Albert Einstein vs. Ásgeir Jónsson Ole Anton Bieltvedt skrifar 26. maí 2023 07:01 1. Ein kenninga Alberts Einstein var, að, ef menn gerðu sama hlutinn aftur og aftur og væntu breytilegra, eða annarra og kannske betri niðurstaðna, mætti telja það andlega skerðingu, vitfirru. Nú er Ásgeir Jónsson búinn að hækka stýrivexti þrettán sinnum, á tveimur árum, til að reyna að slökkva verðbólgubálið, en verðbólgan bara eykst. A. Hvað skyldi Einstein hafa sagt um þessa viðleitni Ásgeirs? B. Getur verið, að yfirkeyrðar stýrivaxtahækkanir virki sem olía á eldinn í stað vatns? 2. Það er þekkt eðlisfræðilegt fyrirbrigði, staðreynd, að sum efni eða læknislyf virka til betrunar og lækningar heilsubrests eða sjúkdóms í litlu og hæfilegu magni, en, við aukið magn, snúist áhrif við, valda vaxandi vanlíðan og veikindum, og, við enn stærri skammt, verði þau banvæn? Gæti verið, að stýrivaxtahækkunaraðferðin lúti kannske svipuðu lögmáli? Í Noregi var verðbólgan um skeið svipuð og hér. Milli 7 og 8% í janúar sl. Seðlabankastjóri Noregs hækkaði stýrivexti hægt og hóflega. Nú eru stýrivextir þar 3,25% og verðbólga 6,4%. Hér eru stýrivextir 8,75% og verðbólga 9,9%. Norska krónan hefur samt verið afar veik. Hún hefur veikst um 10% gagnvart Evru síðan í janúar. Hvað segir þetta okkur? 3. Ef grípa á inn í hagkerfi, draga úr verðbólgu, væri það fyrir undirrituðum bæði siðferðislega og lagalega réttara, að láta aðgerðina gilda eingöngu fram á við; ekki vera afturvirka!? Bara fyrir ný lán!? Með því að láta eða leyfa viðskiptabönkunum að hækka vexti umsaminna og frágenginna, tekinna, lána, er um afturvirk áhrif að ræða; lántakendur eru keyrðir upp að vegg með aukin, eða stóraukin, útgjöld, sem aldrei var samið skýrt og skorinort um; þarna er gengið hart á hagsmuni þeirra og afkomu með afturvirkum og íþyngjandi hætti. Ég veit ekki, hvað Einstein hefði fundist um þetta, en augljóslega gerir Ásgeir Jónsson ekkert með það stórfellda óréttlæti, sem stór hluti þjóðarinnar er með þessu beittur. 4. Skv. 72. grein stjórnarskrár er eignarrétturinn friðhelgur, og það er meginregla íslenzks réttarfars, að afturvirkni laga eða stjórnsýsluaðgerða sé bönnuð. Telur Ásgeir Jónsson, að vaxtahækkanir með alvarlega íþyngjandi afturvirkum áhrifum standist þessa stjórnarskrárgrein og þessa meginreglu íslenzks réttarfars? Hér má kannske minna hagfræðinginn á þá skilgreiningu Garðars Gíslasonar í bók hans „Eru lög nauðsynleg“: „Lög frá lagasetningarvaldi (ég segi stjórnsýsluvaldi) skulu vera skýr og skiljanleg, gerð kunnug með opinberri birtingu, og þau skulu gilda eftirleiðis, fram í tímann og ekki aftur í tímann“. Hvað skyldi fyrrverandi forseti Hæstaréttar, Garðar Gíslason, segja um þessar afturvirku vaxtahækkanaaðgerðir Ásgeirs, nú alls þrettán á tveimur árum, allar með afturvirkum og alvarlega íþyngjandi áhrifum!? Er þetta allt kannske kolólöglegt, ef ekki lagalega, þá alla vega siðferðislega!? 5. Ef launahækkanir hjá brauðgerð leiða til þess, að framleiðslukostnaður brauðsins hækkar um 10%, þá segir Ásgeir Jónsson, að þarna séu launahækkanir að kynda undir verðbólguna, séu olía á verðbólgueldinn. Þegar Ásgeir Jónsson, hins vegar, hækkar vexti, þannig, að brauðgerðarkostnaðurinn hækkar um 10%, þá fullyrðir hann, að verið sé að draga úr verðbólgu; nú sé hinn aukni framleiðslukostnaður, vegna vaxtahækkunarinnar, til þess fallinn að slökkva verðbólgueldinn. Gott væri, að fá þetta útskýrt. Ég er reyndar enginn Einstein, en fyrir mér er þessi framgangur og aðferðafræði, þessi hagspeki og peningastefna, frekar í ætt við aðferðafræði fáráleikans en eitthvað skynsamlegt og uppbyggilegt. 