Fjárhagsvandræðin nálgast neyðarstig Sindri Sverrisson skrifar 28. mars 2022 08:30 Vestri vann sig upp í úrvalsdeild á síðustu leiktíð en er fallinn aftur niður í 1. deild. vísir/bára Bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar er með til skoðunar fjárhagsvandræði körfuknattleiksdeildar Vestra eftir að deildin óskaði eftir aðstoð vegna afar slæmrar rekstrarstöðu.
Í bréfi sem forráðamenn körfuknattleiksdeildar Vestra sendu bæjaryfirvöldum er gengið svo langt að segja að rekstur deildarinnar sé á hættustigi og nálgist nú neyðarstig. Rekja þeir ástæðurnar til áhrifa kórónuveirufaraldursins. Vísað er til bréfs deildarinnar til bæjarráðs frá því í ágúst 2020 þar sem farið var yfir hvernig helstu tekjupóstar hefðu horfið vegna faraldursins, og bent á að sama staða hefði verið uppi síðustu misseri. „Af þessum sökum leitum við til sveitarfélagsins í þeirri von að það sé tilbúið að stiga inn og forða því að áratuga starfi einnar af einkennisíþróttum Ísafjarðarbæjar sé stefnt í voða,“ segir í bréfinu. Fulltrúar Vestra og Héraðssambands Vestfjarða voru gestir bæjarráðs á fundi í síðustu viku og var niðurstaða fundarins að fela bæjarstjóra, Birgi Gunnarssyni, að vinna málið áfram. Vestri hefur leikið í efstu deild karla í körfubolta í vetur, Subway-deildinni, en eftir 112-91 tap gegn Breiðabliki í síðustu viku er ljóst að Vestri er fallinn þó að liðið eigi enn tvo leiki eftir.
Vestri Ísafjarðarbær Körfubolti Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Fleiri fréttir Keflavík - Stjarnan | Komast heimakonur á sigurbraut? Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Hætti við Lakers sökum hroka Kobe „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Bræður bættu stigamet pabba þeirra Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Uppgjörið: Álftanes-Keflavík 130-110 | Sóknarbolti á föstudagskvöldi Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Uppgjörið: Sindri-Tindastóll 71-78 | Frábær vörn Stólanna í lokin Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Einn nýliði í landsliðshópnum Baulað á LeBron og félaga en snéru taflinu við Starfsfólki og þjálfurum Knicks finnst það vera svikið Trump sakar LeBron um að sýna Bandaríkjunum vanvirðingu „Kærkominn“ og „lífsnauðsynlegur“ sigur „Ég hef áhyggjur en ég er ekki áhyggjufullur“ Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 98-90 | Fyrsti sigur Grindavíkur en Stjarnan bíður enn Uppgjörið: Njarðvík-Valur 85-93 | Ólík staða eftir öruggan Valssigur Uppgjörið: Höttur - ÍR 108-96 | Heimamenn sterkari í seinni Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Sýður á Hlyni eftir að met hans var bætt Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta Sjá meira