Vífilsstaðir: Press 1 for English Kristófer Ingi Svavarsson skrifar 27. október 2022 11:01 I. Vífilsstaðir, Öldrunardeild H Landspítala, eru fjölþjóðlegt samfélag starfsmanna sem veita 42-45 rosknum Íslendingum aðhlynningu, sinna þeim á allan hátt, allan sólarhringinn, þörfum líkama og sálar. Obbinn af þessum vistmönnum er fólk sem fæddist fyrir 17. júní 1944, þótt lýðveldisbörnum fjölgi óðum í röðum þessara skjólstæðinga því „enginn stöðvar tímans þunga nið“. Þetta samfélag er íslenskt. Sjúklingarnir eru nær allir íslenskir, móðurmál þeirra er íslenska. Þar eru ömmur sem kenndu börnum sínum, og oft barnabörnum, fyrstu orðin; dagur og nótt, ást, vinátta, blíða, kærleikur, örlæti, tryggð og hollusta. Svo eitthvað sé nefnt. Þar eru rosknir karlar sem stunduðu sjóinn, erjuðu jörðina, óku vörubílum, fluttu fréttir, byggðu hús og lögðu vegi. Og tjáðu sig á íslensku. Flestir starfsmenn Vífilsstaða eru útlendingar sem tala íslensku við skjólstæðinga sína, enda væri annað fráleitt. Ágætisfólk frá Filippseyjum og Færeyjum, Taílandi og Indlandi, Rómönsku Ameríku og Úkraínu, Póllandi og Indlandi, Srí Lanka og Serbíu, Kína og Keníu, Nepal og Noregi. Landspítalinn ræður þetta fólk því aðeins í vinnu að það skilji sjúklingana og þeir skilji það. Allt annað væri glundroði. Gremja á einum stað, farsi á öðrum, enda byggja flestir gamanleikir á endalausri röð fáránlegra atvika, þar sem allir misskilja alla. Landspítalinn hefur því kostað íslenskunám erlendra starfsmanna sinna. Þannig hafa þeir stundað íslenskunám hjá Mími símenntun. Þar er kenndur grunnur íslenskrar tungu auk starfstengds orðaforða. II. Maður er nefndur Ármann Jakobsson. Ármann er formaður Íslenskrar málnefndar. Þann 19. þessa mánaðar birti Ármann ritsmíð þar sem hann viðraði áhyggjur sínar af þessum hornsteini íslenskrar menningar og sjálfstæðis; þjóðtungunni. Eftir að hafa prísað sig sælan að búa á Íslandi þar sem allir una glaðir við sitt og „engin pólitísk kreppa ríkir“ segir hann: „Það merkir þó ekki að engar hættur steðji að fullveldi Íslands og mesta hættan felst í því að þrengt er að íslensku af ofurvaldi ensku en Íslendingar hafa verið deigir við að kenna nýjum íbúum íslensku þó að það sé mannekla á landinu eins og bent hefur verið á. Auðvitað tala nýir íbúar landsins ekki íslensku frá upphafi og ef ekki verður tekið á er hætt við að litlir hvatar verði til að þeir læri málið. Þar með er sjálfstæði Íslands auðvitað ógnað því að ef íslensk tunga og íslensk menning hverfur fækkar mjög rökunum fyrir því að þessi fámenna þjóð sé sjálfstæð. Hér fer því ótvírætt mesta ógn sem hefur stafað að sjálfstæði Íslands seinustu áratugi.“ III. Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur ætti að kynna sér þessa ritsmíð. Hún fetar sig hægt og varlega áfram stíginn ekki aðeins að einkavæðingu heilbrigðiskerfisins, heldur enskuvæðingu þess. Einkavæðing er reyndar orð sem vekur hlýju og vellíðan hjá þorra Íslendinga eftir farsæla og árangursríka einkavæðingu bankakerfisins á sínum tíma. Glitnir, Kaupþing, Icesave, sællar minningar. Og enn er verið að. Íslandsbanki, sei, sei, jú, mikil ósköp! Og mikið vill meira, ágirndin er óseðjandi, matarholan er mörg. Vífilsstaðir í dag, Nýi Landspítalinn ohf. á morgun! Jæja, en ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hefur falið einkafyrirtækinu Heilsuvernd að reka Vífilsstaði, eins og kunnugt er. Þetta fyrirtæki birti heilsíðuauglýsingu í Fréttablaðinu um helgina. Fyrirtækið vill framúrskarandi og jákvætt fólk til starfa sem skapi glaðlegt og gott vinnuumhverfi. Í ENSKU MÁLSAMFÉLAGI!! Því aðeins er tekið fram að sjúkraliðar og iðjuþjálfar þurfi að kunna móðurmálið; hafa gott vald á íslensku, mæltu máli og rituðu. Forstöðumaður kunni bæði íslensku og ensku. Ekkert er minnst á íslenskukunnáttu hjúkrunarfræðinga og í dálkinum um þá sem eiga að veita almenna umönnun og aðhlynningu stendur þetta um menntunar- og hæfnikröfur: „Góð íslenskukunnátta og/eða enskukunnátta, skrifuð og töluð.