Ólafía Jóhannsdóttir – Hin íslenska Móðir Teresa Norðursins Sveindís Anna Jóhannsdóttir og Steinunn Bergmann skrifa 22. október 2023 08:01 Ólafía var fædd 22. október árið 1863 og því eru 160 ár frá fæðingu þessarar merku konu sem var brautryðjandi í jafnréttisbaráttu og tók virkan þátt í þjóðmálum. Ólafía fæddist að Mosfelli og foreldrar hennar voru séra Jóhann Knútur Benediktsson og Ragnheiður Sveinsdóttir. Ólafía ólst að mestu upp hjá móðursystur sinni Þorbjörgu Sveinsdóttur, ljósmóður í Reykjavík. Móðurbróðir Ólafíu var Benedikt Sveinsson, faðir Einars Benediktssonar, skálds. Systkinin Benedikt og Þorbjörg voru eldhugar í sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar og höfðu þau mótandi áhrif á Ólafíu í uppvextinum. Forvígismaður íslenskrar kvennabaráttu, byltingarkona og heimskona Ólafía var fyrst kvenna til að ljúka fjórða bekkjarprófi árið 1890 í Lærða skólanum en hún lærði utanskóla því konum var ekki heimilt að sækja kennslustundir við skólann. Hún var tilbúin að gangast undir stúdentspróf ári síðar en var synjað um að taka prófið á þeirri forsendu að tveir vetur skyldu líða milli fjórða bekkjarprófs og stúdentsprófs. Einar, frændi hennar, hafði þó tekið stúdentspróf ári eftir að hann lauk fjórða bekkjarprófi. Ólafía sætti sig ekki við synjunina og hætti við stúdentsprófið. Þegar Hið íslenska kvenfélag var stofnað árið 1894 var Ólafía meðal stofnenda ásamt Þorbjörgu fóstru sinni. Ári síðar, 1895, beitti Ólafía sér fyrir stofnun Hvítabands félags á Íslandi og var kosin formaður þess. Ólafía lét til sín taka á Íslandi í baráttunni við áfengisvandann en bindindisfólk rölti á skipulegan hátt um miðbæ Reykjavíkur og spjölluðu við fólk sem virtist stefna á ölstofur. Ólafía var fyrsta konan sem var kosin í æðstu stjórn Góðtemplarareglunar á Íslandi og var tímabundið í embætti Æðsta templarans innan reglunar. Ólafía ferðaðist víða um Ísland og hélt fyrirlestra á vegum Hvítabandsins. Síðar fór hún til Bandaríkjanna, Kanada, Englands, Skotlands og Noregs til að halda fyrirlestraum jafnréttismál, menntamál, trúmál, lífeyrisréttindi og heilbrigðismál. Í fyrirlestrum sínum gerði Ólafía grein fyrir skoðunum sínum og lýsti hún samhjálp sem borgaralegri skyldu allra manna. Ekki væri hægt að hjálpa fólki án þess að læra að skilja það á heildrænan hátt. Félagsráðgjafar tengja vel við sýn Ólafíu en heildarsýn hefur frá upphafi verið eitt af megingildum félagsráðgjafa. Ólafía fjallaði um að taka þyrfti tillit til allra þarfa, jafnt efnahagslegra sem andlegra. Hún fjallaði einnig um að sérstaka varfærni þyrfti að sýna tilfinningum fólks og sagði í ritum sínum að það væri til dæmis vandasamara að umgangast götustúlkur en drottningar því götustúlkum þyrfti að sýna meiri kurteisi og tillitssemi en drottningum. Tímamótaverk í bókmenntasögunni Ólafía er þjóðkunn í Noregi en hún starfaði í tæpa tvo áratugi í Ósló. Þar helgaði hún sig því að hjálpa þeim sem þurfti og einna þekktust var hún fyrir störf sín í þágu kvenna sem voru utangarðs í samfélaginu, á sjúkrahúsum og í fangelsum. Árið 1912 stofnaði hún heimili fyrir utangarðskonur og skrifaði síðan bókina Aumastar allra: Myndir frá skuggahliðum Kristjaníu . Í bókinni eru sögur sagðar af konum; vændiskonum, afbrotakonum, heimilislausum konum ásamt konum sem þjást af sárasótt og öðrum afleiðingum lífernis síns. Ólafía fór ótroðnar slóðir og skrifaði m.a. um kynsjúkdóma en á þessum tímum var ekki fjallað um kynlíf í bókum og þar af síður sjúkdóma því tengdu. Bókin vakti mikla athygli bæði á Íslandi og erlendis, var endurútgefin oft í Noregi og einnig þýdd yfir á ensku og gefin út í Kanada. Ólafía ritaði endurminningar sínar og var bókin, sem gefin var út árið 1925, Frá myrkri til ljóss tímamótaverk í íslenskri bókmenntasögu en þetta var í fyrsta sinn sem sjálfsævisaga konu kom út á prenti. Eins og fram hefur komið er saga Ólafíu eða ,,Laffí“ eins og hún var oft kölluð mun þekktari í Noregi en á Íslandi. Ólafía var kölluð ,,Hin íslenska“ þar sem hún klæddist íslenskum þjóðbúningum þegar hún kom fram en hún en einnig fékk hún viðurnefnið ,,Móðir Teresa norðursins“ vegna mannúðarstarfa sinna. Í Ósló er gata nefnd eftir henni ,,Olafiagangen“ og það er stytta af henni í miðborg Óslóar, við Brugatan í Vaterland hverfinu sem hún vann í. Háskólasjúkrahúsið í Ósló er með göngudeild sem kallast ,,Olafiaklinikken“ þar sem fólk getur fengið ráðgjöf, skimun og meðferð vegna kynsjúkdóma. Íslenski söfnuðurinn í Noregi er með ,,Ólafíustofu“ þar sem ýmsar samkomur eru haldnar og í tengslum við kirkjuna er sönghópurinn Laffí. Ólafía er ekki með öllu ókunn á Íslandi, styttur af henni eru við kirkjuna á Mosfelli, á Hallveigarstöðum og fyrir framan hátíðarsal Háskóla Íslands. Nemendur í félagsráðgjöf og handleiðslufræðum við Háskóla Íslands læra um Ólafíu. Hvernig störf hennar endurspeglast í grunngildum félagsráðgjafar og eigin ígrundun og hugmyndir um fagmennsku tengjast nútíma handleiðslu. Árið 2003 var í kirkjunni á Mosfelli frumsýnt leikritið Ólafía í leikstjórn Guðrúnar Ásmundsdóttur. Edda Björgvinsdóttir fór með hlutverk Ólafíu og fékk góða dóma fyrir túlkun á einstakri persónu. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir skrifaði bók um Ólafíu sem kom út árið 2006. Árið 2013 voru haldnar Ólafíuhátíðir bæði í Noregi og á Íslandi í tilefni þess að 150 ár voru liðin frá fæðingu hennar. Heilsa og líðan þjóðar helst í hendur við jafnrétti Nú þegar 99 ár eru liðin frá andláti Ólafíu er ljóst að enn er barist fyrir jafnrétti kynjanna og leitað leiða til að vinna gegn kynbundnu ofbeldi. Kvennaverkfall sem er á dagskrá þann 24. október segir mikið um kröfur samtímans um jafnrétti en yfirskrift dagsins er Kallarðu þetta jafnrétti? Á vinnumarkaði þarf að huga að sálfélagslegu öryggi á vinnustöðum og því hafa æ fleiri vinnustaðir innleitt samskiptasáttmála til viðbótar starfsmannastefnu og öðrum stefnum s.s. jafnréttisstefnu, öryggistefnu, starfsþróunarstefnu o.fl. Vinnustaðir eiga að greina og meta áhættuþætti starfa, þar á meðal félagslega áhættuþætti. Of margar konur hverfa ótímabært af vinnumarkaði sökum margþættar mismununar og skorts á sálfélagslegum stuðningi. Vandinn er ekki bundinn við einstaklinga en liggur í menningu fyrirtækja, stofnana og samfélagslegra viðhorfa. Við þurfum að átta okkur á hvaða toll þriðja vaktin, ólaunuð og oft ósýnileg störf kvenna eru að hafa á heilsu þeirra og líðan. Ólafía notaði markvisst ígrundun, sem er lykilverkfæri í faglegri handleiðslu, til að þróa sjálfa sig sem hjálpara. Í dag eru sérmenntaðir handleiðarar sem sjá um handleiðslu starfsmanna sem lið í persónulegri starfsþróun þeirra en einnig sem forvörn gegn streitu og kulnun. Enn er of algengt að fagfólk fari ekki í handleiðslu fyrr en einkenni streitu og kulnunar eru orðin alvarleg. Á alþingi hefur þingsályktunartillaga um samkenndarsátt og samkenndarþreytu verið rædd og mikilvægi þess að meta reglulega líðan starfsmanna í velferðarþjónustu til að hægt sé að bregðast við með skýrum verkferlum og hlúa tímanlega að þeim sem líður ekki vel til að auka öryggi og gæði þjónustunnar. Matslisti sem mælir bæði samkenndarsátt og samkenndarþreytu hefur verið þýddur á íslensku og er notaður bæði í klínískri handleiðslu sem og í rannsóknum á líðan starfsfólks. Betri heilsa og líðan þjóðar helst í hendur við aukið jafnrétti. Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt Til að heiðra minningu Ólafiu mun Félagsáðgjafafélag Íslands í samstarfi við Hvítabandið og Kvenréttindafélag Íslands leggja blómsveig við styttu hennar að Mosfelli á fæðingardegi hennar 22. október og vera með Opið hús á Kvennaverkfallsdaginn 24. október. Þar verður fjallað um sögu Ólafíu í máli og myndum og síðan gengið saman á Arnarhól til samstöðufundar. Það er viðeigandi að ljúka umfjöllun um kvenskörunginn og jafnréttindakonuna Ólafíu með því að birta brot úr ljóðinu Einræður Starkaðar eftir Einar Benediktsson. Vera má að brosið sem hann yrkir um hafi verið bros Ólafíu og tákn um áhrif hennar á þá er kynntust henni. Boðskapur ljóðsins er einnig um nauðsyn þess að vanda sig í samskiptum: Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt, sem dropi breytir veig heillar skálar. Þel getur snúist við atorð eitt. Aðgát skal höfð í nærveru sálar. Svo oft leyndist strengur í brjósti sem brast við biturt andsvar, gefið án saka. Hve iðrar margt líf eitt augnakast, sem aldrei verður tekið til baka. Sveindís Anna Jóhannsdóttir, félagsráðgjafi og handleiðari, framkvæmdastjóri Félagsráðgjafafélags Íslands og varaformaður Handleiðslufélags Íslands. Steinunn Bergmann, félagsráðgjafi og formaður Félagsráðgjafafélags Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Jafnréttismál Mest lesið Þvílíkt „plan“ fyrir íslensk heimili Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Þúsundir kusu Sönnu Anna Bentína Hermansen Einarsdóttir,Ármann Hákon Gunnarsson,Baldvin Björgvinsson,Brynja Guðnadóttir,Haraldur Ingi Haraldsson,Jón Hallur Haraldsson,Kolbrún Erna Pétursdóttir,Ólafur H. Ólafsson,Rakel Hildardóttir,Sigrún Jónsdóttir Skoðun Heiðursgestur Viðreisnar vill heimsveldi Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Veðmál barna – hættulegur leikur sem hægt er að stöðva Jóhann Steinar Ingimundarson Skoðun NATO riðar til falls en hvað þýðir það fyrir skilnaðarbarnið Ísland? Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir Skoðun Greiningar eða lausnir – hvort vegur þyngra? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Bless bless jafnlaunavottun Sigríður Margrét Oddsdóttir Skoðun Allt leikur í umburðarlyndi – eða hvað? Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson Skoðun Rétt skal vera rétt um gatnamót við Höfðabakka og Bæjarháls Dóra Björt Guðjónsdóttir Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Innleiðum birgðaskyldu á eldsneyti Halla Hrund Logadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Vaxtamunarviðskipti láta aftur á sér kræla Jökull Sólberg Auðunsson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Innleiðum birgðaskyldu á eldsneyti Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Rétt skal vera rétt um gatnamót við Höfðabakka og Bæjarháls Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Háskólasamfélagið geri skyldu sína strax, stjórnvöld hafa brugðist Auður Magndís Auðardóttir,Elí Hörpu og Önundar,Eyrún Ólöf Sigurðardóttir,Helga Ögmundardóttir,Íris Ellenberger,Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir,Katrín Pálmad. Þorgerðardóttir skrifar Skoðun Þúsundir kusu Sönnu Anna Bentína Hermansen Einarsdóttir,Ármann Hákon Gunnarsson,Baldvin Björgvinsson,Brynja Guðnadóttir,Haraldur Ingi Haraldsson,Jón Hallur Haraldsson,Kolbrún Erna Pétursdóttir,Ólafur H. Ólafsson,Rakel Hildardóttir,Sigrún Jónsdóttir skrifar Skoðun NATO riðar til falls en hvað þýðir það fyrir skilnaðarbarnið Ísland? Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Græðgin í forgrunni Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Greiningar eða lausnir – hvort vegur þyngra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sterk staða Hafnarfjarðar Orri Björnsson skrifar Skoðun Bless bless jafnlaunavottun Sigríður Margrét Oddsdóttir skrifar Skoðun Miðstýrt skólakerfi eða fjölbreytni með samræmdu gæðamati? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Heiðursgestur Viðreisnar vill heimsveldi Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Veðmál barna – hættulegur leikur sem hægt er að stöðva Jóhann Steinar Ingimundarson skrifar Skoðun Allt leikur í umburðarlyndi – eða hvað? Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson skrifar Skoðun Lyfjafræðingar - traustur stuðningur í flóknum heimi Sigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkt „plan“ fyrir íslensk heimili Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Ísland og móðurplanta með erindi Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Háttvirta nýja þingkonan, María Rut Kristinsdóttir Ólafur Grétar Gunnarsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur krabbameinsrannsókna – eitthvað sem mig varðar? Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Af hverju ættum við að stunda geðrækt, rétt eins og líkamsrækt? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Villa um fyrir bæjarbúum Vilhjálmur Árnason skrifar Skoðun Olíufyrirtækin vissu Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Pistil eftir frétt um Davíð Tómas körfuknattleiksdómara Sigurður Ólafur Kjartansson skrifar Skoðun Bullandi hallarekstur í Hafnarfirði Jón Ingi Hákonarson skrifar Skoðun Styrkjum stöðu leigjenda Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Hættulegustu tækin í umferðinni Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi Sesselja segja? Hallbjörn V. Fríðhólm skrifar Skoðun Vaxtastefna Seðlabankans – á kostnað launafólks Hilmar Harðarson skrifar Skoðun Suður-Íslendinga sögurnar Hans Birgisson skrifar Skoðun Íhlutun Bandaríkjanna í Venesúela: Auðlindaránið í heimsvaldastefnunni og hræsnin í „stríðinu gegn fíkniefnum“ Sæþór Benjamín Randalsson skrifar Sjá meira
Þúsundir kusu Sönnu Anna Bentína Hermansen Einarsdóttir,Ármann Hákon Gunnarsson,Baldvin Björgvinsson,Brynja Guðnadóttir,Haraldur Ingi Haraldsson,Jón Hallur Haraldsson,Kolbrún Erna Pétursdóttir,Ólafur H. Ólafsson,Rakel Hildardóttir,Sigrún Jónsdóttir Skoðun
NATO riðar til falls en hvað þýðir það fyrir skilnaðarbarnið Ísland? Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Innleiðum birgðaskyldu á eldsneyti Halla Hrund Logadóttir skrifar
Skoðun Rétt skal vera rétt um gatnamót við Höfðabakka og Bæjarháls Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar
Skoðun Háskólasamfélagið geri skyldu sína strax, stjórnvöld hafa brugðist Auður Magndís Auðardóttir,Elí Hörpu og Önundar,Eyrún Ólöf Sigurðardóttir,Helga Ögmundardóttir,Íris Ellenberger,Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir,Katrín Pálmad. Þorgerðardóttir skrifar
Skoðun Þúsundir kusu Sönnu Anna Bentína Hermansen Einarsdóttir,Ármann Hákon Gunnarsson,Baldvin Björgvinsson,Brynja Guðnadóttir,Haraldur Ingi Haraldsson,Jón Hallur Haraldsson,Kolbrún Erna Pétursdóttir,Ólafur H. Ólafsson,Rakel Hildardóttir,Sigrún Jónsdóttir skrifar
Skoðun NATO riðar til falls en hvað þýðir það fyrir skilnaðarbarnið Ísland? Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju ættum við að stunda geðrækt, rétt eins og líkamsrækt? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Pistil eftir frétt um Davíð Tómas körfuknattleiksdómara Sigurður Ólafur Kjartansson skrifar
Skoðun Íhlutun Bandaríkjanna í Venesúela: Auðlindaránið í heimsvaldastefnunni og hræsnin í „stríðinu gegn fíkniefnum“ Sæþór Benjamín Randalsson skrifar
Þúsundir kusu Sönnu Anna Bentína Hermansen Einarsdóttir,Ármann Hákon Gunnarsson,Baldvin Björgvinsson,Brynja Guðnadóttir,Haraldur Ingi Haraldsson,Jón Hallur Haraldsson,Kolbrún Erna Pétursdóttir,Ólafur H. Ólafsson,Rakel Hildardóttir,Sigrún Jónsdóttir Skoðun
NATO riðar til falls en hvað þýðir það fyrir skilnaðarbarnið Ísland? Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir Skoðun