Ölvaður ökumaður ók á ljósastaur Atli Ísleifsson skrifar 13. nóvember 2023 07:28 Í Garðabæ var tilkynnt um „grunsamlegan mann með kúbein“ í íbúðahverfi. Vísir/Vilhelm Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út eftir að tilkynnt var um að bíl hafði verið ekið á ljósastaur í hverfi 103 í Reykjavík. Þegar að var komið var bíllinn var ofan á ljósastaurnum og ökumaðurinn enn í ökumannssætinu.
Í tilkynningu frá lögreglu, þar sem segir frá verkefnum gærkvöldsins og næturinnar, kemur fram að þegar lögregla hafi komið á vettvang hafi ökumaðurinn greinilega verið ölvaður. Borið hafi á áfengislykt, maðurinn þvoglumæltur og votur í augum. Þá segir að maðurinn hafi verið handtekinn, blóðsýni tekið og hann vistaður í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins. Í tilkynningu lögreglu segir einnig að tilkynnt hafi verið um þjófnað í matvöruverslun þar sem þjófurinn hafi farið af vettvangi áður en lögregla bar að garði og fannst hann ekki þrátt fyrir leit. Í miðborg Reykjavíkur var tilkynnt um mann sem hafði ráðist á starfsmann á hóteli. Starfsmaðurinn hafði engar kröfur á hendur manninum sem var flúinn áður en lögregla kom. Maðurinn fannst ekki þrátt fyrir leit. Í Garðabæ segir að tilkynnt hafi verið um „grunsamlegan mann með kúbein“ í íbúðahverfi. Hann fannst ekki þrátt fyrir leit, segir í tilkynningu lögreglu. Í Kópavogi var tilkynnt um ökumann sem hafi ekið á kyrrstæða bíla en hann var greinilega undir áhrifum ávana- og fíkniefna; mjög sljór í tali og fasi og átti erfitt með að halda sér vakandi. Hann var handtekinn, blóðsýni dregið og hann vistaður í klefa í þágu rannsóknar málsins. Í Kópavogi var einnig tilkynnt um æstan mann í fjölbýli en hann hafði valdið skemmdum á sameign hússins og ekki verið húsum hæfur. „Maðurinn verulega ölvaður; áfengislykt, drafandi í tali. Handtekinn og vistaður í klefa í þágu rannsóknar málsins.“ Þá voru skráningarmerki fjarlægð af nokkrum ökutækjum í hverfi 104 í Reykjavík þar sem ekki hafði verið staðið að skilum á vátryggingu ökutækjanna.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Fleiri fréttir Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Sjá meira