Íslendingalið Bayern á toppinn eftir sigur í Íslendingaslag Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 25. mars 2023 19:56 Glódís Perla Viggósdóttir og stöllur hennar í Bayern München unnu gríðarlega mikilvægan sigur í kvöld. Adam Pretty/Getty Images Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leikinn í hjarta varnarinnar fyrir stórlið Bayern München er liðið vann gríðarlega mikilvægan 1-0 sigur gegn Wolfsburg í toppslag þýsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í kvöld.
Wolfsburg sat á toppi deildarinnar fyrir leik kvöldsins, aðeins tveimur stigum fyrir ofan Bayern sem sat í öðru sæti. Toppsæti deildarinnar var því undir. Eins og áður segir spilaði Glódís Perla allan leikinn fyrir Bayern í kvöld, en Sveindís Jane Jónsdóttir kom inn af varamannabekknum fyrir Wolfsburg þegar um hálftími var eftir af venjulegum leiktíma. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir sat allan tíman á varamannabekk Bayern. Það var að lokum Georgia Stanway sem skoraði eina mark leiksins þegar hún kom heimakonum í Bayern í forystu með marki af vítapunktinum rúmum fimm mínútum fyrir lok venjulegs leiktíma. Niðurstaðan varð því 1-0 sigur Bayern sem lyfti sér upp fyrir Wolfsburg á topp deildarinnar með sigrinum. Bayern er nú með 43 stig eftir 16 leiki, einu stigi meira en Wolfsburg sem situr í öðru sæti. 𝐖𝐇𝐀𝐓 𝐀 𝐖𝐈𝐍, what a team! 😍🔝of the table! 💪#FCBFrauen #FCBayern #MiaSanMia pic.twitter.com/VsevxLXBOj— FC Bayern Frauen (@FCBfrauen) March 25, 2023
Þýski handboltinn Mest lesið Hefur aldrei séð svona ofbeldi: „Þetta var allt of mikið“ Sport Sú besta í heimi komst ekki á blað hjá íslenska landsliðsþjálfaranum Fótbolti Dauðaslys í maraþonhlaupi Sport Brenndi á sér höndina áður en hann kýldi í borðið Sport Átta þúsund krónur fyrir miða á úrslitaleik HM í stað 529 þúsund Fótbolti Öðruvísi lið en áður hafa sóst í Frey: „Vita hvar ég stend“ Fótbolti Sagði fyrst nei við beiðni Kjartans: „Menn hálf skammast sín“ Körfubolti Eygló íþróttastjarna ársins í Reykjavík Sport Man United ósátt við Marokkó og FIFA Enski boltinn Enginn blóðugur en einn brjálaður á HM í kvöld Sport Fleiri fréttir Spilar áfram með Messi í Miami Snýr aftur á æfingar eftir 100 daga í burtu Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Ungstirnið skallaði meistarana áfram Vålerenga úr leik eftir tap fyrir stöllum Glódísar Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram Varði fjögur víti til að tryggja PSG titilinn Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur Fjórir frá hjá Blikum á morgun Benítez lét Sverri byrja og flaug áfram í bikarnum KSÍ missti af meira en milljarði króna City sagt ætla að keppa við Liverpool og United um Semenyo Nígeríumenn halda HM-draumnum á lífi með kvörtun til FIFA Man United ósátt við Marokkó og FIFA „Fyrir mér er Flamengo stærra en Real Madrid“ Átta þúsund krónur fyrir miða á úrslitaleik HM í stað 529 þúsund Sú besta í heimi komst ekki á blað hjá íslenska landsliðsþjálfaranum Sápan trolluð: „Þetta er þessi klikkhaus með röddina“ Félag Arnórs Ingva og Ísaks seldi þjálfara sinn Öðruvísi lið en áður hafa sóst í Frey: „Vita hvar ég stend“ Stjarnan fór í dulargervi: Setti stuðningsmann United á óþekka listann Milljarðs evra munur á liðunum: Börsungar lentu í brasi gegn þriðju deildar liði Garnacho skaut Chelsea áfram í undanúrslit Sjáðu flottasta mark í heimi árið 2025 Bonmatí og Dembele best í heimi Vísa á bug fullyrðingum Bruno sem hafa valdið fjaðrafoki Rodgers tekinn til starfa í Sádi-Arabíu Gestgjafar HM bjóða Íslandi heim í leik Hlaut 21 árs dóm fyrir að aka inn í skrúðgönguna í Liverpool Mbappé vann PSG og fær níu milljarða Sjá meira