Slitlagið á Dynjandisheiði lengist og bætt í við Flókalund Kristján Már Unnarsson skrifar 7. september 2022 19:01 Klæðningarflokkur Borgarverks í veðurblíðu á Dynjandisheiði í dag. Í baksýn sér niður í Arnarfjörð. Borgarverk/Bjarki Hlífar Stefánsson Klæðningarflokkur Borgarverks, sem undirverktaki ÍAV, lauk núna undir kvöld við að leggja síðari umferð bundins slitlags á fjögurra kílómetra kafla Vestfjarðavegar um Dynjandisheiði. Þar með hafa tólf kílómetrar malbiks bæst við á einu ári á þjóðveginn milli Flókalundar og Mjólkárvirkjunar en tvö ár eru frá því Íslenskir aðalverktakar hófu þennan fyrsta áfanga endurbóta vegarins um Dynjandisheiði.
Kaflinn sem núna var klæddur liggur um Helluskarð, milli Þverdals og Norðdalsár, en einnig var slitlag lagt á nýjan 600 metra kafla Bíldudalsvegar frá gatnamótum í skarðinu. Fyrri umferð slitlagsins var lögð á síðastliðinn mánudag, að sögn Bjarka Hlífars Stefánssonar, verkstjóra hjá Borgarverki. Nýi kaflinn liggur um Helluskarð. Fjöllin Isufell og Breiðafell hafa saman verið nefnd Hornatær, ásamt Klakki og Ármannsfelli, sem eru fjær.Borgarverk/Bjarki Hlífar Stefánsson Áður var búið að leggja bundið slitlag á rúma fjóra kílómetra milli Dynjanda og Mjólkár sem og á fjögurra kílómetra kafla úr Vatnsfirði um svokallaðan Pennusneiðing og upp fyrir Þverdalsá. Þá hefur Vegagerðin samið við ÍAV um að lagfæra malarkaflann milli Flókalundar og Pennusneiðings, sem er um eins kílómetra langur. Ekki verður þó farið í endurbyggingu heldur verður kaflinn breikkaður í haust í sama vegstæði og blindhæðir teknar af, að sögn Sigurþórs Guðmundssonar, verkefnisstjóra Vegagerðarinnar. Eins kílómetra malarkafli ofan Flókalundar verður lagður bráðabirgðaslitlagi þar til niðurstaða fæst um framtíðarvegstæði um friðland Vatnsfjarðar.Stöð 2 Slitlag bætist svo við næsta sumar en ótækt þótti að skilja þennan kafla eftir ómalbikaðan meðan tekist er á um nýtt framtíðarvegstæði um friðland Vatnsfjarðar. Brúin yfir Pennu, þar sem styttan stendur af Pennukarlinum, verður áfram einbreið. Sigurþór segir að öryggi verði þó bætt við brúna með vegriði á veginn beggja vegna að henni. Vinnuflokkur ÍAV að störfum á heiðinni í dag við Norðdalsá. Hann lagfærir síðan kaflann næst Flókalundi,Borgarverk/Bjarki Hlífar Stefánsson Sigurþór vonast jafnframt til að Suðurverk hefji sem allra fyrst vinnu við næsta áfanga á Dynjandisheiði, 12,6 kílómetra kafla frá Norðdalsá, norðan Bíldudalsgatnamóta, um hæstu hluta heiðarinnar og norður fyrir sýslumörk. Suðurverk átti lægsta boð í verkið upp á 2.455 milljónir króna. Framkvæmdatími er áætlaður tæp tvö ár og gert ráð fyrir verklokum 15. júlí 2024. Hér má sjá frétt Stöðvar 2 frá upphafi framkvæmda fyrir tveimur árum:
