Loka skólum og stofnunum í Suðurnesjabæ vegna Covid-smita Kjartan Kjartansson skrifar 4. nóvember 2021 22:21 Frá Sandgerði. Aðgerðastjórn Suðurnesjabæjar hefur ákveðið að loka skólum og stofnunum vegna Covid-19-smita sem hafa greinst á meðal starfsfólks á leikskóla og nemenda í grunnskólanum. Lokanirnar eiga að koma í veg fyrir frekari dreifingu veirunnar.
Starfsfólk á leikskólanum Sólborg í Sandgerði og nemendur í Sandgerðisskóla hafa greinst smitaðir af Covid-19. Því ákvað aðgerðastjórnin að loka Sólborg um óákveðinn tíma á meðan smitrakning stendur yfir og þar til tekist hefur að ná utan um ástandið. Þá fellur skólahald í Sandgerðisskóla niður á morgun, föstudaginn 5. nóvember. Auk þess verður Íþróttamiðstöðin í Sandgerði lokuð frá og með morgundeginum og yfir helgina. Félagsmiðstöðin Skýjaborg verður lokuð þar til annað verður ákveðið og kennsla í Tónlistarskólanum í Sandgerði fellur niður á morgun. Bókasafn Suðurnesjabæjar í sandgerði verður einnig lokað fram yfir helgi. Til stendur að endurmeta aðgerðirnar í byrjun næstu viku, að því er segir í tilkynningu á vef Suðurnesjabæjar. Bæjaryfirvöld á Akranesi hafa einnig gripið til umfangsmikilla aðgerða og lokana á skólum og stofnunum til að komast fyrir hópsýkingu þar. Fjöldi smitaðra í gær var sá þriðji hæsti á einum degi frá upphafi faraldursins og aldrei hafa fleiri greinst smitaðir utan sóttkvíar á einum degi.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Suðurnesjabær Grunnskólar Leikskólar Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Fleiri fréttir Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? Sjá meira