Skýrsla Stefáns: Átján skelfilegum mínútum frá þessu Stefán Árni Pálsson skrifar 22. janúar 2023 22:00 Bjarki Már Elísson skoraði 9 mörk fyrir íslenska liðið í kvöld. vísir/vilhelm Það lá fyrir að Ísland myndi ekki komast í 8-liða úrslitin fyrir leikinn gegn Brasilíu. Lokaleikurinn í milliriðlinum og aðeins undir í hvaða sæti liðið endar á mótinu. Það gæti skipt máli upp á að komast í undankeppni fyrir næstu Ólympíuleika.
Líklega erfitt að gíra sig upp í leikinn og byrjaði Brasilía leikinn betur og voru þeir einfaldlega mun ákveðnir á fyrstu mínútunum. Íslenska liðið að kasta boltanum trekk í trekk frá sér og þetta leit ekki vel út. 4-1 eftir fimm mínútur. Eftir tæplega fimmtán mínútna leik voru tæknifeilarnir, lélegar sendingar og léleg skot í aðalhlutverki hjá íslenska liðinu og það fjórum mörkum undir, 10-6. Og ekki var varnarleikurinn upp á marga fiska, eiginlega bara arfaslakur. Í hálfleik var staðan 22-18 og íslenska liðið bara einfaldlega að spila illa og þá sérstaklega varnarlega. Og markvarslan engin, 3 skot eftir þrjátíu mínútur. Ekki boðlegt að fá á sig 22 mörk í einum hálfleik og það gegn Brasilíu. Líklega hefur Guðmundur Þórður tekið eitt stykki hárblásara í hálfleiknum á sína menn. Það þurfti margt að breytast. Strákarnir voru sannarlega klárir í smá slag í byrjun síðari hálfleiks. Brassarnir skoruðu reyndar fyrsta mark hálfleiksins og komust fimm mörkum yfir 23-28. En þá komu fjögur íslensk mörk í röð og staðan 23-22 þegar Brasilía tekur leikhlé. Mun meiri kraftur í vörnina, Viktor Gísli að verja í markinu og hraðinn í sókninni eins og hann á að vera. Leikurinn sveiflukenndur næstu mínútur en þegar það voru tíu mínútur eftir af leiknum kom fram einhver neisti og íslenska liðið náði loks að jafna metin 32-32. Síðustu tíu mínúturnar voru í eigu Íslands og endaði með nokkuð þægilegum sigri. Stuðningsmenn Íslands voru frábærir í kvöld og höfðu ekki gefist upp á leikmönnum liðsins þar sem stuðningurinn var góður frá byrjun. Það var eiginlega stúkan sem gaf íslenska landsliðinu kraft til að klára þennan leik. Skemmtileg innkoma hjá Kristjáni Erni Kristjánssyni í kvöld og gerði hann átta mörk úr tíu skotum. Bjarki Már Elísson var góður í raun eins og alltaf og Gísli Þorgeir Kristjánsson stórkostlegur á miðjunni. Stýrði leiknum vel og gaf alls níu stoðsendingar og skoraði fimm mörk. Heilt yfir ekki nægilega góður leikur en auðvitað erfitt að gíra sig upp í leik þar sem það var ljóst fyrir hann að sæti í 8-liða úrslitum væri útilokað. En niðurstaðan á mótinu vonbrigði, að komast ekki í 8-liða úrslit sem var án efa markmiðið. Menn rifja líklega ekki oft upp síðustu átján mínútur leiksins gegn Ungverjum. Það kostaði okkur sætið í 8-liða úrslitunum. Ekki hjálpaði að missa Aron Pálmarsson, Ómar Inga Magnússon og Ólaf Guðmundsson í meiðsli. Ekki liggur fyrir í hvaða sæti Ísland lendir í á HM 2023 en það verður líklega aldrei litið til baka á þetta mót í framtíðinni, það mun gleymast.
HM 2023 í handbolta Landslið karla í handbolta Mest lesið Joshua kjálkabraut Paul Sport Gagnrýndi Paul: „Beið eftir að verða sleginn“ Sport Salah bað samherjana afsökunar Enski boltinn Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Enski boltinn Rekinn af HM eftir að hafa fallið á lyfjaprófi Sport Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Enski boltinn Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Enski boltinn „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ Handbolti Varði fjórar vítaspyrnur með brotna hendi Fótbolti Dagskráin í dag: Enski boltinn í tíu klukkutíma Sport Fleiri fréttir Eva Björk með stórleik í fyrsta sigri Stjörnunnar „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ KA-menn fengu góða jólagjöf Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina KA í undanúrslit á kostnað bikarmeistaranna Stærsti leikur ársins í Eyjum fer fram í kvöld „Er því miður kominn í jólafrí“ „Þetta var mjög skrítinn leikur“ Haukakonur í fjórða sætið KA/Þór - Valur 23-30 | Ótrúlegur viðsnúningur gestanna Ómar óstöðvandi og Magdeburg í undanúrslit Ómar Ingi fær meiri ábyrgð og tekur við kyndlinum af Aroni Ekkert stríð við Porto og einstakur Þorsteinn nítjándi maður Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Teitur fer á EM sem hornamaður í stað Sigvalda Snorri kynnti EM-strákana okkar Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Geggjaðar Eyjakonur á toppinn Þorsteinn Leó að ná sér „langt á undan áætlun“ Birtu tölvupóst þar sem efast er um heilsu forseta IHF Valdi ekki eigin leikmann í landsliðið Halda Orra og Sporting engin bönd Viktor Gísli stóð vaktina er fullkomið gengi Börsunga hélt áfram Snorri kynnir EM-fara í vikunni Mega handvelja lið utan Evrópu inn í Meistaradeildina EM ekki í hættu Á hækjum á milli leikja og þoldi sífellt verri sársauka Uppgjörið: Haukar - Fram 25-27 | Meistararnir unnu toppliðið í naglbít Sjá meira