Vegagerð Samgöngur Umferðaröryggi Vesturbyggð Ísafjarðarbær Dýrafjarðargöng Tengdar fréttir Suðurverk átti lægsta boð í næsta áfanga vegarins yfir Dynjandisheiði Suðurverk hf. í Kópavogi átti lægsta tilboð í nýbyggingu Vestfjarðavegar á 12,6 kílómetra kafla á Dynjandisheiði. Tilboð Suðurverks hljóðar upp á 2.455 milljónir króna sem var 1,8 prósent, eða 42 milljónum króna, yfir áætluðum verktakakostnaði upp á 2.412 milljónir króna. 5. júlí 2022 14:41 Malarköflum fækkar um tvo á hringleiðinni um Vestfirði Fyrsti kaflinn á Dynjandisheiði sem lagður er bundnu slitlagi var opnaður umferð um helgina og hefur malarköflum á Vestfjarðahringnum núna fækkað um átta kílómetra. 27. júní 2022 23:22 Klæðning lögð um Pennudal áleiðis upp á Dynjandisheiði Klæðningarflokkur frá Borgarverki, undirverktaka ÍAV, hóf í morgun að leggja fyrri umferð bundins slitlags á kafla Vestfjarðavegar um Pennudal, eða Penningsdal, ofan Flókalundar í Vatnsfirði. Þetta er vegarkafli sem opnaður var umferð í nóvember en ekki náðist þá að klæða hann fyrir veturinn vegna óhagstæðs veðurs. 14. júní 2022 15:40 Keppast við vegabætur áður en holskefla ferðamanna ríður yfir Vestfirðingar gleðjast yfir því í dag að ferðabókaútgefandinn Lonely Planet hafi sett fjórðunginn í efsta sæti yfir þau svæði heims sem best sé að heimsækja á næsta ári. Ferðamanna bíða hins vegar holóttir malarvegir og einbreiðar brýr fyrir vestan og það stefnir í bið eftir næsta áfanga á Dynjandisheiði. 28. október 2021 22:46 Þurfa að vinna rösklega í vetur á Dynjandisheiði Framkvæmdir eru komnar á fullt við fyrsta áfanga nýs þjóðvegar yfir Dynjandisheiði. Fyrstu tíu kílómetrarnir eiga að vera tilbúnir með malbiki innan ellefu mánaða. Myndir frá sprengingum á verkstað mátti sjá í fréttum Stöðvar 2. 17. nóvember 2020 22:08 Samgöngufélagið hvetur til þverunar Vatnsfjarðar Átök gætu verið í uppsiglingu um þverun Vatnsfjarðar í Barðastrandarsýslu. Könnun sem áhugafélag um samgöngur lét gera sýnir verulegan stuðning við þverun. Undirstofnanir umhverfisráðuneytis, sem og sveitarfélagið Vesturbyggð, leggjast hins vegar gegn hugmyndinni. 21. júlí 2021 22:22 Mest lesið „Þetta verður allt saman stórvarasamt í fyrramálið“ Veður Spyr hvort ökumenn myndu keyra á gangandi á götunni Innlent Myndskeiðið segi ekki alla söguna Innlent Ein hinna reknu segir konunum kastað fyrir ljónin Innlent Fastur heima í þrjá daga út af engum mokstri Innlent „Auðvitað slær þetta mig ekki vel“ Innlent Kallar Biden ljótan að utan sem innan og vill hann í fangelsi Erlent Svipt barnabótunum vegna flugmiðakaupa Erlent „Fyrstu þrjú árin sem ég var veik voru algjört helvíti“ Innlent Útlit fyrir nauman sigur frjálslyndra og fyrsta samkynheigða forsætisráðherra landsins Erlent Fleiri fréttir Opnun Brákarborgar frestað enn á ný Ögmundur Ísak ráðinn til þingflokks Sjálfstæðisflokksins Viðbrögð hjólreiðamannsins að einhverju leyti skiljanleg Fjárhagsstaðan alvarleg hjá ríkislögreglustjóra Formannskosningu Pírata frestað Fastur heima í þrjá daga út af engum mokstri Þurfa mögulega að fresta formannskosningu vegna formgalla Flughálka í kortunum, breytingar hjá bönkunum og formaður Pírata Reyna að lokka íslenska lækna heim Óvenjulegir smáskjálftar reyndust sprengingar Ein hinna reknu segir konunum