Leigir fimm samherjum sínum sem stökkva stundum í barnapössun Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. september 2022 12:43 Óli Björn Vilhjálmsson skoraði fyrsta mark Harðar í efstu deild. vísir/hulda margrét Óli Björn Vilhjálmsson, fyrirliði Harðar, segir að Ísfirðingar bíði í ofvæni eftir fyrsta heimaleik sínum í efstu deild. Þrátt fyrir að leikmenn Harðar komi víða að er leikmannahópurinn samheldinn sem sést best á búsetu erlendu leikmanna liðsins.
Hörður steinlá fyrir Val, 38-28, í fyrsta leik sínum í efstu deild á föstudaginn. Harðarmenn fá annað tækifæri til að ná í sín fyrstu stig í efstu deild þegar KA-menn koma í heimsókn í 3. umferð Olís-deildarinnar klukkan 18:00 í kvöld. „Það er allt að smella. Við erum mjög spenntir, það eru auglýsingar um allt í bænum og mikið rætt við okkur um leikinn og tímabilið,“ sagði Óli í samtali við Vísi í morgun. Þrefaldir meistarar Vals sýndu Herði enga miskunn í jómfrúarleik þeirra og voru þrettán mörkum yfir í hálfleik, 22-9. Harðarmenn sneru þó bökum saman og unnu seinni hálfleikinn með þremur mörkum. Tíu marka tap var samt niðurstaðan úr þessum sögulega leik. Leikmenn Harðar koma úr ýmsum áttum.vísir/hulda margrét „Þetta var smá blaut tuska í andlitið. Við ætluðum að gefa þeim aðeins meiri leik en þetta en það var einhver skjálfti í okkur. Hann verður að vera farinn núna,“ sagði Óli sem skoraði fyrsta mark Harðar í leiknum gegn Val, og þar með fyrsta mark liðsins í efstu deild. „Það er mjög skemmtilegt að eiga það,“ sagði Óli sem hefur búið á Ísafirði í sex ár. Hann er sjálfur af mölinni og lék með Gróttu og Þrótti áður en hann flutti vestur. Kona hans er frá Ísafirði og þau hafa komið sér vel fyrir þar. Fimm ára markmiðið náðist á þremur árum Uppgangur Harðar hefur verið með ólíkindum en tímabilið 2019-20 endaði liðið í neðsta sæti 2. deildar. Óli hefur verið fyrirliði Harðar á þessum miklu uppgangsárum en upprisa félagsins hófst þegar Spánverjinn Carlos Martin Santos var ráðinn þjálfari þess. „Þegar Carlos kom ákváðum við að leggja aðeins meira púður í þetta og fengum tvo erlenda leikmenn með Íslendingunum. Upphaflega var þetta fimm ára plan en það náðist á þremur árum,“ sagði Óli. Óli reynir skot að marki Vals.vísir/hulda margrét Ekki verður annað sagt en leikmannahópur Harðar sé fjölbreyttur en í honum eru leikmenn frá níu löndum. Þrátt fyrir það segir Óli að hópurinn sé samstilltur og búseta erlendu leikmanna Harðar spilar þar inn í. „Fimm leikmenn leigja í húsinu hjá mér og hinir fjórir eru í öðru húsi. Við erum eiginlega alltaf saman,“ sagði Óli og bætti því við að það gæti verið hentugt að búa undir sama þaki og liðsfélagar sínir. „Það hefur alveg komið fyrir að þegar ég er í vinnunni og konan þarf að fara eitthvað að leikmaður hoppi í barnapössun. Ég held að þetta sé einsdæmi.