Sóknarleikurinn allsráðandi er Keflavík lagði Grindavík | Breiðablik sótti sigur í Borgarnes Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 20. október 2021 22:00 Anna Ingunn var frábær í kvöld. Vísir/Bára Dröfn Keflavík lagði Grindavík með 20 stiga mun er liðin mættust í Subway-deild kvenna í kvöld, lokatölur 105-85. Þá vann Breiðablik 30 stiga sigur á Skallagrími í Borgarnesi.
Segja má að bæði lið hafi verið mætt til að sækja sigurinn í Keflavík í kvöld en sóknarleikur beggja liða var hreint út sagt frábær. Þegar sóknarleikur gengur jafn vel fyrir sig og raun bar vitni er það venjulega vegna þess að varnarleikurinn er lítill sem enginn. Úr varð samt hörkuleikur þar sem bæði lið skoruðu og skoruðu, því miður fyrir Grindavík var Keflavík töluvert betra og vann leikinn á endanum nokkuð sannfærandi þrátt fyrir að fyrri hálfleikur hafi verið nokkuð jafn. Lokatölur í Keflavík 105-85 og liðið nú með sex stig líkt og nágrannar sínir í Njarðvík sem töpuðu gegn Íslandsmeisturum Vals fyrr í kvöld. Anna Ingunn Svansdóttir var stigahæst í liði Keflavíkur með 27 stig. Ólöf Rún Óladóttir kom þar á eftir með 16 stig. Daniela Wallen Morillo var einni stoðsendingu frá þrefaldri tvennu en hún skoraði 15 stig, tók 12 fráköst og gaf níu stoðsendingar. Robbi Ryan var stórkostleg í liði Grindavíkur með 34 stig ásamt því að taka 12 fráköst og gefa sex stoðsendingar. Í Borgarnesi var Breiðablik í heimsókn og unnu gestirnir 30 stiga sigur, lokatölur 49-79. Skallagrímur hefur átt erfitt með að koma knettinum ofan í körfuna og það hélt áfram í kvöld. Eftir að skora 29 stig í fyrri hálfleik skoraði liðið aðeins sex stig í þriðja leikhluta og ljóst hvorum megin sigurinn myndi enda. Blikar slökuðu á klónni í fjórða leikhluta en unnu samt einstaklega sannfærandi sigur, lokatölur 79-49 gestunum í vil. Chelsey Moriah Shumpert var frábær í liði Breiðabliks með 28 stig, sjö stoðsendingar og sex fráköst. Anna Soffía Lárusdóttir skoraði 12 stig, tók átta fráköst og gaf fimm stoðsendingar. Chelsey Moriah Shumpert átti frábæran leik í kvöld.Vísir/Bára Dröfn
Körfubolti Íslenski körfuboltinn Subway-deild kvenna Keflavík ÍF UMF Grindavík Skallagrímur Breiðablik Mest lesið „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Körfubolti Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Fótbolti Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Fótbolti HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Átta rauð spjöld í sama leiknum Fótbolti Töframaðurinn Messi eða bara mistök hjá Íslandi? Sport Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti Fleiri fréttir LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Sjá meira