Héraðsdómur segir Brúneggjabræður geta sjálfum sér um kennt Hólmfríður Gísladóttir skrifar 23. desember 2022 11:16 Tryggvi hlaut blaðamannaverðlaunin fyrir umfjöllun sína um Brúnegg. Þegar endurrit Kastljósþáttarins frá 28. nóvember 2016 um dýrahald og eggjaframleiðslu Brúneggja ehf. er borið saman við þau gögn sem fyrir lágu frá Matvælastofnun, er ekki annað að sjá en að þar sé rétt farið með allar upplýsingar og staðreyndir.
Þetta er niðurstaða héraðsdóms Reykjavíkur í skaðabótamáli Brúneggjabræðra gegn Matvælastofnun og Ríkisútvarpinu. Stefndu voru sýknaðir af öllum kröfum í málinu. Dómurinn kemst að þeirri niðurstöðu að auk þess að rétt var farið með í þættinum hafi umfjöllunin í garð Brúneggja ekki verið óvægnari en fyrirliggjandi gögn gáfu tilefni til. Margt bendi hins vegar til þess að „frumorsök tjóns Brúneggja ehf. sé sú hvernig að starfsemi félagsins var staðið“. Það voru Bali ehf. og Geysir-Fjárfestingafélag ehf. sem höfðuðu málið á hendur RÚV og MAST. Félögin eru í eigu bræðranna Kristins Gylfa og Björns Jónssona, sem voru eigendur Brúneggja ehf. Félögin kröfðust viðurkenningar á skaðabótaábyrgð RÚV og MAST vegna fyrrnefnds Kastljóssþáttar og byggðu meðal annars á því að starfsmenn bæði RÚV og MAST hefðu með saknæmri og ólögmætri háttsemi valdið Brúneggjum tjóni. Umræddir starfsmenn voru Jón Gíslason, fyrrverandi forstjóri MAST, og Sigurborg Daðadóttir yfirdýralæknir annars vegar og Tryggvi Aðalbjörnsson fréttamaður og Þóra Arnórsdóttir, fyrrverandi ritstjóri Kastljóss, hins vegar. Frávik og vandkvæði frá upphafi Í stefnunni var því meðal annars haldið fram að MAST hefði hefði sýnt af sér saknæma og ólögmæta háttsemi með afhendingu gagna til RÚV. Þá hefðu starfsmenn MAST ekki haft heimild til að tjá sig við RÚV um málefni Brúneggja. Því var einnig haldið fram að bæði MAST og RÚV hefðu horft fram hjá aðstæðum hjá öðrum eggjaframleiðendum, sem hefðu ekki verið skárri en hjá Brúneggjum. Frávik hjá Brúneggjum hefðu til að mynda verið flokkuð sem „alvarleg“ en aðeins sem „frávik“ hjá öðrum. Starfsmenn MAST eru í stefnunni sakaðir um að hafa vegið gróflega að æru og heiðri Brúneggja og farið út fyrir heimildir sínar. Þá er RÚV sakað um ósanngjarna, ranga og villandi umfjöllun. Meðal annars með umfjöllun um liðin atvik og með því að draga ranglega upp dökka mynd af aðbúnaði fugla hjá Brúneggjum. Í málsástæðum og lagarökum MAST er ásökunum stefnanda hafnað. Þar segir meðal annars að MAST hafi borið, samkvæmt upplýsingalögum, að afhenda RÚV umbeðin gögn og meira að segja meiri upplýsingar en upphalfega voru látin af hendi. Þá sé fjarri lagi að framleiðsla Brúneggja hafi, allt frá árinu 2007, fullnægt öllum skilyrðum til þess að mega merkja framleiðsluna sem vistvæna landbúnaðarafurð, „nema síður sé“. Strax við upphaf starfsemi Brúneggja á Stafholtsveggjum árið 2014 hafi komið fram veruleg frávik og vandkvæði við búfjárhaldið. MAST hafi „ítrekað þurft að hafa viðameiri afskipti af starfseminni en hjá öðrum framleiðendum, bæði með auknu eftirliti og til að þvinga fram úrbætur“. Í aðgerðaleysi Brúneggja vegna ítrekaðra, alvarlegra og langvarandi frávika bæði hvað varðar matvælaöryggi og dýravelferð hafi kristallast sá hugsunarháttur sem einkenndi alifuglahald fyrirtækisins; að gengið væri mjög langt í því að hámarka afrakstur á kostnað aðbúnaðar og umhirðu fugla. Frumorsök tjónsins sú hvernig að starfseminni var staðið RÚV bendir á að Brúnegg hafi aldrei krafist ógildingar á athöfnum eða ákvörðunum MAST eða annarra eftirlitsaðila og