Meistararnir unnu loksins sinn fyrsta sigur Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 3. október 2023 22:43 Stórmeistarar Atlantic unnu loksins sinn fyrsta sigur á tímabilinu er liðið mætti Breiðablik í þriðju umferð Ljósleiðaradeildarinnar í Counter-Strike í kvöld.
Viðureignin fór fram á Overpass þar sem Breiðablik tók fyrstu lotu, en þeir hófu leikinn í vörn. Atlantic sló þó ekki slöku við og kom sér fljótt aftur inn í leikinn og tók þá þrjár lotur í röð, staðan þá 1-3. Blikar svöruðu Atlantic-mönnum þá í sömu mynt og tóku þrjár lotur til baka. Atlantic fór þá að spila ögn djarfari sóknarleik og sigraði Blika í mörgum einvígum. Sóknarspil þeirra borgaði sig heldur betur en þeir tóku allar lotur nema tvær sem eftir lifði hálfleiks. Staðan í hálfleik: 6-9 Atlantic kom sér fyrir í varnarstöður í seinni hálfleik, en Blikar tóku þó skammbyssulotuna eins og í fyrri hálfleik. Áfram unnu Blikar lotur og komu leiknum í jafna stöðu; 9-9. Blikar svöruðu öllu sem Atlantic spilaði fram vel í byrjun seinni hálfleiks en Atlantic náði þó að vinna sig í gegnum leikmenn Breiðabliks og tók lotur til baka. Í stöðunni 11-11 setti Atlantic í næsta gír og stjórnaði leiknum vel og sókn Breiðabliks hafði engin svör. Atlantic spilaði af meira og meira öryggi eftir því sem sigurinn færðist nær og eftir spennandi byrjun á seinni hálfleik varð hann einsleitur undir lokin og Atlantic tók sinn fyrsta sigur á tímabilinu. Lokatölur: 11-16 Fyrsti sigur Atlantic er þar með staðreynd en leikmenn Breiðabliks munu velta því fyrir sér hvernig þeir hefðu getað spilað lokaloturnar betur. Þó þurfa þeir að sætta sig við 9. sæti deildarinnar þar sem Atlantic er fyrir ofan þá, þó jafnir þeim á stigum. Stórmeistararnir í Atlantic geta þó andað ögn léttar, en þeir eiga þó stórt verkefni frammi fyrir sér ef þeir vilja eiga erindi í toppslaginn á þessu tímabili.
Rafíþróttir Ljósleiðaradeildin Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport