Þegar menn selja sálu sína Ole Anton Bieltvedt skrifar 14. maí 2023 18:01 Ég hef haft þá tilfinningu, að formaður Verkalýðsfélags Akraness og Starfsgeinasambandsins, Vilhjálmur Birgisson, sé góður maður og gegn, vænn og velviljaður gagnvart „Guði og mönnum“ - dýr, umhverfi, náttúra og lífríki jarðar meðtalin -, ekki maður peningahyggju og græðgi, hvorki fyrir hönd sjálfs sín né annarra. Framganga hans og málflutningur í hvalveiðimálum, sem hann styður og mælir með, með ráðum og dáð, eins og á mála hjá Kristjáni Loftssyni væri, er mér því mikil undrun og vonbrigði. Lengi má manninn reyna. Ljóðlína úr Hávamálum rifjast upp: „Margur verður af aurum api“. Vilhjálmur réttlætir málstað sinn og baráttuna fyrir áframhaldandi hvalveiðum með því, að 90 starfsmenn Hvals hf séu í Verkalýðsfélagi Akraness, þeir hafi miklar og góðar tekjur af starfi sínu, borgi útsvar og skatta, mikið fé, af þessum tekjum. Kannske rennur eitthvað líka til Verkalýðsfélagsins. Þessi afstaða er því hrein peningahyggja, og er þetta enn eitt dæmi þess, að tilgangurinn helgar meðalið, líka þó ljótt og lágkúrulegt sé. Vilhjálmur bætir því svo við, svona til að reyna að vara andlitið, sýna sína mannúð og velvild til dýra, að enginn væri að leika sér að því að láta þess dýr þjást við veiðar. Þetta er auðvitað bara hreint froðusnakk, því Vilhjálmur og allir, sem vita vilja, vita full vel, að Hvalur hefur ekki getað og mun aldrei geta veitt hvali á manneskjulegan og dýravænan hátt, þannig, að þeir drepist án þjáningar í fyrsta skoti. Sú mynd, sem MAST dró nú upp af þeim hryllingi, sem þessar veiðar eru, er sennilega sú skásta, sem verið gat, því veiðimenn vissu, að eftirlitsmenn væru um borð, og vönduðu sig væntanlega eftir föngum, þó að þeir hafi augljóslega líka freistast til að veiða við ófullnægjandi skilyrði, sem auðvitað er lögbrot, en MAST lokar augunum fyrir. Hvalur neitaði á sínum tíma að skila veiðidagbókum fyrir veiðitímabilið 2014-2018, þrátt fyrir skyldu til þess skv. veiðileyfi - það var eitt af eindregnum og skýrum skilyrðum leyfisins -, og komst reyndar upp með það, eins og önnur lögbrot, en það er auðvitað vísbending um, að, annað hvort, hafi svo hrikalegar meiðingar og limlestingar átt sér stað á þessu veiðitímabili, að enginn mætti sjá þessar dagbækur, hvað sem það kostaði, eða þá, að veiðimenn hafi skotið og sært eða drepið alfriðaða steypireyði. Eitthvað leyndist þar svo illt og brennandi hættulegt fyrir Kristján Loftsson, að hann lét frekar ganga yfir sig sakfellingu fyrir sakadómi Lögreglustjórans á Vesturlandi, fyrir þetta brot, skv. sakamálakæru okkar í Jarðarvinum, heldur en að afhenda bækurnar. Og, ekki stóð á nýju leyfi, fyrir 2019-2023, af hendi ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur og Kristjáns Þórs Júlíussonar, þrátt fyrir það. Allt ein baneitruð D-B-VG spillingarsúpa. Vilhjálmur og allir aðrir sjá því og vita vel, að hrikalegr meiðingar og limlestingar eru og verða fastur liður í hvalveiðum. En, líka hjá Vilhjálmi, eins og mörgum öðrum tilfinningalitlum og kaldrifjuðum mönnum - oft hægrimenn og íhaldsmenn í pólitík, Vilhjámur virðist undarlegt nokk vera kominn í þann hóp -, eru það peningarnir sem telja og gilda; skítt með kvalræði saklausra og varnarlausra dýra, hér friðsamra og háþróaða risa úthafanna, spendýra, sem kenna hvert öðru, vinna saman og bindast nánum vina- og fjölskylduböndum. Inn í þess mynd kemur svo sú staðreynd, að hvalirnir spila stóra og mikilvæga rullu, ekki bara í lífríki hafsins, heldur líka jarðarinnar og lofthjúps. Þau eru í reynd ómissandi hluti af lífríkinu, en einn hvalur tekur til sín og geymir kolvetni á við 1.500 tré, og úrgangur og hræ hvala leggja neðstu lögum hafanna til grundvallar næringu, sem svif og aðrar frumverur þar lifa á og þróast svo í að vera grunnnæring fiska. Alþjóðlegi gjaldeyrissjóðurinn lagði mat á verðgildi hvala, út frá bæði vistfræðilegum og efnahagslegum sjónarmiðum, og komst að þeirri niðurstöðu, að hver hvalur væri USD 2ja milljóna virði; 270 milljóna. Aðeins 10 lifandi hvalir, hafa því það verðgildi, sem