Jói Berg og félagar björguðu stigi í uppbótartíma Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 14. febrúar 2023 22:29 Jóhann Berg Guðmundsson var í byrjunarliði Burnley í kvöld. Clive Brunskill/Getty Images Jóhann Breg Guðmundsson og félagar hans í Burnley þurftu svo sannarlega að hafa fyrir stiginu er liðið tók á móti Watford í ensku B-deildinni í fótbolta í kvöld. Lokatölur 1-1, en heimamenn jöfnuðu metin á fimmtu mínútu uppbótartíma.
Jóhann var í byrjunarliði Burnley í kvöld og lék í um sjötíu mínútur, en liðið hefur verið á miklu flugi og trónir á toppi deildarinnar. Það voru þó gestirnir í Watford sem voru fyrri til að brjóta ísinn þegar Brasilíumaðurinn Joao Pedro kom liðinu í forystu eftir rétt rúmlega hálftíma leik og staðan var því 0-1 í hálfleik. Raunar leit út fyrir að þetta yrði eina mark leiksins því staðan var enn óbreytt þegar venjulegum leiktíma lauk. Michael Obafemi reyndist hins vegar hetja heimamanna þegar hann jafnaði metin á 95. mínútu og niðurstaðan varð því 1-1 jafntefli. Burnley situr því enn á toppi ensku B-deildarinnar með 69 stig eftir 31 leik, átta stigum meira en Sheffield United sem situr í öðru sæti en hefur leikið einum leik minna. Watford situr hins vegar í sjötta sæti með 47 stig, en liðið er nú án sigurs í seinustu fimm deildarleikjum.
Enski boltinn Mest lesið Gamla Skyttan veitti City þungt högg Enski boltinn Tómas Bent þurfti að yfirgefa völlinn eftir þungt höfuðhögg Fótbolti Sextán ára gulltryggði Arsenal mikilvægan sigur Enski boltinn Tveir látnir eftir skotárás nærri Players meistaramótinu Golf Dugði Chelsea ekki til sigurs að umkringja dómarann Enski boltinn Töfrandi stund fyrir sextán ára strák: „Þetta er bara ekki eðlilegt“ Enski boltinn Víkingur Reykjavík upp í Olís deildina Handbolti Tilbúinn að bjarga Tottenham: „Kranjcar, Crouchy og Defoe koma allir aftur“ Enski boltinn Tilfinningarík kveðjustund eftir þriggja ára baráttu Íslenski boltinn ÍA 86-115 Tindastóll | Skagfirðingar ekki í vandræðum á Skaganum Körfubolti Fleiri fréttir Töfrandi stund fyrir sextán ára strák: „Þetta er bara ekki eðlilegt“ Tómas Bent þurfti að yfirgefa völlinn eftir þungt höfuðhögg Gamla Skyttan veitti City þungt högg Dugði Chelsea ekki til sigurs að umkringja dómarann Sextán ára gulltryggði Arsenal mikilvægan sigur Stórfurðulegt atvik fyrir leik Chelsea og dómarinn í aðalhlutverki Fylgdu eftir góðum sigri gegn Tottenham með öðrum sigri Furðumark skildi á milli á Leikvangi ljóssins Viðar hafði betur gegn Hilmi er norsku meistararnir lágu í valnum Emilía byrjaði í markaleik Emelía og Sigdís báðar á skotskónum Tvö rauð spjöld á loft í slag erkifjendanna Inter missteig sig aftur og þjálfarinn fékk rautt Fimmtán ára skoraði tvö þegar KR fór í úrslit Linda skoraði annan leikinn í röð Ratcliffe segir að Carrick sé að gera frábæra hluti Tilbúinn að bjarga Tottenham: „Kranjcar, Crouchy og Defoe koma allir aftur“ Yfirlýsing íranska landsliðsins: „Enginn getur bannað okkur að fara á HM“ Guardiola hreinskilinn: „Ef við töpum stigum er þetta búið“ Íslenskukunnáttan takmarkast við „kjúklingawingers“ Stappar stálinu í Kinsky og segir leikmönnum að fara ekki að grenja Tilfinningarík kveðjustund eftir þriggja ára baráttu Ísak skoraði er Lyngby tryggði toppsætið fyrir skiptingu Ingibjörg fagnaði mikilvægum sigri Fær lengra leikbann og er til rannsóknar fyrir að hrinda boltastráki Sjáðu sniðugustu hornspyrnur tímabilsins Moyes varði Arteta: Efast frekar um þá sem gagnrýna Arsenal David James þjálfar markverði Vals „Allir hjá Manchester United elska hann“ Sektir fyrir klúður í skýrslu og brotthvarf í hálfleik Sjá meira