Engir miðar seldir í Peking Sindri Sverrisson skrifar 17. janúar 2022 17:00 Það er allt að verða klárt í Peking fyrir Vetrarólympíuleikana sem standa yfir frá 4.-20. febrúar. EPA-EFE/WU HONG Ekki verða seldir miðar til almennra áhorfenda, hvorki heimamanna né útlendinga, á Vetrarólympíuleikana sem hefjast í Peking í næsta mánuði.
Ástæðan er útbreiðsla kórónuveirufaraldursins. Mótshaldarar höfðu áður gefið út að erlendir áhorfendur yrðu ekki leyfðir en nú er ljóst að engir áhorfendur fá að kaupa miða. Aftur á móti verður ákveðnum, sérvöldum hópum fólks boðið að mæta á leikana og munu þeir áhorfendur þurfa að fara eftir ströngum sóttvarnareglum fyrir, á meðan og eftir að þeir mæta á leikana. Sömu reglur gilda varðandi ólympíumót fatlaðra sem fram fer í mars á sama stað. Skipulagsnefnd viðburðanna vildi ekki útskýra nánar hvernig þeir áhorfendur sem fá boð á þessi stærstu vetraríþróttamót heims yrðu valdir. Keppendur, þjálfarar og aðrir sem starfa við Verarólympíuleikana þurfa að sjálfsögðu einnig að hlíta ströngum sóttvarnareglum og verða í búbblu alla leikana, fjarri almenningi í Kína. Í síðasta mánuði tilkynnti ameríska NHL íshokkídeildin það að leikmenn deildarinnar yrðu ekki með í Peking vegna þeirra áhrifa sem kórónuveirufaraldurinn hefur haft á leikjadagskrána í deildinni.
Vetrarólympíuleikar 2022 í Peking Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fleiri fréttir KA slítur samstarfinu við Þór Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Dómari fótbraut óvart leikmann Carrick á blaðamannafundi: „Við eigum tvo frábæra leiki í þessari viku“ Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu „Þetta er svona Pollýönnuleikur akkúrat núna“ Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákonar grét eftir leik Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Dagskráin í dag: Bónus-deild kvenna og umferðinni lýkur í Newcastle Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Einmana á botninum í hléinu „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Sjá meira