“ Eða enskukunnátta! Alkunna er að allur þorri starfsmanna í öldrunarþjónustu á Íslandi er útlendur og ófaglærður. Á Vífilsstöðum eru íslenskir sjúkraliðar teljandi á fingrum annarrar handar, óbreyttir fótgönguliðar bera hita og þunga samskipta og þjónustu við skjólstæðingana. Meira en helmingur aðflutt prýðisfólk. En framvegis gætu samskiptin orðið dálítið stirð. Annar aðilinn, sá sem þjónustuna veitir, talar ensku. Hinn aðilinn, sjúklingurinn roskni, sem aldrei lærði ensku í skóla, talar sitt ástkæra, ylhýra móðurmál. Starfsmaður: Good morning here! Rise and shine! Sjúklingur svarar: Góðan og blessaðan daginn! Starfsmaður: To be or not to be - that is the question. Sjúklingur svarar: Því Gunnar vildi heldur bíða hel, en horfinn verða fósturjarðar ströndum ... Og vilji menn ræða heimsmálin, til að mynda hernaðarbrölt Pútíns í Úkraínu: Starfsmaður: „Lo! thy dread empire, Chaos! is restored; Light dies before thy uncreating word; Thy hand, great Anarch! lets the curtain fall, and universal Darkness buries All.“ Hverju sjúklingur svarar: „Og berjist þeir og berjist og brotni og sundur merjist, og hasli völl og verjist í vopnabraki og gný. Þótt borgir standi í báli og beitt sé eitri og stáli, þá skiptir mestu máli að maður græði á því.“ IV. Til þessa hefur markmið heilbrigðiskerfisins verið þjónusta þjónustunnar vegna. Innheimtumaður ríkissjóðs, Bjarni Benediktsson, eða einhver annar skattmann, hirðir drjúgan hluta af tekjum almennings. Almenningur muldrar kannski, en sættir sig við þetta kerfi í trausti þess að skatturinn sé eins konar trygging. Fólk stundar nám, fólk veikist, fólk eldist. Skattféð stendur straum af þjónustu sem fólk þarf vegna þess arna. Markmið einkafyrirtækis í rekstri er hins vegar ágóði. Menn fjárfesta í bönkum, byggingarfyrirtækjum og síldarbræðslum til að græða. Þegar heilbrigðiskerfið er einkavætt taka heilbrigðisfyrirtæki við af heilbrigðisþjónustu. Markmiðið er vitaskuld að fjárfestar hafi tekjur af sjúklingunum. Hægri stjórn, eins og sú sem nú fer með völd á Íslandi, ríkir fyrir þá sem vilja hámarksávöxtun af braski sínu. Þessa sér strax stað í ofannefndri auglýsingu. Þannig er það fundið fé að kosta ekki starfsmenn til náms í íslensku, það er ansans ári dýrt! Og ef velviljað ríkisvald lætur svo í té húsnæði, tæki og tól, lyf og jafnvel eitthvað af launakostnaði, þá má búast við að glatt verði á hjalla á næsta hluthafafundi Vífilsstaða! Svo eykur það vitaskuld hagnað þessa einkafyrirtækis að skera niður þjónustu, mat, drykk og annað. Má þá kannski búast við því að ljósin verði slökkt klukkan 8 á kvöldin og hafragrauturinn naumt skammtaður á morgnana? Þótt ekki sé mikið yki það ágóðahlut fjárfesta. Smáframlag í púkkið. „... þá skiptir mestu máli/að maður græði á því.“ Höfundur er trúnaðarmaður Sameykis á Vífilsstöðum. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Garðabær Íslensk tunga Eldri borgarar Kristófer Ingi Svavarsson Mest lesið Skattaglufuflokkar hinna betur settu þykjast hafa uppgötvað alla hina Þórður Snær Júlíusson Skoðun Lánið löglega Breki Karlsson Skoðun Þetta er ekki gervigreind Sigríður Hagalín Björnsdóttir Skoðun Hafa Íslendingar efni á að eiga ekki pening? Jón Páll Haraldsson Skoðun Viljum við hagkerfi sem þjónar fólki og náttúru, eða fólk sem þjónar hagkerfinu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Séreignarsparnaðarleiðin fest í sessi Ingvar Þóroddsson Skoðun Íbúðalánasjóður fjármagnaði ekki íbúðalán bankanna! Hallur Magnússon Skoðun Húsnæðisliðurinn í vísitölu neysluverðs Þorsteinn Siglaugsson Skoðun Annarlegar hvatir og óæskilegt fólk Gauti Kristmannsson Skoðun Endurhæfing sem bjargar lífum – reynsla fólks hjá Hugarafli Auður Axelsdóttir,Grétar Björnsson Skoðun Skoðun Skoðun 3003 Elliði Vignisson skrifar Skoðun Lestin brunar, hraðar, hraðar Haukur Ásberg Hilmarsson skrifar Skoðun Segið það bara: Þetta var rangt – þá byrjar lækningin Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Loftslagsmál á tímamótum Nótt Thorberg skrifar Skoðun Séreignarsparnaðarleiðin fest í sessi Ingvar Þóroddsson skrifar Skoðun Hafa Íslendingar efni á að eiga ekki pening? Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Grundvallaratriði að auka lóðaframboð Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Íbúðalánasjóður fjármagnaði ekki íbúðalán bankanna! Hallur Magnússon skrifar Skoðun Húsnæðisliðurinn í vísitölu neysluverðs Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Viljum við hagkerfi sem þjónar fólki og náttúru, eða fólk sem þjónar hagkerfinu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Skattaglufuflokkar hinna betur settu þykjast hafa uppgötvað alla hina Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Þakklæti og árangur, uppbygging og samstarf Jóhanna Ýr Johannsdóttir skrifar Skoðun Hver vakir yfir þínum hagsmunum sem fasteignaeiganda? Ívar Halldórsson skrifar Skoðun Endurhæfing sem bjargar lífum – reynsla fólks hjá Hugarafli Auður Axelsdóttir,Grétar Björnsson skrifar Skoðun Hjúkrunarheimili í Þorlákshöfn – Látum verkin tala Karl Gauti Hjaltason skrifar Skoðun Lánið löglega Breki Karlsson skrifar Skoðun Annarlegar hvatir og óæskilegt fólk Gauti Kristmannsson skrifar Skoðun Frostaveturinn mikli Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Allir eru að gera það gott…. Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Þetta er ekki gervigreind Sigríður Hagalín Björnsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti börnum á forsendum þeirra Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Ofbeldislaust ævikvöld Gestur Pálsson skrifar Skoðun Er það þjóðremba að vilja tala sama tungumál? Jasmina Vajzović skrifar Skoðun „Íslendingar elska fábjána og vona að þeir geti orðið ráðherrar“ Jakob Bragi Hannesson skrifar Skoðun Nærri 50 ára starf Jarðhitaskóla GRÓ hefur skilað miklum árangri Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Óður til frábæra fólksins Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Djíbútí norðursins Sæunn Gísladóttir skrifar Skoðun Þegar veikindi mæta vantrú Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Öll börn eiga að geta tekið þátt Þorvaldur Davíð Kristjánsson skrifar Skoðun Krónan úthlutar ekki byggingalóðum Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Sjá meira
Viljum við hagkerfi sem þjónar fólki og náttúru, eða fólk sem þjónar hagkerfinu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun
Endurhæfing sem bjargar lífum – reynsla fólks hjá Hugarafli Auður Axelsdóttir,Grétar Björnsson Skoðun
Skoðun Viljum við hagkerfi sem þjónar fólki og náttúru, eða fólk sem þjónar hagkerfinu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar
Skoðun Skattaglufuflokkar hinna betur settu þykjast hafa uppgötvað alla hina Þórður Snær Júlíusson skrifar
Skoðun Endurhæfing sem bjargar lífum – reynsla fólks hjá Hugarafli Auður Axelsdóttir,Grétar Björnsson skrifar
Skoðun „Íslendingar elska fábjána og vona að þeir geti orðið ráðherrar“ Jakob Bragi Hannesson skrifar
Skoðun Nærri 50 ára starf Jarðhitaskóla GRÓ hefur skilað miklum árangri Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Viljum við hagkerfi sem þjónar fólki og náttúru, eða fólk sem þjónar hagkerfinu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun
Endurhæfing sem bjargar lífum – reynsla fólks hjá Hugarafli Auður Axelsdóttir,Grétar Björnsson Skoðun