Bielsa í viðræðum við Bournemouth um að taka við liðinu Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 13. nóvember 2022 08:02 Marcelo Bielsa gæti tekið við Bournemouth. Robbie Jay Barratt - AMA/Getty Images Argentínski knattspyrnuþjálfarinn Marcelo Bielsa gæti tekið við enska úrvalsdeildarfélaginu Bournemouth, en hann verið án starfs síðan hann var látinn fara frá Leeds í febrúar á þessu ári.
Bournemouth hefur verið í þjálfaraleit síðan félagið lét Scott Parker taka poka sinn eftir aðeins fjóra leiki á yfirstandandi tímabili. Gary O'Neil hefur gegnt stöðu bráðabirgðastjóra síðan Parker var látinn fara. Liðinu gekk ágætlega fyrst um sinn eftir að O'Neil tók við stjórnartaumunum og Bournemouth tapaði ekki í sex leikjum í röð. Eftir það tapaði félagið hins vegar fjórum í röð, en liðið komst aftur á sigurbraut með 3-0 sigri gegn Everton í gær. Samkvæmt heimildum BBC gæti O'Neil enn fengið fastráðningu sem aðalþjálfari Bournemouth, en nú hefur nafn Bielsa einnig birst í umræðunni. Bielsa er sagður hafa verið í viðræðum við félagið undanfarna daga. Eins og áður segir var hann seinast þjálfari Leeds og er hann enn mjög vel liðinn hjá stuðningsmönnum félagsins. Bielsa tók við Leeds árið 2018 og kom liðinu upp í ensku úrvalsdeildina eftir 16 ára fjarveru. Undir hans stjórn hafnaði liðið í níunda sæti á sínu fyrsta tímabili í deild þeirra bestu, en árið eftir fór að halla undan fæti og Bielsa var loks látinn fara í febrúar á þessu ári.
Enski boltinn Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport „Guð morning!“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Fleiri fréttir Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Sjá meira