Þrenna frá Colbert gegn toppliðinu | Fram náði í mikilvæg stig Smári Jökull Jónsson skrifar 21. júní 2023 21:31 Grindavík náði í jafntefli gegn Víkingi í kvöld. Facebooksíða Knattspyrnudeildar UMFG Jada Colbert skoraði þrjú mörk fyrir Grindavík sem gerði 3-3 jafntefli við topplið Víkings í Lengjudeild kvenna í kvöld. Þá náði Fram í mikilvæg stig í botnbaráttunni.
Grindavík kom fullt sjálfstrauts til leiks í Víkinni í kvöld enda með sigur gegn HK í síðustu umferð í farteskinu en það var fyrsti tapleikur HK í sumar. Víkingar voru í toppsætinu með sex sigra eftir sjö umferðir og áhugaverður leikur framundan. Það var alvöru skemmtun sem var boðið upp á. Jada Colbert kom Grindavík yfir á 6. mínútu leiksins en Nadía Atladóttir kom Víkingum í 2-1 með tveimur mörkum á þriggja mínútna kafla. Colbert skoraði sitt annað mark rétt fyrir hálfleik og en á 44. mínútu skoraði Sigdís Eva Bárðardóttir þriðja mark Víkinga og staðan í hálfleik 3-2. Það var ekki jafn mikið fjör í síðari hálfleik. Grindavík tókst þó að jafna á 71. mínútu og að sjálfsögðu var það Jada Colbert sem fullkomnaði þrennuna. Lokatölur í Víkinni 3-3 en Víkingar eru enn í toppsæti Lengjudeilarinnar og Grindavík lyfti sér upp í 5.sætið með jafnteflinu. Í Úlfarsárdal tók Fram, sem sat í fallsæti fyrir leikinn, á móti nágrönnum sínum úr Aftureldingu sem var um miðja deild. Breukelen Woodard kom Fram yfir á lokamínútu fyrri hálfleiks og Ólína Sif Hilmarsdóttir tvöfaldaði forystu Fram á 70. mínútu. Í uppbótartíma minnkaði Inga Laufey Ágústsdóttir muninn fyrir Aftureldingu en það dugði ekki til. Lokatölur 2-1 og Fram er nú komið uppfyrir KR í tölfunni og úr fallsæti. Upplýsingar um markaskorara eru fengnar á Fótbolti.net
Lengjudeild kvenna Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Fleiri fréttir Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Sjá meira