“ Sigur ÍR tvíeggja sverð Markmið Harðar er einfalt; að vera réttu megin við fallstrikið og spila í Olís-deildinni á næsta tímabili. „Það er stefnan. Við kunnum alveg handbolta og það sást alveg í seinni hálfleiknum gegn Val, þótt leikurinn hafi verið búinn. Við þurfum bara að byggja ofan á það og þá getum við staðið í hverjum sem er. Það sást í síðustu umferð að hvaða lið getur unnið hvaða lið sem er,“ sagði Óli og vísaði til óvænts sigurs ÍR á Haukum. Carlos Martin Santos hefur náð framúrskarandi árangri með Hörð.vísir/hulda margrét Hann segir að þau úrslit hafi aukið trú Harðarmanna á að þeir sjálfir gætu sótt stig. En þar með voru jákvæðu afleiðingar sigurs ÍR-inga fyrir Harðarmenn upptalin. „Þau hjálpuðu okkur ekki heldur. Ekki að Valsmenn hafi ætlað að vanmeta okkur en það voru engar líkur á því eftir að Haukar fengu skell gegn ÍR. En þá sá maður að við getum plokkað stig af öllum og þetta er opið,“ sagði Óli. Hrollurinn farinn Valsmenn sýndu gestum sínum frá Ísafirði mikinn höfðingskap og afhentu þeim skjöld til minningar um fyrsta leikinn í efstu deild. Valur sýndi samt litla gestrisni þegar leikurinn var hafinn. „Síðan voru þeir ekkert almennilegir, nema eftir leik,“ sagði Óli hlæjandi. Hann trúir því að Harðarmenn séu lausir við mesta hrollinn og mæti tilbúnir til leiks í kvöld. „Ég vona það, að við getum sýnt okkar leik. Það býr meira í okkur en við sýndum gegn Val,“ sagði Óli að endingu.
Olís-deild karla Hörður Ísafjarðarbær Mest lesið Segir fjórðung í bók Óla ósannan Íslenski boltinn „Grimmileg áminning um hversu harkalegt og grimmt lífið getur verið“ Fótbolti Åge Hareide látinn Fótbolti „Er því miður kominn í jólafrí“ Handbolti Í fyrsta sinn rukkað inn á Fan Zone á HM Fótbolti Útilokar ekki breytingar: „Er klárlega að líta í kringum mig“ Körfubolti Davíð sendir hjartnæma kveðju til Hareide Fótbolti Setti heimsmet fyrir mömmu sína Sport Helmingur landsliðskvenna er undir lágmarkslaunum Fótbolti Dagskráin í dag: Píla og Álftanes með nýjan þjálfara Sport Fleiri fréttir „Er því miður kominn í jólafrí“ „Þetta var mjög skrítinn leikur“ Haukakonur í fjórða sætið KA/Þór - Valur 23-30 | Ótrúlegur viðsnúningur gestanna Ómar óstöðvandi og Magdeburg í undanúrslit Ómar Ingi fær meiri ábyrgð og tekur við kyndlinum af Aroni Ekkert stríð við Porto og einstakur Þorsteinn nítjándi maður Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Teitur fer á EM sem hornamaður í stað Sigvalda Snorri kynnti EM-strákana okkar Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Geggjaðar Eyjakonur á toppinn Þorsteinn Leó að ná sér „langt á undan áætlun“ Birtu tölvupóst þar sem efast er um heilsu forseta IHF Valdi ekki eigin leikmann í landsliðið Halda Orra og Sporting engin bönd Viktor Gísli stóð vaktina er fullkomið gengi Börsunga hélt áfram Snorri kynnir EM-fara í vikunni Mega handvelja lið utan Evrópu inn í Meistaradeildina EM ekki í hættu Á hækjum á milli leikja og þoldi sífellt verri sársauka Uppgjörið: Haukar - Fram 25-27 | Meistararnir unnu toppliðið í naglbít „Fannst við bara lélegir í kvöld“ Botnliðið hrellti Aftureldingu og KA lék sér að eldinum Flott endurkoma FH og Valur vann í 83 marka leik Elliði framlengir dvölina í Gummersbach Þórir í skýjunum: „Sit með lítið tár í augnkróknum“ Tíu mörk frá Hauki ekki nóg Sjá meira