Brian Laundrie sá sem fannst látinn í gær Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 21. október 2021 22:09 Síðast sást til Brians um miðjan september en hann hélt inn í Carlton náttúruverndarsvæðið einn síns liðs 14. september. Síðan hefur lögreglan leitað hans á svæðinu. Octavio Jones/Gett Líkamsleifar sem fundust á náttúruverndarsvæðinu Myakkahatchee Creek í Flórída í gær eru sagðar tilheyra Brian Laundrie, sem Alríkislögregla Bandaríkjanna, FBI, hefur leitað í rúman mánuð í tengslum við morðið á kærustu hans, Gabrielle Petito.
Foreldrar Laundrie fundu líkamsleifarnar í gærmorgun þegar þau voru á göngu um svæðið í leit að syni sínum. Svæðið hefur verið lokað almenningi undanfarinn mánuð en var opnað aftur fyrir almenna umferð í fyrradag. Foreldrarnir Chris og Roberta Laundrie tilkynntu FBI sama kvöld að þau hyggðust fara og leita á svæðinu og gengu þau þá fram á leifarnar og bakpoka í eigu Brians. CNN greinir frá þessu. Að sögn lögmanns fjölskyldunnar, Stevens Bertolino, hefur FBI tilkynnt foreldrunum að líkamsleifarnar séu Brian. Tekist hafi að bera kennsl á líkið með því að bera tennurnar saman við heilsufarsgögn hans. FBI greindi frá því í gær að svæðið, sem er fenjasvæði, hafi við leit lögregunnar á svæðinu verið hulið vatni. Líkamsleifarnar hafi því ekki fundist við upprunalega leit en nú hafi svæðið þornað upp og foreldrarnir því gengið fram á líkið. Brians var leitað í tengslum við morðið á kærustu hans, Gabrielle Petito, sem fannst látin í þjóðgarði í Wyoming 19. september síðastliðinn. Kærustuparið hafði verið á ferðalagi um Bandaríkin saman en hún horfið í lok ágúst. Eftir að lík Petito fannst staðfesti réttarmeinafræðingur að hún hafi verið myrt með kyrkingu. Brian sneri aftur heim til foreldra sinna í Flórída 1. september einn síns liðs og hafði neitað að ræða málið við lögreglu. Það var svo þann 14. september sem foreldrar hans tilkynntu lögreglunni að hann hafi haldið inn á Carlton náttúruverndasvæðið, sem hann gekk oft um, einn síns liðs. Síðan þá hefur lögreglan leitað hans.
Bandaríkin Gabrielle Petito Erlend sakamál Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Sjá meira