Bikarmeistararnir gerðu jafntefli í Mosfellsbænum Smári Jökull Jónsson skrifar 17. ágúst 2023 21:31 Víkingskonur gerðu jafntefli í kvöld. Vísir/Hulda Margrét Afturelding og bikarmeistarar Víkings gerðu 2-2 jafntefli í Lengjudeild kvenna í kvöld. Þá vann Fylkir stórsigur á Augnabliki og er líka með í baráttunni.
Víkingar urðu á dögunum bikarmeistarar kvenna eftir frækinn sigur á Breiðablik í úrslitum. Í kvöld var liðið hins vegar mætt í baráttuna í Lengjudeildinni á ný og mætti Aftureldingu á útivelli. Hlín Heiðarsdóttir kom Aftureldingu yfir á 5. mínútu leiksins í kvöld en Mosfellingar þurftu nauðsynlega á sigri að halda til að missa liðin fyrir ofan sig ekki of langt frá sér. Hulda Ösp Ágústsdóttir jafnaði metin á 65. mínútu en Maya Neal kom Aftureldingu yfir á nýjan leik átta mínútum fyrir leikslok. Á lokamínútunni jafnaði Hulda Ösp metin fyrir Víkinga sem komust síðan mjög nálægt því að jafna metin en áttu skot í slá og síðan framhjá úr dauðafærum. Lokatölur 2-2 og Afturelding nú búið að missa liðin fyrir ofan sig lengra frá sér í töflunni. Víkingar eru enn á toppnum og með fjögurra stiga forskot á Fylki og HK sem eru í öðru og þriðja sæti deildarinnar. Fylkir vann stórsigur á Augnablik á heimavelli og heldur því öðru sætinu. Tinna Harðardóttir og Erna Sólveig Sverrisdóttur komu Fylki í 2-0 áður en Edith Kristín Kristjánsdóttir minnkaði muninn. Fylkir bætti hins vegar þremur mörkum við fyrir hálfleik. Eva Rut Ásþórsdóttir skoraði fyrst en Guðrún Karítas Sigurðardóttir bætti tveimur mörkum við. Í síðari hálfleik skoraði Eva Rut síðan sitt annað mark áður en Birna Kristín Eiríksdóttir innsiglaði sigurinn. Lokatölur 7-1 og Fylkir nú aðeins þremur stigum á eftir toppliði Víkinga í öðru sæti deildarinnar. Upplýsingar um markaskorara í leik Fylkis og Augnabliks eru fengnar af Fótbolti.net
Íslenski boltinn Lengjudeild kvenna Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Fleiri fréttir Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Sjá meira