Hvalur hf fékk fyrir að drepa og selja hundruð hvala, nú í ár, eftir að hafa misþyrmt og limlest mörg þeirra, kvalið þá til dauða, af tilfinningaleysi og grimmd. Þessi dýr ættu auðvitað að eiga rétt á því, að fá að lifa eigin, náttúrulegu lífi, í friði fyrir yfirgangi, græðgi og grimmd manna, ekki bara sjálfra sín vegna, heldur náttúrunnar og lífríkisins – jarðarinnar – vegna. Sú hugmyndafræði Vilhjálms, og annarra - m.a. utanríkisráðherra, sem hefur fallið illilega á hvalveiðaprófinu og valdið mörgum undrun og vonbrigðum, með sínu tilfinningaleysi, kaldlyndi og ómengaðri efnahags-hyggju, sem þó stenzt heldur ekki hjá henni - að langreyðar séu náttúruauðlind Íslendinga, eru byggðar á grunnhyggju og vanþekkingu. Flestir hvalir fæðast við vestur strönd Afríku og flakka svo um heimshöfin. Langreyðar eru hér við land aðeins í par mánuði á ári, og tilheyra Íslendingum ekkert frekar eða meir en tugum eða hundruðum þjóða sitt hvoru megin Atlantsála, ef þeir þá tilheyra mönnum yfir höfuð. Það er í raun forneskjulegt og siðlaust sjónarmið, að önnur, háþróðuð og merkileg spendýr tilheyri okkur mönnum; hver gaf okkur þau, hvernig eignuðumst við þau, hver gaf okkur réttinn til að nota þau, nýta og misnota, líka með kvalræði og limlestingum? Auðvitað eiga önnur spendýr - við menn erum líka bara spendýr, reyndar þau gráðugustu og grimmustu -, rétt á að fá að lifa sínu eigin, sjálfstæðu og náttúruegu eigin lífi, í friði fyrir djöfulgangi manna. Ég hnýtti hér að ofan nokkuð í hægrimenn og íhaldsmenn. Því miður er það ekki af tilefnislausu. Það hefur marg sannast, líka hér, að í þeim hópi hafa hafa margir litla tilfinningu fyrir dýrum, náttúru og lífríki, þó að, án þess að þetta allt sé verndað og varðveitt, mun mannkynið ekki komast af. Skammvinnur gróði gildir. Í Katalóníu á Spáni var tekizt á um það 2010, hvort að banna ætti nautat þar. Hægri- og íhaldsflokkarnir, voru á móti banni, en miðju og vinstri öfl með. Þar snérist málið líka um stórfelldar tekjur, störf, skatta og skyldur, sem mikill hópur manna, frá ræktendum nautanna til eigenda nautaatsleikvanganna höfðu haft og vildu hafa. Þúsundir starfa í húfi. Þar réðu sömu sjónarmið og hjá Vilhjálmi Birgissyni. Peningurinn gildir. Skítt með kvalræði saklausra dýra, en, sem betur fer sigruðu Vilhjálmarnir ekki, heldur mannúðnð, virðing og velvild til dýra og náttúru, lífríkisins og, í víðari skilningi, jarðarinnar okkar. Norðmenn stunduðu loðdýrahald í 100 ár. Þar voru allt að 300 minnka- og refabú, þar sem dýrin voru haldin kvalarhaldi í litlum vírabúrum alla ævi og svo drepin með eiturgasi. Yfir ein milljón dýra var drepin árlega og skinn seld. Feykilegir fjárhagslegir hagsmunir, störf og afkoma á landsbyggðinni í húfi. En þar urðu Vilhjálmarnir líka undir, Guði sé lof. Síðasta loðdýrabúi Noregs var lokað 1. janúar sl. Þessi lokaorð: Vilhjálmur, heldurðu ekki, að Akurnesingar séu nægilega klárir og duglegir til að spjara sig, jafnvel vel, án þess að byggja afkomu sína á dýraníði!? Það gengur bara býsna vel hjá öðrum landsmönnum. Höfundur er stofanandi og formaður Jarðarvina, samtaka um dýra-, náttúru- og umhverfisvernd. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ole Anton Bieltvedt Hvalveiðar Mest lesið Halldór 31.10.26 Halldór Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun Skoðun Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? skrifar Skoðun Hugmyndakassinn Perla Hafþórsdóttir skrifar Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Óðinn heldur fyrir heila augað Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar skrifar Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir skrifar Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Sjá meira
Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir Skoðun
Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson Skoðun
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar
Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir Skoðun
Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson Skoðun
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun