Hriktir í stoðum Icardi-hjónanna Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 18. október 2021 17:00 Mauro Icardi og Wanda Nara eftir úrslitaleik frönsku bikarkeppninnar í fyrra. getty/Jean Catuffe Það hriktir í stoðum hjónabands þeirra Mauros Icardi og Wöndu Nara miðað við færslur hennar á samfélagsmiðlum um helgina.
Nara er ekki bara eiginkona Icardis, sem leikur með Paris Saint-Germain, heldur einnig umboðsmaður hans. Mikla athygli vakti þegar þau tóku saman en Nara var þá gift Maxi López, þáverandi samherja Icardis hjá Sampdoria. Þau áttu þrjú börn saman. Nara og Icardi gengu í það heilaga 2013 og eiga tvö börn saman. En nú virðist babb hafa komið í bátinn. Nara hætti að fylgja Icardi á Instagram og sakaði hann um að hafa eyðilagt aðra fjölskyldu. Hann á að hafa haldið framhjá henni með fyrirsætunni Chinu Suárez. Nara birti svo mynd af sér á Instagram án giftingarhringsins. „Góðan dag. Ég kann betur við höndina á mér án hrings,“ skrifaði hún við myndina. Icardi þvertekur fyrir að hafa haldið framhjá Nöru. Orðrómurinn fékk samt byr undir báða vængi þegar hann fékk frí á æfingu hjá PSG á sunnudaginn vegna fjölskyldumála. Icardi lék áður með Inter og var meðal annars fyrirliði liðsins. Á þeim tíma var Nara óhrædd við að gagnrýna forráðamenn félagsins opinberlega.
Franski boltinn Ástin og lífið Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Góður sigur Stjörnunnar á meisturunum Fótbolti Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Handbolti Fleiri fréttir Siggi Raggi með NSÍ á toppnum „Búnar að vera svolítið litlar og linar“ „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ Getur Vinicius fengið brasilísku þjóðina til að elska sig? Leggja inn mótmæli vegna meðferðarinnar á Partey Katar - Sviss | Nær Katar að vinna sinn fyrsta leik á HM? HK-konur tvöfölduðu markaskor sumarsins í stórsigri á Stólunum Uppgjörið: Valur – Þór/KA 0-0 | Markalaust í bragðdaufum leik á Hlíðarenda Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fylkismenn fengu hjálp á síðustu stundu og unnu svo í framlengingu „Það er alltaf gaman að vera á þeim stað í töflunni“ „Stelpurnar voru bara geggjaðar“ Á sársaukafullar minningar af HM Uppgjör: FH komið á toppinn Uppgjörið: Sterk viðbrögð Grindavíkur/Njarðvíkur skiluðu mikilvægum sigri Stemningin á Times Square engri lík Góður sigur Stjörnunnar á meisturunum Uppgjör: Markalaust jafntefli þrátt fyrir fjörugan leik Stórsigur í Stokkhómsslagnum Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Verður ekki með í fyrsta leik á HM Æfingatækjum stolið af enska landsliðinu Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli „Hundgamall“ klefafélagi Tómasar spilar á HM Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Brasilísk fótboltagoðsögn lést rétt fyrir HM Páfinn gerður að heiðursfélaga hjá Real Madrid Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Sjá meira