Öruggt hjá Blikakonum sem halda í við Val Valur Páll Eiríksson skrifar 5. ágúst 2022 21:05 Breiðablik er tveimur stigum á eftir Val í toppbaráttunni. Vísir/Hulda Margrét Breiðablik vann sinn sjötta sigur í röð í Bestu deild kvenna í fótbolta í kvöld er Keflavík var í heimsókn í Kópavogi.
Blikakonur hafa verið á mikilli siglingu en liðið hafði unnið fimm leiki í röð fyrir þann í kvöld, með markatöluna 19-1. Keflavík hafði hins vegar tapað fjórum af fimm leikjum fyrir kvöldið og sat í sjöunda sæti deildarinnar með tíu stig. Keflavík hefur reynst ákveðin grýla fyrir Blikakonur sem höfðu spilað þrjá leiki í röð við Suðurnesjakonur án þess að sigra. Það tók Blikakonur töluverðan tíma að brjóta ísinn en þar var að verki Clara Sigurðardóttir sem skoraði nánast frá marklínu í uppbótartíma fyrri hálfleiks eftir góðan undirbúning Birtu Georgsdóttur á hægri kantinum. Birta var aftur á ferðinni þegar níu mínútur voru liðnar af síðari hálfleiknum en þá skallaði hún fyrirgjöf Áslaugar Mundu Gunnlaugsdóttur frá vinstri í netið. Sjö mínútum síðar, á 61. mínútu, skoraði Agla María Albertsdóttir sitt annað mark í jafnmörgum leikjum frá því að hún sneri aftur til Blika eftir skammvinna dvöl í Svíþjóð. Leiknum lauk 3-0 Blikakonum í vil en liðið er þá með 27 stig í öðru sæti deildarinnar, aðeins tveimur á eftir toppliði Vals. Keflavík er sem fyrr með tíu stig í sjöunda sæti, þremur frá fallsæti.
Besta deild kvenna Breiðablik Keflavík ÍF Mest lesið Biður Dag afsökunar Handbolti Leynast öflugar íslenskar skyttur einhvers staðar? Handbolti Gísli Þorgeir og Viktor Gísli á toppnum en Óðinn í öðru sæti Handbolti Sjáðu sturlað mark Solanke og ótrúlegar lokamínútur á Old Trafford Enski boltinn Bónus frá ríkinu, bannaða bandið og aftur hátíð fyrir Dag og hans menn Handbolti Gísli Þorgeir og allir hinir verðlaunastrákar sögunnar Handbolti Með fleiri mörk með langskotum en Ísland og samt með sex færri leiki spilaða Handbolti „Fáránlegt ef við ætlum að fara breyta til“ Handbolti Ákváðu að spila þrátt fyrir banaslys á leið á mótið og unnu síðan mótið Sport Segja að bestu árin hjá þessum hóp séu fram undan Handbolti Fleiri fréttir Meistararnir fá liðsstyrk af Akranesi „Búið að vera smá erfitt fyrir hausinn en svona gerist“ Bragi Karl stimplaði sig inn með marki í fyrsta leik Íslandsmeistararnir byrja vel og KR sótti sigur á Akureyri Valur er Reykjavíkurmeistari árið 2026 Davíð Smári sækir fleiri leikmenn úr bikarævintýrinu Varafyrirliða FH sagt að finna sér nýtt félag Berglind Björg ólétt Fram fær liðsstyrk úr Mosó og markvörðurinn framlengir Heiðdís leggur skóna á hilluna Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Blikar farnir að fylla í skörðin Víkingur og Breiðablik mætast í fyrsta leik Bestu deildarinnar Sjá meira