Ekki grunur um að gos sé í vændum en Hekla undir smásjá Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 11. nóvember 2021 16:20 Ljósmynd frá Heklugosi árið 2000. Vísir/Vilhelm Ekki er talin hætta á að Hekla muni gjósa eftir að jarðskjálfti af stærðinni 5,2 reið yfir Suðurlandið í dag. Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og sérfræðingar Veðurstofu Íslands hafa lokið fundi sínum um skjálftann og telja hann ekki tengjast Heklu beint. „
Það voru flestir sammála um að þetta væri týpískur Suðurlandsskjálfti. Auðvitað er þetta bara nokkra kílómetra frá Heklu þannig að hún finnur fyrir þessu en þetta var ekki Hekluskjálfti,“ segir Elísabet Pálmadóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands. Skjálftinn er flokkaður sem Suðurlandsskjálfti en hann reið yfir klukkan 13:21 í dag. Síðan stóri skjálftinn reið yfir hafa 150 eftirskjálftar fylgt en þeir hafa allir verið undir 3 af stærð að sögn Elísabetar. „Við fylgjumst mjög vel með og auðvitað setjum við Heklu undir smásjá til öryggis þó ekkert bendi nú til að gos sé yfirvofandi. En við viljum bara fylgjast vel með,“ segir Elísabet. Hún segir að niðurstaða fundarins hafi verið sú að ekki væri tilefni til að lýsa yfir óvissustigi almannavarna á svæðinu. „Það var verið að ræða það en flestir voru sammála um að þetta sé ekki beint tengt Heklu. Það var ekki tilefni til að færa Heklu á gult-stig. Það er samt svolítið óþægilegt hvað þetta er nálægt þannig að við fylgjumst vel með.“
Eldgos og jarðhræringar Hekla Mest lesið Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Innlent Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum Innlent Sendi rangt skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Innlent Hvetur til allsherjarverkfalls ef Trump reynir að stela þingkosningunum Erlent Grunaður um grófa spillingu í kjölfar birtingar Epstein-skjala Erlent Mátti ekki kalla Samtökin '78 „hagsmunasamtök barnaníðinga“ Innlent „Flókið að koma saman framboði með fjóra flokka“ Innlent Hátt settur leyniþjónustumaður skotinn og særður í Moskvu Erlent Sorglegt að sonurinn sé aðeins tala á blaði Innlent Fór í flugtak af akbraut og hafnaði úti á grasi Erlent Fleiri fréttir Snjór á Hellisheiðinni Risa framkvæmd við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum „Flókið að koma saman framboði með fjóra flokka“ Ölvun og þjófnaðir Sendi rangt skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður „Gamlar“ kempur kenndu bridge á Laugarvatni Mátti ekki kalla Samtökin '78 „hagsmunasamtök barnaníðinga“ Aldrei eins lítið í læknum og fuglunum er tekið að fækka Sorglegt að sonurinn sé aðeins tala á blaði Skjálftahrina í Mýrdalsjökli „Við sáum það að þetta hreyfði við forsætisráðherra“ Fór ekki á milli mála að Jón Þór ætlaði að drepa hana Þurfa aftur að rannsaka mál tveggja barna á Múlaborg Sorglegt að vera einungis tala á blaði Konur í Framsókn sjá að sér Stjórnin treystir Margréti Enginn rökstuddur grunur um að önnur konan hafi brotið af sér Skila af sér breyttri Reykjavíkurleið í febrúar Framsóknarmenn takast hart á að tjaldabaki Mikil mótstaða íbúa á hitafundi um flutning kaffistofunnar Saka stjórnina um „óskhyggju, afneitun og ímyndaðan veruleika“ Grautfúl Kristrún og Vetrarhátíð hefst í kvöld Tíu tilkynnt um veikindi eftir að hafa borðað mat frá Vitatorgi Afturkalla endurvigtunarleyfi Brims vegna „stórfellds gáleysis“ Fimm prósent atvinnuleysi í lok árs 2025 Samningaviðræðum slitið og áframhaldandi samstarf Í-listans úr sögunni Margir sem þurfa að horfa eða hlusta til að sofna Úr fjölmiðlum í dýraverndarmál Sjá meira