„Held að Wenger hafi tapað þúsundasta leiknum sínum 6-0 svo ég er ánægður með að það hafi ekki gerst“ Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 22. janúar 2023 07:00 Það var kalt í leik gærdagsins. Martin Rickett/Getty Images Jürgen Klopp stýrði Liverpool í þúsundasta sinn í gær þegar liðið gerði markalaust jafntefli við Chelsea í ensku úrvalsdeildinni. Eftir leik sagðist Klopp vera sáttur með að hafa ekki tapað 6-0 líkt og Arsène Wenger gerði með Arsenal á sínum tíma.
Bæði Klopp og Graham Potter, þjálfari Chelsea, horfðu á björtu hliðarnar eftir jafntefli laugardagsins en bæði lið eru í hinni margrómuðu brekku þessa dagana. „Ég var ánægður með hvernig við byrjuðum leikinn og hvernig við byrjuðum síðari hálfleikinn. Það var gott og við þurfum að finna leið til að lengja þessa góðu kafla,“ sagði Klopp að leik loknum. „Við áttum augnablik þar sem við spiluðum nokkuð vel. Fyrir mér er þetta nokkuð skýrt, við þurfum að taka lítil skref fram á við og þetta var eitt slíkt skref. Ég reiknaði með að við myndum sýna framfarir frá síðasta deildarleik [3-0 tap gegn Brighton & Hove Albion] og þetta voru án efa framfarir. Það er mikilvægt.“ „Ég held að Arsène Wenger hafi tapað sínum þúsundasta leik 6-0 svo ég er ánægður með að það hafi ekki gerst.“ Jürgen Klopp on his 1,000th game as a manager being a draw: 'Arsène Wenger lost his 1,000th game 6-0 so I'm pretty happy' pic.twitter.com/89Ptqvfrjq— B/R Football (@brfootball) January 21, 2023 Að lokum var Klopp spurður út í möguleikann á að ná Meistaradeildarsæti. „Við getum aðeins haft áhrif á það með sigri en við unnum ekki í dag. En það er mikið af leikjum eftir og ef þú telur stigin sem eru eftir í pottinum þá getur margt gerst. Til að komast í Meistaradeildina þurfum við að halda áfram að gera hlutina sem við gerðum í dag og í síðasta leik gegn Úlfunum.“
Enski boltinn Fótbolti Mest lesið Sjóhaukarnir unnu Super Bowl sannfærandi Sport „Hún hegðar sér eins og díva“ Sport Hópurinn gegn Mexíkó: Gylfi snýr aftur í landsliðið Fótbolti Arnar með „óbragð í munni“ eftir skort á heilbrigðri skynsemi Enski boltinn Fyrstu íslensku ÓL-feðginin: „Draumur sem ég vissi varla að væri til“ Sport „Eins og hann sé að grátbiðja um að verða seldur“ Enski boltinn Óvænt bætist við Íslendingur á ÓL Sport Bad Bunny hljóp lengra en lið Patriots Sport Handbolti á Vetrarólympíuleikum í framtíðinni? Handbolti Lindsey Vonn fótbrotnaði við fallið Sport Fleiri fréttir Getur þjálfað Hollywood-liðið ævilangt „Tottenham er í fallbaráttu“ „Eins og hann sé að grátbiðja um að verða seldur“ Arnar með „óbragð í munni“ eftir skort á heilbrigðri skynsemi Sjáðu bombu Szoboszlai og allt dramað í lokin „Ég vissi að Carrick gæti orðið frábær stjóri“ Nýi leikmaður Liverpool meiddist alvarlega „Enn og aftur dæmir dómarinn ekki okkur í vil“ „Við urðum að vinna, annars væri titilbaráttan búin“ Manchester City kom til baka eftir stórskostlegt mark Szoboszlai Sarr tryggði sigur gegn Mávunum Sjáðu fjórða sigur United, þrennu Palmer og tvennu Gyökeres Mætast undir allt öðrum kringumstæðum en áður Farinn að leita að rakara og vill fá tíma 10. febrúar Brentford upp að hlið Liverpool eftir endurkomusigur á Newcastle Mikel Arteta segir að níu stiga forysta Arsenal þýði „ekkert“ Hamrarnir sóttu sigur, Everton sneri leiknum en Villa missti niður forystu Skytturnar með níu stiga forskot á toppnum Palmer með þrennu í fyrri hálfleik gegn Úlfunum Fær fjögurra leikja bann og missir af Lundúnaslagnum United fagnaði fjórða sigrinum í röð Sjáðu mörkin sem Sean Dyche fannst alveg skelfileg Biður Liverpool að slaka á reglunum Dagskráin í dag: Risa dagur í enska boltanum Risa sigur fyrir Leeds United Arteta með lykilmenn meidda og svaraði ásökunum Segir fótboltasérfræðinga bera ábyrgð Úlfar í sauðagæru? „Myndi segja að þetta sé framsækin nálgun“ Sakar Arsenal um virðingarleysi Leicester missir sex stig og er í mikilli hættu á að falla annað árið í röð Sjá meira