kastað fyrir ljónin Fylgjast með smáskjálftum við Bláa lónið Kirkjuþing skorar á stjórnvöld að hækka sóknargjald Ósammála ráðherra um að atkvæðajafnvægi sé mannréttindamál Ungir innflytjendur á Íslandi ekki jafn jaðarsettir og í Svíþjóð Leita til UNESCO vegna Vonarskarðs og kæra kynjahalla Aukin verðbólga áhyggjuefni og asahláka í kortunum Spyr hvort ökumenn myndu keyra á gangandi á götunni Séra Flosi Magnússon fallinn frá Að jafnaði tilkynnt um tólf kynferðisbrot í hverri viku Var ofurölvi þegar hann hljóp yfir Reykjanesbraut „Auðvitað slær þetta mig ekki vel“ Fundi slitið án árangurs og nýr ekki boðaður „Fyrstu þrjú árin sem ég var veik voru algjört helvíti“ Vill sjá byggingakrana í Úlfarsárdal á næsta ári Reikna með flughálum vegum Fagnar aðgerðum en telur húsnæðispakkann „fremur rýran“ Úrskurðarnefnd klofin en framkvæmdaleyfi stendur Engar uppsagnir í farvatninu Þrír handteknir á stolnum bíl og dýnur teknar ófrjálsri hendi Sjá meira
Suðurverk átti lægsta boð í næsta áfanga vegarins yfir Dynjandisheiði Suðurverk hf. í Kópavogi átti lægsta tilboð í nýbyggingu Vestfjarðavegar á 12,6 kílómetra kafla á Dynjandisheiði. Tilboð Suðurverks hljóðar upp á 2.455 milljónir króna sem var 1,8 prósent, eða 42 milljónum króna, yfir áætluðum verktakakostnaði upp á 2.412 milljónir króna. 5. júlí 2022 14:41
Malarköflum fækkar um tvo á hringleiðinni um Vestfirði Fyrsti kaflinn á Dynjandisheiði sem lagður er bundnu slitlagi var opnaður umferð um helgina og hefur malarköflum á Vestfjarðahringnum núna fækkað um átta kílómetra. 27. júní 2022 23:22
Klæðning lögð um Pennudal áleiðis upp á Dynjandisheiði Klæðningarflokkur frá Borgarverki, undirverktaka ÍAV, hóf í morgun að leggja fyrri umferð bundins slitlags á kafla Vestfjarðavegar um Pennudal, eða Penningsdal, ofan Flókalundar í Vatnsfirði. Þetta er vegarkafli sem opnaður var umferð í nóvember en ekki náðist þá að klæða hann fyrir veturinn vegna óhagstæðs veðurs. 14. júní 2022 15:40
Keppast við vegabætur áður en holskefla ferðamanna ríður yfir Vestfirðingar gleðjast yfir því í dag að ferðabókaútgefandinn Lonely Planet hafi sett fjórðunginn í efsta sæti yfir þau svæði heims sem best sé að heimsækja á næsta ári. Ferðamanna bíða hins vegar holóttir malarvegir og einbreiðar brýr fyrir vestan og það stefnir í bið eftir næsta áfanga á Dynjandisheiði. 28. október 2021 22:46
Þurfa að vinna rösklega í vetur á Dynjandisheiði Framkvæmdir eru komnar á fullt við fyrsta áfanga nýs þjóðvegar yfir Dynjandisheiði. Fyrstu tíu kílómetrarnir eiga að vera tilbúnir með malbiki innan ellefu mánaða. Myndir frá sprengingum á verkstað mátti sjá í fréttum Stöðvar 2. 17. nóvember 2020 22:08
Samgöngufélagið hvetur til þverunar Vatnsfjarðar Átök gætu verið í uppsiglingu um þverun Vatnsfjarðar í Barðastrandarsýslu. Könnun sem áhugafélag um samgöngur lét gera sýnir verulegan stuðning við þverun. Undirstofnanir umhverfisráðuneytis, sem og sveitarfélagið Vesturbyggð, leggjast hins vegar gegn hugmyndinni. 21. júlí 2021 22:22