Stubb stefnir á forsetann Atli Ísleifsson skrifar 16. ágúst 2023 09:10 Alexander Stubb var forsætisráðherra landsins á árunum 2014 til 2015. EPA Alexander Stubb, fyrrverandi forsætisráðherra Finnlands, hefur tilkynnt að hann muni bjóða sig fram sem forseti landsins á næsta ári.
Stubb greindi frá því á fréttamannafundi í morgun þar sem hann sagðist vera reiðubúinn að vera frambjóðandi hægriflokksins Þjóðarflokksins. „Þegar föðurlandið kallar þá býður maður sig fram,“ sagði Stubb í morgun. Fréttirnar koma ekki á óvart eftir að Petteri Orpo, forsætisráðherra Finnlands og formaður Þjóðarflokksins, greindi frá því fyrr í vikunni að flokkurinn myndi standa heilshugar á bakvið slíkt framboð Stubb. Stubb var forsætisráðherra landsins á árunum 2014 til 2015 en gegndi á þingferli sínum einnig meðal annars embætti utanríkisráðherra og fjármálaráðherra. Forsetakosningar fara fram í Finnlandi þann 28. janúar á næsta ári og ef enginn nær hreinum meirihluta verður önnur umferð tveimur vikum síðar. Nýr forseti mun svo taka við embættinu þann 1. mars. Sauli Ninistöö Finnlandsforseti tók við embættinu árið 2012 og var endurkjörinn 2018. Forsetar í Finnlandi mega að hámarki sitja tvö kjörtímabil, en forsetakosningar fara fram í landinu á sex ára fresti. Finnlandsforseti er með talsverð völd þegar kemur að utanríkis- og varnarmálum, en völd forseta hafa á síðustu árum færst í auknum málum yfir til ríkisstjórnarinnar.
Finnland Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Fleiri fréttir Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Sjá meira