Samstarf um stöðugleika Ágúst Bjarni Garðarsson skrifar 14. desember 2022 17:01 Þegar ég bauð mig fram til Alþingis síðastliðið haust var það vegna þess að ég vildi gera vel. Ástandið í heiminum hefur haft áhrif á efnahagsástandið hér á landi sem og annar staðar. Við getum þó ornað okkur við það að allar líkur eru á að um tímabundið ástand sé að ræða, staða ríkissjóðs er mun sterkari en áður var gert ráð fyrir og viðsnúningur getur því orðið hraður þegar ástandið færist aftur í eðlilegt horf. Við þurfum þó að stíga varlega til jarðar næstu mánuði, tryggja stöðugleika og ná niður verðbólgu og vöxtum. Stöðugleiki og samvinna Líkt og áður hefur komið fram í mínum greinarskrifum erum við að upplifa tíma sem kalla á stöðugleika og samvinnu. Þetta vita þeir sem semja um kaup og kjör hér á landi. Þær ánægjulegu fréttir bárust okkur fyrr í vikunni að iðnaðar- og verslunarmenn hafi skrifað undir kjarasamning við Samtök atvinnulífsins, en áður höfðu náðst samningar milli SA og SGS. Með undirritun þessara samninga hefur nú verið samið við stærstu félögin á almennum vinnumarkaði, en í þeim eru fleiri en 80 þúsund manns. Um er að ræða skammtímasamninga sem hafa það markmið að styðja við kaupmátt launafólks og brúa bil yfir í nýjan langtímasamning í anda Lífskjarasamningsins. Í kjölfarið kynntu formenn stjórnarflokkanna þær aðgerðir sem stjórnvöld ætla að leggja til sem stuðning við kjarasamningana. Hér er um að ræða þýðingarmikinn stuðning við fólkið í landinu og þá sér í lagi við lífskjör lág- og millitekjufólks ásamt auknum stuðningi við barnafjölskyldur. Á sama tíma er áréttað mikilvægi þess að verja kaupmátt og lífskjör launafólks og skapa stöðugleika í efnahagsmálum svo hægt sé að ná fram lækkun á verðbólgu og vöxtum. Breytingar á barnabótakerfinu Einn liður í aðgerðum stjórnvalda eru verulegar breytingar á barnabótakerfinu til þess að styðja við kjarasamninga. Í tillögunum felst að barnabótakerfið verði einfaldað og stuðningur við barnafjölskyldur efldur. Breytingin mun dreifast á tvö ár. Fyrsta skrefið verður tekið nú um áramótin 2023 og svo aftur 1. janúar 2024. Með þessum breytingunum verður dregið úr skerðingum og jaðarskattar af völdum barnabóta lækkaðir, ásamt því að lögð er áhersla á að bæta hag allra tekjutíunda og fjölga fjölskyldum sem fá stuðning úr barnabótakerfinu. Barnabætur hjá millitekjufólki hækka mest og minnst hjá þeim sem hafa hærri laun. Þá verða teknar upp samtímagreiðslur þannig að biðtími eftir barnabótum verður aldrei lengri en 4 mánuðir eftir fæðingu barns. Þeim fjölskyldum sem njóta stuðnings úr kerfinu fjölgar um 2.900, það eru 2000 nýjar fjölskyldur vegna breytinga í ársbyrjun og 900 vegna breytinga í ársbyrjun 2024. Í óbreyttu kerfi hefði kostnaður vegna barnabóta orðið um 12,1 ma.kr. árið 2023 samhliða hækkandi tekjum fólks og um 10,9 ma.kr. árið 2024. En vegna breytinganna verður kostnaðurinn við kerfið hins vegar um 14,6 ma.kr. 2023 og um 15,9 ma.kr. 2024. Hér er um að ræða mikilvægar breytingar sem koma inn á réttum tíma. Aukinn húsnæðisstuðningur Húsnæðisstuðningur ríkisins verður um 19 ma.kr. á næsta ári og farið í markvissar aðgerðir með áherslu á fjölgun íbúða og áframhaldandi uppbyggingu í almenna íbúðakerfinu. Með auknum stofnframlögum og endurbótum í húsnæðisstuðningi náum við því markmiði. Stofnframlög ríkisins til að auka framboð íbúða á viðráðanlegu verði í almenna íbúðakerfinu verða samtals 4 milljarðar strax á næsta ári. Hækka á húsnæðisbætur til leigjenda um 13,8% í upphafi árs til samræmis við þróun verðlags undanfarin ár, auk þess sem tekjuskerðingarmörk húsnæðisbóta hækka um 7,4%. Með þessu fá 16.800 fjölskyldur í landinu húsnæðisbætur. Húsnæðisbætur til leigjenda hækka með þessu verulega og eru áætlaðar 9,6 ma.kr. þá eru vaxtabætur áætlaðar 2,7 ma.kr. ásamt því að eignaskerðingarmörk í vaxtabótakerfinu hækka um 50% í upphafi árs 2023. Þessu til viðbótar mun heimild til þess að ráðstafa séreignarsparnað til kaupa á eigin húsnæði eða inn á höfuðstól húsnæðislána áfram nýtast fram til ársloka 2024. Stjórnvöld láta þar ekki staðar numið heldur munu á samningstímanum taka sérstaklega til skoðunar fyrirkomulag sérstaks húsnæðisstuðnings húsnæðisbóta til leigjenda með það að markmiði að tryggja jafnræði og einfalda kerfið fyrir leigjendur. Að standa saman í ólgusjó Hér hefur einungis verið tæpt á helstu atriðum í aðgerðum stjórnvalda. Stjórnvöld eru með þessu að leggja sitt á vogarskálarnar til þess að koma þjóðinni í gegnum óvenjulegu tíma. Þá hafa verkalýðsfélögin og Samtök atvinnulífsins aldeilis staðið við sinn hlut í því að ná fram stöðugleika í samfélaginu næstu mánuði og eiga hrós skilið. Nú skiptir mestu máli að allir sem vettlingi geta valdið geri sitt til þess að tryggja stöðugleika. Það er mikilvægt að halda aftur af hækkunum með öllum tiltækum ráðum og ná niður verðbólgunni. Ég veit að þegar á reynir er samhugurinn mikill. Verjum tíma með okkar nánustu, styðjum og sýnum hvert öðru virðingu og samkennd í aðdraganda jóla. Gleðilega hátíð. Höfundur er þingmaður Framsóknar og fyrsti varaformaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ágúst Bjarni Garðarsson Framsóknarflokkurinn Húsnæðismál Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Kjaramál Mest lesið Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Skoðun Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni Sigrún Ólafsdóttir,Zophonías O. Jónsson skrifar Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar Skoðun SÁÁ er stærra en einstaklingarnir Ólafur Hand skrifar Skoðun Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason skrifar Skoðun Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum Njáll Trausti Friðbertsson skrifar Skoðun 21% þá – 2% nú Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Við borgum, þeir kosta. Eða hvað? María Rut Ágústsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar
Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar
Skoðun Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason skrifar
Skoðun Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum Njáll Trausti Friðbertsson skrifar