Fyrsta rafskútuborg Evrópu bannar þær Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 31. ágúst 2023 23:39 7,5 prósent Parísarbúa fengu vilja sínum framgengt. EPA-EFE/TERESA SUAREZ Rafhlaupahjól verða bönnuð á götum Parísarborgar frá og með morgundeginum. Hafa starfsmenn rafhlaupahjólaleiga unnið að því síðustu daga að ná í síðustu hjólin á götum borgarinnar og ferja þau á brott.
Í umfjöllun Guardian kemur fram að fimm ár séu síðan París varð fyrsta borgin í Evrópu til þess að heimila rafhlaupahjól á deilimarkaði. 15 þúsund hjól hafi verið á götum borgarinnar sem hægt hafi verið að skilja eftir hvar sem er síðan 2018. Hjólin hafa reynst afar umdeild í borginni síðustu ár og hefur borgaryfirvöldum borist gríðarlegur fjöldi kvartana vegna hjóla sem skilin hafa verið eftir á götum borgarinnar. Borgaryfirvöld hertu reglur vegna hjólanna árið 2020. Þá var haldin atkvæðagreiðsla meðal borgarbúa um hjólin í apríl síðastliðnum, hvort leyfa ætti þau áfram eða banna þau alfarið. Anne Hidalgo, borgarstjóri Parísar, efndi til atkvæðagreiðslunnar. Einungis 7,5 prósent íbúa tóku þátt í atkvæðagreiðslunni en 90 prósent þeirra studdi bann. Í umfjöllun Guardian kemur fram að notendur hjólanna hafi nýtt þau til að ferðast stuttar vegalengdir. Óljóst sé hvaða fararmáta notendur þeirra muni nú nýta sér. Borgaryfirvöld eru sögð áhyggjulaus vegna málsins, þau telji að almenningssamgöngur og hjólreiðaakreinar muni næga til að koma notendum rafhlaupahjólanna leiðar sinnar.
Frakkland Samgöngur Rafhlaupahjól Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Sjá meira