Magnaður Morant lét sverfa til stáls gegn Stríðsmönnunum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. maí 2022 08:31 Vörn Golden State Warriors réði ekkert við Ja Morant. getty/Justin Ford Ja Morant átti stórkostlegan leik þegar Memphis Grizzlies jafnaði metin í einvíginu gegn Golden State Warriors með 106-101 sigri í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Vesturdeildar NBA í nótt.
Morant skoraði 47 stig og hefur ekki gert fleiri stig í leik í úrslitakeppni á ferlinum. Hann var magnaður undir lokin og skoraði síðustu fimmtán stig Memphis í leiknum. Á sama tíma skoraði Golden State aðeins fjögur stig. Auk þess að skora 47 stig tók Morant átta fráköst og gaf átta stoðsendingar. Enginn samherja hans skoraði meira en fjórtán stig. EVERY BUCKET of @JaMorant's 47-point (ties playoff career-high) performance to tie up the series for the @memgrizz! #GrindCity@JaMorant: 47 PTS, 8 REB, 8 AST, 3 STL, 5 3PM Game 3: Sat. 8:30pm/et on ABC pic.twitter.com/KZWVFZSe0Q— NBA (@NBA) May 4, 2022 Stephen Curry skoraði 27 stig fyrir Golden State og Jordan Poole tuttugu. Stríðsmennirnir voru kaldir fyrir utan þriggja stiga línuna og hittu aðeins úr sjö af 38 skotum sínum þaðan (18,4 prósent). Boston Celtics sigraði meistara Milwaukee Bucks, 109-86, og jafnaði þar með metin í einvígi liðanna í undanúrslitum Austurdeildarinnar. Jaylen Brown skoraði þrjátíu stig, þar af 25 í hálfleik og Jayson Tatum 29 fyrir Boston sem var með 46,5 prósent þriggja stiga nýtingu í leiknum. Á meðan var Milwaukee með 16,7 prósent nýtingu fyrir utan. Grant Williams lagði 21 stig í púkkið af bekknum og hitti úr sex þristum eins og Brown. Jaylen Brown poured in 25 points (9/10 FGM) in the first half on his way to 30 points and the @celtics Game 2 win to even the series at 1-1! #BleedGreen@FCHWPO: 30 PTS (11/18 FGM), 5 REB, 6 AST, 2 STL, 6 3PM Game 3: Sat 3:30pm/et on ABC pic.twitter.com/7nhP0b2Zs4— NBA (@NBA) May 4, 2022 Jaylen Brown poured in 25 points (9/10 FGM) in the first half on his way to 30 points and the @celtics Game 2 win to even the series at 1-1! #BleedGreen@FCHWPO: 30 PTS (11/18 FGM), 5 REB, 6 AST, 2 STL, 6 3PM Game 3: Sat 3:30pm/et on ABC pic.twitter.com/7nhP0b2Zs4— NBA (@NBA) May 4, 2022 Giannis Antetokounmpo var með 28 stig, níu fráköst og sjö stoðsendingar hjá Milwaukee og Jrue Holiday nítján.
NBA Mest lesið Åge Hareide látinn Fótbolti Davíð sendir hjartnæma kveðju til Hareide Fótbolti „Er því miður kominn í jólafrí“ Handbolti Útilokar ekki breytingar: „Er klárlega líta í kringum mig“ Körfubolti Í fyrsta sinn rukkað inn á Fan Zone á HM Fótbolti Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Svona endaði Sambandsdeildin: Finnarnir áfram eftir jafntefli við Palace Fótbolti „Svo lengi sem það er ekki jákvæð og góð umfjöllun um okkur erum við sáttir“ Körfubolti „Ánægður að spila ekki betur en þetta en vinna samt“ Körfubolti Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Handbolti Fleiri fréttir Útilokar ekki breytingar: „Er klárlega líta í kringum mig“ Uppgjörið: Keflavík - Njarðvík 93-83 | Enn taplausir í Sláturhúsinu „Ánægður að spila ekki betur en þetta en vinna samt“ „Svo lengi sem það er ekki jákvæð og góð umfjöllun um okkur erum við sáttir“ „Hefðum þurft að hafa heppnina með okkur í liði“ ÍR - Valur 82-85 | Baráttusigur í Breiðholti „Sáttur að geta farið heim, borðað vel og fengið mér nokkra kalda“ Tindastóll - KR 130-117 | Kláruðu gestina í seinni hálfleik Þór Þ. - Grindavík 94-106 | Baráttusigur gegn löskuðu liði Þórs Liðsfélagar Guðbjargar ekki fæddir þegar hún spilaði fyrsta leikinn Þola þeir ekki gott umtal? „Helmingur minna leikmanna skilur ekki íslensku“ „Ef við hefðum ekki verið að setja þessi skot þá hefðum við skíttapað“ KR á toppinn Uppgjörið: Grindavík - Haukar 92-93 | Fullkomin jólagjöf Spilaði 13 mínútur en var stigahæstur Rýndu í gamlar myndir: „Svakalega ertu kringlóttur í framan“ Guðbjörg fyrsta konan í fjögur hundruð leikina Stjarnan og Grindavík mætast í bikarnum Tryggvi og Sara best á árinu New York Knicks vann titil í nótt Umfjöllun: Keflavík 97 - 84 Ármann | Sannfærandi sigur heimakvenna Martin áfram í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar Valskonur ekki í neinum vandræðum á heimavelli Segir að Keflvíkingar hafi ekki þolað gott umtal Yngstur í sögu NBA til að skora fjörutíu stig Stjarnan jók á raunir Álftaness og Valsmenn slógu ÍR-inga út „Auðvitað var þetta sjokk“ Skór sem Jordan notaði seldust á tæplega níutíu milljónir Sagði fyrst nei við beiðni Kjartans: „Menn hálf skammast sín“ Breyttist úr hetju í skúrk: Rekinn út af fyrir að ögra LeBron Sjá meira