Líklega um sex hundruð fengið lyfið á síðustu tveimur vikum Fanndís Birna Logadóttir skrifar 10. febrúar 2023 13:00 Rúna Hauksdóttir Hvannberg, forstjóri Lyfjastofnunar. Vísir/Vilhelm Lyfjastofnun hefur innkallað sýklalyfið Staxlox í varúðarskyni eftir að einstaklingar sem fengu sambærilegt lyf í Danmörku sýktust og hylki af lyfinu reyndust menguð. Grunur er um að einn hafi sýkst hér á landi. Forstjóri Lyfjastofnunar segir líklega um 600 hafa fengið lyfið á síðustu tveimur vikum hér á landi en þau hafi verið látin vita í gegnum Heilsuveru. Þó sé ekki saman sem merki milli þess að fá mengað hylki og að sýkjast.
Danska lyfjastofnunin greindi frá því fyrr í vikunni að níu einstaklingar hefðu sýkst af fjölónæmu bakteríunni Enterobacter hormaechei en þeir áttu það allir sameiginlegt að hafa fengið sýklalyfið Dicillin frá Sandoz. Eftir rannsókn kom í ljós að ein framleiðslulota var menguð af bakteríunni. Ekki væri hægt að útiloka að aðrar framleiðslulotur hafi mengast. Rúna Hauksdóttir Hvannberg, forstjóri Lyfjastofnunar, segir að ákveðið hafi verið að hætta sölu lyfsins Staklox, sem er sama lyf frá sama framleiðanda, hér á landi í fyrradag vegna málsins. „Við byrjuðum á því að setja sölustopp á lyfið frá apótekum en svo var ákveðið núna í kjölfar þess að það eru möguleg tengsl við einn einstakling hér heima, þó það sé ekki að fullu rannsakað, að þá erum við að óska eftir því að fólk skili lyfinu í apótek og fái nýtt lyf á móti,“ segir Rúna. Til skoðunar hefur verið hversu margir hafa fengið lyfið hér á landi síðastliðnar tvær vikur. „Það eru líklegast sex hundruð manns en við vitum þetta ekki nákvæmlega. Við erum að kalla eftir þessum upplýsingum bæði frá Sjúkratryggingum og embætti landlæknis,“ segir Rúna. Ekki saman sem merki milli þess að taka mengað hylki og að sýkjast Aðgerðin sé unnin í nánu samstarfi við landlækni, sóttvarnalækni og smitsjúkdómalækna Landspítala og hefur verið haft samband við umrædda einstaklinga í gegnum Heilsuveru. Mikilvægt sé að fólk sé vakandi fyrir einkennum, þó ekki sé saman sem merki milli þess að fá mögulega mengað hylki og að sýkjast. Bakterían geti verið í meltingarvegi lengi og orðið hluti af sýklaflóru viðkomandi. „Þetta þarf ekkert að leiða til sýkingar, það eru svipaðar bakteríur nú þegar í meltingarvegi, en þetta getur valdið sýkingu og það er bara mikilvægt að horfa til þess að þetta getur verið þvagfærasýking til dæmis,“ segir Rúna en hún segir um að gera að snúa sér til læknis hafi fólk fengið lyfið. Þá getur bakterían smitast milli einstaklinga við mikla nánd og saur-munn smiti líkt og aðrir iðrasýklar. Þó um sé að ræða bakteríu sem er ónæm fyrir einhverjum sýklalyfjum eru meðferðarkostir í boði. Ítarlegar upplýsingar má finna á vef Landlæknaembættisins auk þess sem finna má leiðbeiningar á vef Lyfjastofnunar. Yfirvofandi skortur á samheitalyfi en önnur sending á leiðinni Lyfið sem fólk fær í stað Staklox heitir Dicloxacillin Bluefish en það lyf er af skornum skammti um þessar mundir og hefur Lyfjastofnun stöðvað ávísanir í bili. „Þeir sem koma og skipta [Staxlox] í apótekum ættu að geta gert það. Síðan höfum bæði við og heilsugæslan og sóttvarnalæknir sent út tilkynningar til lækna um að velja aðrar meðferðir núna, velja ekki þetta lyf [Dicloxacillin Bluefish] sérstaklega. Það eru aðrar meðferðir í boði og það er til nóg af þeim sýklalyfjum,“ segir Rúna. Þá gera þau ráð fyrir að birgðastaða á því lyfi verði komin í eðlilegt horf í næstu viku þegar önnur sending kemur með flugi. „Við erum búin að tryggja það frá öðrum framleiðanda, í samvinnu við markaðsleyfishafana og heildsölurnar, svo það kemur til landsins í næstu viku. Við erum bara aðeins að komast fyrir vind svona næstu dagana,“ segir Rúna. Ekki liggur fyrir hvenær Staklox verði tekið aftur í notkun. Verið er að rannsaka málið og greina hver rótin er.
