Finnskur fjöldamorðingi á flótta handtekinn Atli Ísleifsson skrifar 26. október 2022 08:02 Juha Valjakkala gengur nú undir nafninu Nikita Bergenström. Finnska lögreglan Lögregla í Finnlandi handtók í gærkvöldi fangann Juha Valjakkala eftir að hann hafði flúið úr opnu fangelsi. Valjakkala var handtekinn eftir að ábendingar bárust frá almenningi.
Valjakkala, sem nú gengur undir nafninu Nikita Bergenström, var á sínum tíma dæmdur fyrir að hafa banað heilli fjölskyldu í kirkjugarði í Svíþjóð árið 1988. Lögregla í Finnlandi lýsti í gærmorgun eftir manninum eftir að sá hafði flúið úr Kerava-fangelsinu. Ekki er að fullu ljóst hvenær hann hafði flúið úr fangelsinu. Valjakkala drap móður, föður og fimmtán ára son þeirra í kirkjugarði í sænska bænum Åmsele í norðurhluta Svíþjóðar árið 1988. Hann skaut fyrst föðurinn og soninn með haglabyssu af stuttu færi í kirkjugarðinum, og skar svo móðurina á háls eftir að hún hafði komið í kirkjugarðinn í kjölfar þess að hafa heyrt skothljóðin. Valjakkala varð fyrst handtekinn ári síðar, árið 1989, og dæmdur í lífstíðarfangelsi vegna morðanna. Honum var sleppt árið 2007 eftir að hafa þá afplánað um tvo áratugi í fangelsi, sem þykir sérstaklega langur afplánunartími í Finnlandi. Juha Valjakkala drap móður, föður og fimmtán ára son þeirra í kirkjugarði í sænska bænum Åmsele árið 1988.Sænska lögreglan Honum var sleppt árið 2008 en einungis þremur mánuðum síðar var hann handtekinn á ný eftir þrjátíu kílómetra eftirför lögreglu. Finnskir fjölmiðlar segja að fanganum hafi verið lýst sem árásargjörnum manni sem glími við geðræn veikindi. Valjakkala hefur ítrekað reynt að flýja úr fangelsi. Árið 1994 tók hann fangavörð í gíslingu og flúði vopnaður úr fangelsi í bíl, en náðist skömmu síðar. Árið 2002 flúði hann úr fangelsinu í Pyhäselkä þegar hann var í dagsleyfi. Fyrir tveimur árum var hann dæmdur fyrir þjófnaðarbrot, ölvunarakstur, akstur án ökuréttinda, skjalafals og brot gegn valdstjórn. Hann var að afplána dóm vegna þeirra brota þegar hann flúði í þetta skiptið.
Finnland Erlend sakamál Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Fleiri fréttir Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Sjá meira