Spænsku meistararnir björguðu stigi Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 9. janúar 2022 21:56 Geoffrey Kondogbia skoraði jöfnunarmark Atlético Madrid í kvöld. David S. Bustamante/Soccrates/Getty Images Spænsku meistararnir í Atlético Madrid björguðu stigi er liðið heimsótti Villareal í spænsku deildinni í kvöld. Lokatölur urðu 2-2, en Madrídarliðið er nú 16 stigum á eftir toppliði Real Madrid.
Angel Correa kom Atlético Madrid yfir strax á tíundu mínútu með frábæru marki, en heimamenn fengu heldur betur tækifæri til að jafna metin rúmum tíu mínútum síðar. Thomas Lemar handlék þá knöttinn innan eigin vítateigs og vítaspyrna dæmd. Gerard Moreno fór á punktinn fyrir Villareal, en Jan Oblak varði frá honum. Daniel Parejo tók frákastið og skoraði, en var dæmdur brotlegur og markið fékk því ekki að standa. Pau Torres jafnaði þó metin örfáum mínútum síðar og staðan var því 1-1 þegar flautað var til hálfleiks. Alberto Moreno kom heimamönnum svo yfir á 58. mínútu eftir stoðsendingu frá bróður sínum Gerard Moreno, en Geoffrey Kondogbia jafnaði metin fyrir Atlético Madrid tæpum tíu mínútum síðar og þar við sat. Lokatölur urðu því 2-2 og Atlético Madrid lyfti sér upp í fjórða sæti með þessu eina stigi. Liðið er með 33 stig eftir 20 leiki, fjórum stigum meira en Villareal sem situr í áttunda sæti.
Spænski boltinn Mest lesið Gunnar Nelson í sjómann við mann sem hann átti að mæta í búrinu Sport Missti stjórn á skapi sínu og réðst á mótherja Fótbolti Davíð Tómas skipti um skoðun: „Ég var of fljótur á mér“ Körfubolti Hallgrímur Jónasson: „Staðan er bara alvarleg“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Valur - Grindavík 79-72 | Baráttuglaðir Valsmenn jöfnuðu einvígið Körfubolti Sagan skrifuð í Lúndunamaraþoninu: „Urðum vitni að einhverju ótrúlegu“ Sport Davíð Tómas segir flautukörfu Hilmars Smára löglega: „Ekki skref“ Körfubolti Áfall fyrir Valsmenn: Frank Aron fór sárþjáður af velli Körfubolti Albert áberandi í sóknarleik Fiorentina en mörkin komu ekki Fótbolti Sjáðu öll mörkin úr Bestu deild kvenna: Draumabyrjun nýliðanna og dramatík fyrir norðan Íslenski boltinn Fleiri fréttir Umfjöllun og viðtöl: KA 1-2 Keflavík | Fyrsti sigur Keflavíkur Hallgrímur Jónasson: „Staðan er bara alvarleg“ Missti stjórn á skapi sínu og réðst á mótherja Elías Rafn hélt hreinu í toppslagnum Hákon á sínum stað er Lille vann mikilvægan sigur Olivia Smith tryggði Arsenal dramatískan sigur Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Fékk rautt fyrir að rífa í hár mótherja: „Þetta er alveg galið“ Orri skoraði en bikarmeistararnir köstuðu frá sér sigrinum Albert áberandi í sóknarleik Fiorentina en mörkin komu ekki Sjáðu öll mörkin úr Bestu deild kvenna: Draumabyrjun nýliðanna og dramatík fyrir norðan Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Vinni gegn Jóni Degi að vera með vegabréf frá Íslandi Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Uppgjörið: Valur 2-1 Grindavík/Njarðvík | Ísabella Sara hetja Valskvenna Uppgjörið: Þór/KA 1-1 FH | Dramatískt jöfnunarmark og töpuð stig Jón Dagur þaggaði niður í gagnrýnendnum með mögnuðu marki Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Glódís stóð vaktina gegn Barcelona og allt opið í einvíginu Birta skoraði en mátti þola tap í Íslendingaslag HK byrjar á sigri Börsungar að stinga af Þriðji sigur Liverpool í röð Draumabyrjun Þróttara en jafnt fyrir vestan Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fanney hélt hreinu og Häcken vann fyrri úrslitaleikinn Uppgjörið: Fram - ÍBV 3-4 | Nýliðarnir unnu í sjö marka leik Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Sjá meira
Sjáðu öll mörkin úr Bestu deild kvenna: Draumabyrjun nýliðanna og dramatík fyrir norðan Íslenski boltinn
Sjáðu öll mörkin úr Bestu deild kvenna: Draumabyrjun nýliðanna og dramatík fyrir norðan Íslenski boltinn