Konur í Mið-Afríkulýðveldinu fá ágóða FO-bolanna Heimsljós 26. nóvember 2021 13:22 Sameinuðu þjóðirnar Mið-Afríkulýðveldið hefur verið nefnt „gleymda ríkið“ þar sem staða íbúa er sérstaklega slæm í ljósi stöðugra átaka undanfarin ár. Safnast hafa 11,5 milljónir króna vegna sölu nýs FO-bols og rennur ágóðinn óskertur til verkefna UN Women í Mið-Afríkulýðveldinu. „Það er ánægjulegt að segja frá því að við höfum sent 11,5 milljónir króna til verkefna UN Women í Mið-Afríkulýðveldinu,” segir Stella Samúelsdóttir framkvæmdastýra UN Women á Íslandi. Að sögn Stellu hefur almenningur streymt í verslanir Vodafone og vefverslun unwomen.is undanfarnar vikur, nælt sér í bol og stutt um leið við starf UN Women. Hún segir að á hverri klukkustund sé kona eða stúlka í Mið-Afríkulýðveldinu beitt kynferðisofbeldi. Mið-Afríkulýðveldið hafi verið nefnt „gleymda ríkið“ þar sem staða íbúa er sérstaklega slæm í ljósi stöðugra átaka undanfarin ár. „Í þessum átökum hafa nauðganir og kynferðisofbeldi verið notað sem stríðsvopn og glímir fjöldi kvenna og stúlkna við skelfilegar afleiðingar þess. UN Women gleymir ekki og veitir þolendum ofbeldis í Mið-Afríku sálræna aðstoð og aðstoðar þá við að sækja sér læknis- og lögfræðiaðstoð,“ segir Stella og bætir við að einnig veiti UN Women heilbrigðisstarfsfólki þjálfun við að bera kennsl á ummerki heimilisofbeldis og hvernig nálgast eigi þolendur. „Við hjá UN Women á Íslandi eigum í einstöku samstarfi við Vodafone sem styðja við verkefni UN Women með þeim hætti að greiða fyrir framleiðslu á FO húfum og bolum undanfarin fimm ár. Styrkur Vodafone hefur gert UN Women á Íslandi kleift að senda yfir 70 milljónir til verkefna UN Women víðsvegar um heim nú fimm ár í röð. Við erum afar þakklát og stolt af samstarfi okkar við Vodafone sem sýnir þor og dug við að styðja við útrýmingu ofbeldis bæði hér á Íslandi og á heimsvísu. Einnig erum við gríðarlega þakklát öllum þeim sem hafa keypt FO bolinn og taka um leið skýra afstöðu gegn ofbeldi,“ segir Stella. Enn eru nokkrir FO bolir til sölu og UN Women hvetur fólk til að næla sér í eintak og styðja við þetta mikilvæga málefni. Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál. Þróunarsamvinna Mið-Afríkulýðveldið Jafnréttismál Kynferðisofbeldi Mest lesið Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Innlent Nauðlenti vegna sprengjuhótunar Erlent Hrákinn endaði í andliti og auga Innlent Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Erlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent
Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Mið-Afríkulýðveldið Jafnréttismál Kynferðisofbeldi Mest lesið Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Innlent Nauðlenti vegna sprengjuhótunar Erlent Hrákinn endaði í andliti og auga Innlent Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Erlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent