Margir óviðræðuhæfir Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 14. október 2023 07:33 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast í nótt. Vísir/Vilhelm Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði ölvaðan ökumann í Háaleitishverfi í Reykjavík í gærkvöldi. Ökumaðurinn reyndi að villa um fyrir lögreglu með því að skipta um sæti.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í dagbók lögreglu. Ökumaðurinn neitaði einnig að segja til nafns. Var hann fluttur á lögreglustöð þar sem blóðsýni var tekið og gaf hann að lokum upp nafn að sögn lögreglu. Þá hafði lögregla afskipti af fólki vegna töluverðrar ölvunar. Maður sem var til vandræða í 101 Reykjavík var handtekinn og vistaður í fangaklefa. Hann var meðal annars búinn að valda eignarspjöllum og var óviðræðuhæfur vegna ástands. Annar maður var handtekinn í sama hverfi en hann er sagður hafa verið með hótanir. Var hann vistaður í fangaklefa. Kona sem féll á höfuð í sama hverfi var flutt á slysadeild þar sem hún slaut skurð við fallið. Skemmtistað lokað Lögregla hafði auk þess afskipti af manni í Hlíðunum þar sem hann var til vandræða að sögn lögreglu. Hann er sagður hafa verið í mjög annarlegu ástandi og í engu ástandi til að vera úti á meðal almennings. Hann var handtekinn og vistaður í fangaklefa. Þá lokaði lögregla skemmtistað í miðbænum. Öllum gestum var vísað út þar sem nokkur fjöldi ungmenna var inn á staðnum. Forráðamenn staðarins eiga að sögn lögreglu von á kæru vegna málsins. Lögregla handtók mann í Kópavogi vegna meiriháttar líkamsárásar. Var maðurinn vistaður í fangaklefa. Annar maður var auk þess handtekinn í Hólahverfi í Reykjavík. Lögregla segir manninn hafa verið algjörlega óviðræðuhæfan sökum ástands og vistaður í fangaklefa.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Allt í loft upp í Færeyjum vegna Suðureyjarganga Erlent Níu í lífshættu eftir stunguárásina Erlent Segir hernum að undirbúa árás á Nígeríu Erlent Keypti stól í Góða hirðinum sem reyndist fágætur gripur Innlent Nokkrar milljónir horfnar á örfáum vikum Innlent Ölvaður undir stýri með börn í bílnum Innlent Stúlka fannst á lífi í kassa í órafjarlægð frá heimili sínu Erlent Andrew sviptur síðustu hernaðartigninni Erlent Drónaumferð við herstöð í Belgíu Erlent Fjórir útskrifaðir af spítala en tveir enn í lífshættu Erlent Fleiri fréttir Hundrað þúsund færri kindur í dag en fyrir tíu árum Dökk mynd í byggingariðnaði, umsvif RÚV og fækkun fjár Losun gróðurhúsalofttegunda jókst í Reykjavík Húsnæðismálin og staða Ríkisútvarpsins Ölvaður undir stýri með börn í bílnum Kosningahugur í eigendum frístundahúsa Keypti stól í Góða hirðinum sem reyndist fágætur gripur Getur gervigreindarsmjaður leitt til gervigreindargeðrofs? Söguleg óvissa á fasteignamarkaði og meðvirk gervigreind Óttast að námsbraut verði undir verði af frumvarpinu Kostnaður við stjórnsýslu borgarinnar mun hærri en landsmeðaltalið Tveir fá heilablóðfall á hverjum degi á Íslandi Breytingar sem litlu breyta og mokstursmenn þakka veðurguðunum Líta eigi á eignir landsbyggðafólks í Reykjavík sem sumarbústaði Sendi síðasta bréfið degi áður en fellibylurinn gekk yfir Borgin tekur út framkvæmdir við Vesturbæjarlaug Nokkrar milljónir horfnar á örfáum vikum Tilkynnt um bíl fullan af flugeldum Valhöll auglýst til sölu Rændur fyrir utan Costco um hábjartan dag Handtóku menn á tvítugsaldri vegna stórfelldrar fölsunar rafrænna skilríkja „Þetta er búið að ræna okkur innri ró“ Reiði meðal lögreglumanna Lögreglan vill ná tali af þessu fólki Lögreglustjóri situr sem fastast og spáin gerir krökkunum grikk Vonast til að geta bjargað föstum hnúfubak í fyrramálið Fagnar komu Dags um borð í evrubátinn Nær öllu innanlandsflugi aflýst Kúgaðist og öskurgrét yfir lýsingum sonarins Seðlabankinn rýmkar lánþegaskilyrði Sjá meira