fyrirsvarsmaður Brúneggja staðfest í samtali við RÚV að honum þætti MAST hafa gengið fram af sanngirni. Þá sé síður en svo óeðlilegt, hvað þá saknæmt, að fjalla um áralöng afskipti eftirlitsaðila af eftirlitsskyldum aðila starfandi á neytendamarkaði vegna margháttaðra vankanta og frávika í rekstri. Leitað hafi verið sjónarmiða Brúneggja og forsvarsmönnum boðið að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. RÚV segir saknæma og ólögmæta háttsemi stefnenda sjálfra hafa valdið þeim hinum meinta fjártjóni en ekki starfsmenn RÚV. Dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að starfsmönnum MAST hefði sannarlega verið heimilt að tjá sig um þau mál sem fjallað var um í þættinum. Þá segir í dómnum að fréttamenn njóti meðal annars frelsis til að ákveðameta hvað er fréttnæmt og hvað eigi erindi við almenning. „Þeir njóta frelsis til að velja umfjöllunarefni og hafa svigrúm til að ákveða framsetningu efnis. Svo sem fyrr greinir þykir fullsannað að rétt hafi verið farið með staðreyndir í þættinum og þykir umfjöllun í garð Brúneggja ekki hafa verið óvægnari en fyrirliggjandi gögn og upplýsingar gáfu tilefni til,“ segir í dómnum. Þá segir einnig að stefnandi hafi ekki sýnt fram á orsakatengsl milli athafna eða athafnaleysis RÚV eða MAST og meints fjártjóns, margt bendi hins vegar til þess að frumorsök tjóns Brúneggja ehf. sé sú hvernig að starfsemi félagsins var staðið.
Brúneggjamálið Matvælaframleiðsla Dómsmál Mest lesið Íslendingur dæmdur í þrettán ára fangelsi í Rússlandi Erlent Losnar fyrr og fær ekki að koma aftur í 30 ár Innlent Kallar eftir náðun Kouranis og brottvísun strax á morgun Innlent Tvíburarnir fengu ár í viðbót Innlent „Ég mun ekki sjá eftir honum“ Innlent Ingvar aftur kominn í leyfi frá þingstörfum Innlent Kallaði eftir aftöku heimilislauss fólks: „Drepa þau bara“ Erlent NATO og Rússland „augljóslega“ í stríði Erlent Tinder-svindlarinn handtekinn í Georgíu Erlent Conor McGregor dregur forsetaframboðið til baka Erlent Fleiri fréttir Hefur ekki áhyggjur af svindli með nýju námsmati Þrjú innbrot og alltaf fúlsað við verkunum: „Þetta er kannski smá yfirlýsing“ Ísland ekki óhult ef til átaka kemur í Evrópu „Ég mun ekki sjá eftir honum“ Fjöldi glæpahópa á Íslandi hefur tvöfaldast á tíu árum „Ekki algengt að svona lekar verði“ Stóraukning skipulagðrar glæpastarfsemi og innbrotahrina hjá listamanni Flugvél með fjórum innanborðs fór út af flugbraut Kallar eftir náðun Kouranis og brottvísun strax á morgun Tiltekt ríkisstjórnar eins og að taka sokk af gólfi unglings Ingvar aftur kominn í leyfi frá þingstörfum Oddvitarnir ætla sér stóra hluti eftir átta mánuði Loka fyrir heitt vatn vegna leka á Bústaðavegi Tvíburarnir fengu ár í viðbót Hlaut náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti Vara við svikapóstum um ólöglegar klámsíður og reikninga frá raforkusölum Baráttunni lauk með íslenskum ríkisborgararétti Er með hugmynd að nafni sem gæti vel gengið Bein útsending: Umhverfisþing 2025 Hells Angels á Íslandi hafi aukið umsvif sín og sýnileika Losnar fyrr og fær ekki að koma aftur í 30 ár Komið gott af borgarmálum og meirihlutaslit hafi engin áhrif Töldu nauðsynlegt að taka fast á Hells Angels og Kourani fær endurkomubann Ætlar sér formennsku hjá ungum Sjálfstæðismönnum Úr inniskónum og yfir í hringiðu heimsmálanna Þórdís Lóa ætlar ekki fram Ölvaðir og í annarlegu ástandi Farmur flugvélaeldsneytis hafi ekki uppfyllt gæðastaðla Þjófur fúlsaði við málverkunum en tók nóg af bjór Veit um fjögur sjálfsvíg tengd gervigreind Sjá meira