Lyf Heilbrigðismál Tengdar fréttir Innkalla lyf vegna áhættu á sýkingum af völdum sýklalyfjaónæmrar bakteríu Lyfjastofnun hefur stöðvað sölu og ávísanir á sýklalyfið Staklox vegna áhættu á sýkingu af völdum sýklalyfjaónæmra baktería. Stofnunin hefur einnig innkallað lyfið frá þeim sjúklingum sem hafa fengið því ávísað. 10. febrúar 2023 07:38 Mest lesið Fletti upp í LÖKE vegna meintrar fíkniefnaskuldar vandamanns Innlent Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Erlent Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Erlent Norlandair mátti ekki bjóða í Ísafjörð á þessari flugvél Innlent Þvertekur fyrir nokkur tengsl Erlent Furðar sig á vinsælustu fæðingarstellingunni Innlent Algjör nýliðun í stjórn samtaka gegn spillingu Innlent Íris bæjarstjóraefni Sjálfstæðismanna í Eyjum Innlent Hafi óvart tekið símann með sér en ekki rænt honum Innlent Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Erlent Fleiri fréttir Íris bæjarstjóraefni Sjálfstæðismanna í Eyjum Norlandair mátti ekki bjóða í Ísafjörð á þessari flugvél Fletti upp í LÖKE vegna meintrar fíkniefnaskuldar vandamanns Algjör nýliðun í stjórn samtaka gegn spillingu Furðar sig á vinsælustu fæðingarstellingunni Bílastæðamálin fæli fólk frá miðborginni Þrettán ár fyrir ítrekuð brot gegn stjúpdóttur Tilkynnt um þjófnað í þremur verslunum Goðsögn fallin frá Hafi óvart tekið símann með sér en ekki rænt honum Bein útsending: Ársfundur Seðlabankans Hvetur til varúðar með gervigreind í aðdraganda kosninga Þau skipa L-listann á Akureyri Björgvin Halldórsson látinn Vísindi á vordögum: Kulnun og álag Ógnarhröð þróun geti líka nýst til góðs Vísað úr landi eftir búðarhnupl Uppsögn Ragnars Freys, öryggisógnir og íslenskur þorskur Segist ekki hafa fengið boð um hærra starfshlutfall Ragnari Frey býðst hærra starfshlutfall á Landspítalanum Segir furðu sæta að hagfræðingur telji námslán gjöf Stálvirki nýrrar Ölfusárbrúar flutt úr Þorlákshöfn á verkstað Þrír í fimm ára fangelsi fyrir kókaínsmygl Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Freyr Gígja frá RÚV til dómsmálaráðuneytis Forðaðist skólann sem barn en fræðir foreldra um valkosti í dag Flestum þykir stjórnvöld standa sig illa í útlendingamálum Krían komin um tveimur vikum á undan áætlun Fólksfjölgun fór langt fram úr spá á Ísafirði Flæddi út um leka lögn á meðan fólk flúði vegna vatnsskorts Sjá meira
Innkalla lyf vegna áhættu á sýkingum af völdum sýklalyfjaónæmrar bakteríu Lyfjastofnun hefur stöðvað sölu og ávísanir á sýklalyfið Staklox vegna áhættu á sýkingu af völdum sýklalyfjaónæmra baktería. Stofnunin hefur einnig innkallað lyfið frá þeim sjúklingum sem hafa fengið því ávísað. 10. febrúar 2023 07:38