Áhersla á sjálfbærni í nýrri leigu og fagverslun BYKO BYKO 20. október 2022 13:16 Eggert Kristinsson, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs BYKO og Bragi Jónsson, rekstrarstjóri BYKO Leigu. BYKO Leiga opnaði nýverið útibú og verslun að Selhellu í Hafnarfirði sérstaklega hugsað fyrir fagaðila í byggingageiranum. Með þessu færist þungi starfseminnar í Hafnarfjörð og þar býðst viðskiptavinum mikið úrval af tækjum og búnaði til byggingaframkvæmda, bæði til leigu og kaups. „
Sérstaða BYKO Leigu er blandað úrval leigu- og söluvöru,“ segir Eggert Kristinsson, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs BYKO. „En einnig bjóðum við viðskiptavinum okkar upp á faglega ráðgjöf á sama tíma. Það er hægt að fara yfir málin með sérfræðingum BYKO og meta það hvort leiga eða kaup sé hagkvæmasta lausnin.“ Stærsti viðskiptavinur BYKO Leigu eru verktakafyrirtæki á markaði, en einnig bæjarfélög og stofnanir. „Rökin fyrir því að leigja frekar en að kaupa eru alltaf að verða sterkari,“ segir Bragi Jónsson, rekstrarstjóri BYKO Leigu. „Það er ekki síst að þakka aukinni umræðu um umhverfismál og sjálfbærni. Fólk leggur meiri áherslu á góða nýtingu, lítið kolefnisspor og deilihagkerfið. Það er að mörgu leyti umhverfisvænna að leigja en kaupa.“ Þrátt fyrir aukna áherslu á leigu, vilja sumir frekar eiga eigin tæki. Í fagverslun BYKO Leigu á Selhellu er lögð sérstök áhersla á þýska gæðamerkið Bosch og má kynna sér vörulínu þeirra í rafmagnsverkfærum í nýjum og glæsilegum sýningarsal. Einnig eru tæki frá Honda lykilvörur í versluninni á Selhellu og segir Eggert að þau hafi sannað gæði sín og endingu í áranna rás. Bætir hann við að mikið sé lagt upp úr persónulegri þjónustu og ráðgjöf enda býr starfsfólk BYKO yfir áratuga langri reynslu af öllu sem viðkemur verkfærum og framkvæmdum. Þessum tímamótum var fagnað með veislu í Selhellu á dögunum og þar var mjög glatt á hjalla eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.
Loftslagsmál Byggingariðnaður Mest lesið Ferðamálastofa fellir úr gildi starfsleyfi Eagle golfferða Viðskipti innlent Eldi verður eitt stærsta félag sinnar tegundar í heiminum Viðskipti innlent Kaup Netflix á hluta Warner Bros. gætu reynst „vandamál“ Viðskipti erlent „Beindu skammbyssu að höfðinu á mér og sögðu: I will kill you“ Atvinnulíf Reyna fjandsamlega yfirtöku á Warner Bros. Viðskipti erlent Linda fer ekki fram til áframhaldandi stjórnarsetu Viðskipti innlent Sjónvarpseríur á samfélagsmiðlum og gjörbreytt notkun á Facebook og Instagram Atvinnulíf Stærsti nóvembermánuður í sögu Icelandair Viðskipti innlent Fjöldi erlendra farþega stendur í stað en Íslendingum fækkar Viðskipti innlent Til Borealis Data Center eftir 22 ár hjá Össuri Viðskipti innlent Fleiri fréttir Einn áhrifamestu markaðsfræðimanna heims með erindi á ÍMARk Gatnamótin opin á ný við Fjarðarkaup Yfir milljón dagskrárliðir sóttir vikulega Greiðsluáskorun Jólagjöf ársins 2025 veltir sigurvegara síðustu tveggja ára úr sessi Ertu þremur mínútum frá draumastarfinu? Kerfi sem virka eins og lungu landeldisstöðva Sjá meira