6. Nú liggur það fyrir, að vaxtahækkanir lenda eingöngu á þeim, sem skulda. Þeir, sem skulda, eru oftast þeir, sem minnst eiga, eru fátækastir og þurfa að sækja fé til fjármagnseigenda til að geta lifað og starfað. Í einkalífi og fyrirtækjarekstri. Eftir þá miklu verðbólgu, sem geysað hefur, og þá stórfelldu auknu greiðslubirgði, sem skuldarar hafa þurft að taka á sig, ætti að vera ljóst, að það eru ekki skuldarar landsins, sem eru að kynda upp verbólguna. Þeir hafa til þess engan mátt eða getu. Vaxtahækkanir hafa því engin áhrif á aukna þenslu, sem stafar af þeirra neyslu og eyðslu. Þeir sem ekkert skulda, hins vegar, eiga sínar eignir og eru með sín fjárráð öll, líka reiðufjármál, kannske góð eða verulega góð, skuldlaus, verða yfir höfuð ekki fyrir vaxtahækkuninni. Hún hefur engin áhrif á þá. Þeir skulda ekkert. Þeir halda því áfram, að “eyða og spreða“, henda sér til Tene eða Flórída, að vild, gefa skít í allar vaxtahækkanir Ásgeirs. Einhver hefði kallað þessa vaxtahækkanatilburði og -dans Ásgeirs Jónssonar hrunadans. Það var bæði sorlegt og um leið meinfyndið, að lesa í dag yfirlýsingu íslenzkufræðingsins Katrínar Jakobsdóttur i Morgunblaðinu: „Stjórnin styður Seðlabankann“. Er þá ríkisstjórnin að styðja Seðlabakann gegn skuldurum landsins? Katrín hefði kannske átt að snúa sér aftur að tungumálakennslu og fara svo líka meira í reifaraskrif. 7. Í eina tíð héldu færustu vísindamenn, að jörðin væri flöt. Læknavísindin byggðu líka á því, á sínum tíma, að blóðtaka af sjúklingi væri allsherjar lækning og lausn. Eins og stýrivaxtahækkanir Seðlabanka nú. Gæti það verið, að hagspeki Ásgeirs Jónssonar, sem reyndar byggist nokkuð á aldagömlum kenningum Keyne, fædds 1883, og, jafnvel, fræðum og kenningum Adams Smith, fædds 1723, sé að nokkru eða verulegu leyti úr takt við tímann; byggist á allt annarri þjóðfélagsgerð og allt öðru hagkerfi, en nú er? Hvaðan hagfræðispeki Katrínar Jakobsdóttur kemur, er ekki vitað. 8. Að lokum þessi spurning til Ásgeirs Jónassonar: Í viðtali við Morgunblaðið í júlí 2019, þegar hann tók við embætti seðlabankastjóra, sagðir hann: „Rétturinn til að gefa út eigin mynt er grundvallarhluti af fullveldi hvers lands“. Krónan væri sem sagt nauðsynleg, mikilvæg og fín. Skyldi hann trúa þessu enn!? Hafa ríkin 26, sem nýta sér Evruna, sem sitt gjaldmiðilsverkfæri, þar sem stýrivextir eru nú 3,75% og verðbólga 6,9%, þá hafa afsalað sér fullveldi sínu!? Höfundur er alþjóðlegur kaupsýslumaður og samfélagsrýnir. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ole Anton Bieltvedt Mest lesið Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson Skoðun Skoðun Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? skrifar Skoðun Hugmyndakassinn Perla Hafþórsdóttir skrifar Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Óðinn heldur fyrir heila augað Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar skrifar Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir skrifar Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Sjá meira
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar
Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun