og RÚV að refsa? Júlíus Valsson Skoðun Djöfulsins, helvítis, andskotans pakk Vilhjálmur H. Vilhjálmsson Skoðun „Quiet, piggy“ Harpa Kristbergsdóttir Skoðun Kjósið reið og óupplýst! Ragnheiður Kristín Finnbogadóttir Skoðun Um ólaunaða vinnu, velsæld og nýja sýn á hagkerfið Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,Soffía S. Sigurgeirsdóttir,Elva Rakel Jónsdóttir Skoðun Þrjú slys á sama stað en svarið er: Það er allt í lagi hér! Róbert Ragnarsson Skoðun Réttar upplýsingar um rekstur og fjármögnun RÚV Stefán Eiríksson,Björn Þór Hermannsson Skoðun Ísland er ekki í hópi þeirra sem standa sig best í loftslagsmálum Eyþór Eðvarðsson Skoðun Skoðun Skoðun Hverjum voru ráðherrann og RÚV að refsa? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Íslenska er leiðinleg Nói Pétur Á Guðnason skrifar Skoðun Þrjú slys á sama stað en svarið er: Það er allt í lagi hér! Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Réttar upplýsingar um rekstur og fjármögnun RÚV Stefán Eiríksson,Björn Þór Hermannsson skrifar Skoðun Kjósið reið og óupplýst! Ragnheiður Kristín Finnbogadóttir skrifar Skoðun Ekkert barn á Íslandi á að búa við fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Árásir á gyðinga í skugga þjóðarmorðs Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hundrað doktorsgráður Ólafur Eysteinn Sigurjónsson skrifar Skoðun EES: ekki slagorð — heldur réttindi Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Að þjóna íþróttum Rögnvaldur Hreiðarsson skrifar Skoðun „Quiet, piggy“ Harpa Kristbergsdóttir skrifar Skoðun Ísland er ekki í hópi þeirra sem standa sig best í loftslagsmálum Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Ísland, öryggi og almennur viðbúnaður Magnús Árni Skjöld Magnússon skrifar Skoðun Um ólaunaða vinnu, velsæld og nýja sýn á hagkerfið Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,Soffía S. Sigurgeirsdóttir,Elva Rakel Jónsdóttir skrifar Skoðun Leysum húsnæðisvandann Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Hugleiðing um jól, fæðingu Krists og inngilding á Íslandi Nicole Leigh Mosty skrifar Skoðun Betri en við höldum Hjálmar Gíslason skrifar Skoðun Draumurinn um ESB-samning er uppgjöf – Ekki fórna framtíðinni fyrir falsöryggi Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Setjum við Ísland í fyrsta sæti? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Misskilningur Viðreisnar um áhrif EES-úrsagnar á Íslendinga erlendis Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Skattahækkanir í felum – árás á heimilin Lóa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Að fyrirgefa sjálfum sér Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Hér starfa líka (alls konar) konur Selma Svavarsdóttir skrifar Skoðun Kílómetragjald í blindgötu – þegar stjórnvöld misskilja ferðaþjónustuna Þórir Garðarsson skrifar Skoðun 5 vaxtalækkanir á einu ári Arna Lára Jónsdóttir skrifar Skoðun Falskur finnst mér tónninn Kristján Fr. Friðbertsson skrifar Skoðun Treystir Viðreisn þjóðinni í raun? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Frá sr. Friðriki til Eurovision: Sama woke-frásagnarvélin, sama niðurrifsverkefni gegn gyðing-kristnum rótum Vesturlanda Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þingmaður með hálfsannleik um voffann Úffa Árni Stefán Árnason skrifar Skoðun Allt fyrir ekkert – eða ekkert fyrir allt? Eggert Sigurbergsson skrifar Sjá meira
Um ólaunaða vinnu, velsæld og nýja sýn á hagkerfið Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,Soffía S. Sigurgeirsdóttir,Elva Rakel Jónsdóttir Skoðun
Skoðun Réttar upplýsingar um rekstur og fjármögnun RÚV Stefán Eiríksson,Björn Þór Hermannsson skrifar
Skoðun Um ólaunaða vinnu, velsæld og nýja sýn á hagkerfið Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,Soffía S. Sigurgeirsdóttir,Elva Rakel Jónsdóttir skrifar
Skoðun Draumurinn um ESB-samning er uppgjöf – Ekki fórna framtíðinni fyrir falsöryggi Eggert Sigurbergsson skrifar
Skoðun Misskilningur Viðreisnar um áhrif EES-úrsagnar á Íslendinga erlendis Eggert Sigurbergsson skrifar
Skoðun Kílómetragjald í blindgötu – þegar stjórnvöld misskilja ferðaþjónustuna Þórir Garðarsson skrifar
Skoðun Frá sr. Friðriki til Eurovision: Sama woke-frásagnarvélin, sama niðurrifsverkefni gegn gyðing-kristnum rótum Vesturlanda Hilmar Kristinsson skrifar
Um ólaunaða vinnu, velsæld og nýja sýn á hagkerfið Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,Soffía S. Sigurgeirsdóttir,Elva Rakel Jónsdóttir Skoðun