Að rjúfa hin helgustu vé Ingibjörg Elsa Björnsdóttir skrifar 2. desember 2021 08:31 Í Töfraflautunni eftir Mozart situr Sarastro í hinum helgu musterum fornaldar og geymir visku heimsins. Eitt sinn fyrir langa löngu var visku heimsins aðallega að finna í Forn-Egyptalandi. Gullöld Egyptalands hófst með prestinum Imhotep og Faraónum Djozer en saman létu þeir byggja fyrsta eiginlega pýramídan í Sakkara. Þetta er talið hafa átt sér stað 2667-2648 fyrir Krists burð. Þessi bygging pýramídans í Sakkara varð upphaf blómaskeiðs egypskar menningar og mannsanda. Enn er margt um Forn-Egyptaland sem við skiljum alls ekki. Og merkilegt nokk er ýmislegt í heiminum sem við hreinlega eigum ekki að reyna að skilja. Hið sorglega og alvarlega við málefni Forn-Egyptalands í nútímanum er að heimurinn í dag er orðinn svo afhelgaður að vestræn vísindi og vestrænir vísindamenn bera ekki virðingu fyrir neinu. Afríkumenn segja að allir hvítir menn séu geðveikir. Þeir séu með veiki hvíta mannsins. Hvíti maðurinn eirir engu. Enn er verið að grafa upp fornar grafir í Egyptalandi, opna þær og „ræna“ jafnvel þótt ránsfengurinn sé fluttur til forláta safna í Kaíró eða til safna í Bandaríkjunum og Evrópu. Engum lifandi manni virðist detta í hug að ef til vill sé verið að raska grafarró og rjúfa hin helgustu vé með ófyrirsjáanlegum afleiðingum fyrir allt mannkyn. Það dettur engum í hug að sumt eigi vísindin hreinlega ekki að vita. Stundum vildi ég að menn tryðu enn á Horus, Isis eða ástargyðjuna Hathor bara til þess að þeir myndu átta sig á því að suma hluti á einfaldlega að láta í friði. Nú er það svo að afkomendur Forn-Egypta eru í dag aðallega koptískt kristnir menn. Þeir eru innan við 5% af heildarmannfjölda Egyptalands í dag. Kristnir koptar sæta ýmiss konar ofsóknum af hálfu ráðandi afla í Egyptalandi. Þeir eiga stöðugt undir högg að sækja. Samt eru þeir afkomendur þeirra sem byggðu pýramídana. Það er verið að reyna að þurrka menningu þeirra og sérstöðu út. Þannig er verið að reyna að eyða Forn-Egyptalandi á allan mögulegan hátt. Bæði er fornleifum eytt og svo og menningu. Samkvæmt goðsögnum sem trúlausir vestrænir vísindamenn trúa ekki á, er það ljónagyðjan Sekhmet sem getur einnig umbreyst yfir í köttinn Bastet sem er það sterka ljón sem verndar Faraóana. Sekhmet er blóðþyrst ljón og samkvæmt goðsögunni setti guðinn Toth hana í heilagt bað og þá breyttist hún samstundis í hinn þýða kött Bastet, sem er hæfur til að búa í híbýlum manna. Það voru nefnilega Forn-Egyptar sem fyrstir gerðu ketti að gæludýrum. Samkvæmt hefðum í Afríku fylgir því ógæfa að drepa ljón. Konur mega aldrei drepa ljón eða ketti. Aðeins karlmenn mega drepa ljón og þá aðeins ef ljónið er orðið gamalt og farið að leggjast á menn. Allir töfralæknar og sangoma í allri Afríku eru ljóna töfralæknar því eins og allir í Afríku vita eru ljón góð í eðli sínu og orku þeirra má nota til lækninga. Hins vegar fer ljónum í Afríku ört fækkandi vegna þess að hvítir, særðir, miðaldra karlmenn sem eru með minnimáttarkennd í sálinni telja það einhvers konar manndómsvígslu að fara til Afríku og skjóta varnarlaust ljón sem jafnvel er stillt upp beint fyrir framan nefið á þeim af innfæddum til þess að hinn heimski hvíti maður hitti nú örugglega dýrið í fyrsta skoti. Sér er nú hver hetjuskapurinn. Í dag er fátt um ljón í Egyptalandi. Bæði hafa orðið loftslagsbreytingar. Egyptaland er þurrara í dag en það var á dögum Forn-Egypta. Einnig hnignaði Forn-egypskri menningu á lokastigum þannig að menn fóru að veiða ljón. Þá færðu ljónin sig einfaldlega suður á bóginn. Þau eru nefnilega ekki eins heimsk og við mannskepnurnar höldum. En aðalatriðið er það að Bretar, Frakkar, Ítalir og aðrar Evrópuþjóðir eru skyldugar til að skila öllum þeim fjársjóðum sem þær hafa rænt frá Forn-Egyptum aftur til Egyptalands. Forn-Egyptar eiga einfaldlega sína fjársjóði sjálfir. Arabar sem reka safnið í Kairó eiga líka að setja fornleifarnar aftur á sinn stað. Sumir hlutir eru helgir og heilagir og eiga að fá að vera í friði. Annars getur farið illa fyrir öllu mannkyni. Það er augljóst, ekki satt? Höfundur er M.A., M.Sc., þýðingafræðingur og efnafræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ingibjörg Elsa Björnsdóttir Mest lesið Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Skoðun Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Beislið sem hnýtir sig sjálft Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Sjá meira
Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar