Reyna að vinna fyrsta gervigrasleikinn sinn í 654 daga Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. júní 2023 12:31 Vuk Oskar Dimitrijevic og félagar í FH verða að fara að komast yfir gervigrasgrýluna í liðinu. Vísir/Hulda Margrét FH-ingar heimsækja nágranna sína í Stjörnunni í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld en leikurinn fer fram á gervigrasvelli Garðbæinga. Leikurinn hefst klukkan 19.15 og er sýndur beint á Stöð 2 Sport. Tveir síðustu leikir þrettándu umferðar fara fram í kvöld en á sama tíma tekur Fylkir á móti Víkingi. FH-ingar hefur gengið mjög illa á gervigrasvöllum undanfarin tvö tímabil svo ekki sé meira sagt. FH-ingar hafa ekki unnið deildarleik á gervigrasi síðan 13. september 2021. Síðan hefur FH spilað tólf leiki á gervigrasi og uppskeran eru tvö stig. Þetta þýðir að aðeins 2 af 46 stigum FH undanfarin tvö tímabil hafa unnist á gervigrasi eða að 96 prósent stiga FH-inga hafa komið í hús á náttúrulegu grasi. Síðasti sigur FH-inga á gervigrasi kom einmitt í hús á Stjörnuvellinum í september 2021 þegar Hafnarfjarðarliðið vann 4-0 sigur. FH varð manni fleiri frá 40. mínútu í þeim leik. Enginn af markaskorurum FH í leiknum, Matthías Vilhjálmsson (2 mörk), Baldur Logi Guðlaugsson og Jónatan Ingi Jónsson eru enn hjá félaginu. Jónatan Ingi er úti í atvinnumennsku, Matthías er hjá Víkingi og Baldur spilar með Stjörnunni.
Leikurinn hefst klukkan 19.15 og er sýndur beint á Stöð 2 Sport. Tveir síðustu leikir þrettándu umferðar fara fram í kvöld en á sama tíma tekur Fylkir á móti Víkingi. FH-ingar hefur gengið mjög illa á gervigrasvöllum undanfarin tvö tímabil svo ekki sé meira sagt. FH-ingar hafa ekki unnið deildarleik á gervigrasi síðan 13. september 2021. Síðan hefur FH spilað tólf leiki á gervigrasi og uppskeran eru tvö stig. Þetta þýðir að aðeins 2 af 46 stigum FH undanfarin tvö tímabil hafa unnist á gervigrasi eða að 96 prósent stiga FH-inga hafa komið í hús á náttúrulegu grasi. Síðasti sigur FH-inga á gervigrasi kom einmitt í hús á Stjörnuvellinum í september 2021 þegar Hafnarfjarðarliðið vann 4-0 sigur. FH varð manni fleiri frá 40. mínútu í þeim leik. Enginn af markaskorurum FH í leiknum, Matthías Vilhjálmsson (2 mörk), Baldur Logi Guðlaugsson og Jónatan Ingi Jónsson eru enn hjá félaginu. Jónatan Ingi er úti í atvinnumennsku, Matthías er hjá Víkingi og Baldur spilar með Stjörnunni. Síðustu tólf gerigrasleikir FH-inga í Bestu deildinni: - 2023 - 1-1 jafntefli á móti Val 0-2 tap fyrir Víkingi 2-4 tap fyrir KA 2-4 tap fyrir Fylki 2-2 jafntefli á móti Fram - 2022 - 0-3 tap fyrir Fram 1-2 tap fyrir Stjörnunni 0-2 tap fyrir Val 0-1 tap fyrir Fram 0-1 tap fyrir KA 0-3 tap fyrir Breiðabliki 1-2 tap fyrir Vikingi
Síðustu tólf gerigrasleikir FH-inga í Bestu deildinni: - 2023 - 1-1 jafntefli á móti Val 0-2 tap fyrir Víkingi 2-4 tap fyrir KA 2-4 tap fyrir Fylki 2-2 jafntefli á móti Fram - 2022 - 0-3 tap fyrir Fram 1-2 tap fyrir Stjörnunni 0-2 tap fyrir Val 0-1 tap fyrir Fram 0-1 tap fyrir KA 0-3 tap fyrir Breiðabliki 1-2 tap fyrir Vikingi
Besta deild karla FH Mest lesið Bláir í rauðu hafi: „Eins og við værum boðflennur í einkapartýi“ Handbolti Allir sérfræðingar TV 2 með Gísla í úrvalsliðinu Handbolti Gidsel gefur lítið fyrir tuð Þjóðverja Handbolti Segir Dag hafa beðist afsökunar Handbolti Danir láta Gísla heyra það eftir gagnrýni: „Haltu kjafti Ísland“ Handbolti Svaf yfir sig og missti af rútunni Handbolti „Mér var nákvæmlega sama um þetta allt saman“ Handbolti Efins um Pargo-skiptin: „Held að þetta sé ekki rétt hjá þeim“ Körfubolti Utan vallar: Af hverju töpuðu hetjurnar okkar gegn Dönum? Sport „Ég nenni ekki að eyða orku í þetta EHF lið“ Handbolti Fleiri fréttir Íslandsmeistararnir byrja vel og KR sótti sigur á Akureyri Valur er Reykjavíkurmeistari árið 2026 Davíð Smári sækir fleiri leikmenn úr bikarævintýrinu Varafyrirliða FH sagt að finna sér nýtt félag Berglind Björg ólétt Fram fær liðsstyrk úr Mosó og markvörðurinn framlengir Heiðdís leggur skóna á hilluna Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Blikar farnir að fylla í skörðin Víkingur og Breiðablik mætast í fyrsta leik Bestu deildarinnar Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Tveir ungir varnarmenn til FH Kristín Dís áfram í herbúðum Blika Sjá meira