Hákon Arnar með stórleik í sigri FCK Smári Jökull Jónsson skrifar 12. mars 2023 17:00 Hákon Arnar Haraldsson skoraði og lagði upp fyrir FCK í dag. Vísir/Getty FCK minnkaði forskot Nordsjælland á toppi dönsku úrvalsdeildarinnar niður í eitt stig með 4-1 sigri gegn Horsens í dag. Hákon Arnar Haraldsson átti frábæran leik fyrir FCK.
Fyrir umferð helgarinnar í dönsku deildina var Nordsjælland með þriggja stiga forskot á FCK á toppi dönsku deildarinnar en eftir jafntefli Nordsjælland gegn Viborg í morgun átti FCK möguleika á að minnka forskotið á toppnum. Það tókst þeim með glæsibrag. Þeir mættu liði Horsens á útivelli í dag og lentu reyndar undir í fyrri hálfleik þegar Anders Jacobsen skoraði fyrir heimaliðið. Staðan í hálfleik var 1-0 en á sex mínútna kafla í síðari hálfleik skoraði FCK þrjú mörk. Fyrst skoraði Denis Vavro og Hákon Aranar Haraldsson bætti við öðru marki fjórum mínútum síðar. Strax tveimur mínútum síðar lagði Hákon Arnar síðan upp fyrir Jordan Larsson og staðan skyndilega orðin 3-1 FCK í vil. Hákon Arnar var tekinn af velli á 73. mínútu en þrátt fyrir það náði FCK að bæta fjórða markinu í uppbótartíma og þar var að verki Elias Jelert. Lokatölur 4-1 í Horsens. Ísak Bergmann Jóhannesson sat allan tímann á varamannabekk FCK í dag. Að lokinni tuttugu og einni umferð er FCK í öðru sæti deildarinnar með 39 stig, einu stigi á eftir toppliði Nordsjælland. Viborg er í þriðja sætinu með 37 stig.
Danski boltinn Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti United aldrei í vandræðum Fótbolti Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Körfubolti Þórsarar komnir á blað Handbolti Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag Fótbolti Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Handbolti „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Handbolti Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Handbolti Frakkar vilja Infantino burt Fótbolti Fleiri fréttir Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag United aldrei í vandræðum Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Bakverðir til bjargar Frakkar vilja Infantino burt Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Fullkomin frumraun Ídu sem sló í gegn með þrennu Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Á ekki að snúast um karla gegn konum Stjórn Como gefur frá sér sína miða Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Nýr Camp Nou míglekur Sjáðu tvær þrennur og glæsilegt sigurmark Ødegaard Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Pressa á Blikum og skipulagið gagnrýnt Dagur Dan kom markmanninum í klandur „Gríðarleg vonbrigði“ Víkinga en stór áfangi í augsýn Dagskráin í dag: Manchester United snýr aftur í Meistaradeildina Harmsaga Mudryk heldur áfram Þessir dómarar dæma bikarúrslitin Dramatískt sigurmark lærisveina Heimis í umspilinu Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Evrópumeistararnir hófu titilvörn sína með pomp og prakt Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Sjá meira