Formanninum krossbrá þegar hann sá umdeilda Facebook-færslu Sigurðar G Jakob Bjarnar og Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifa 6. september 2021 11:56 Sigurður Örn Hilmarsson, formaður Lögmannafélags Íslands telur birtingu Sigurðar G. Guðjónssonar hæstaréttarlögmanns á myndum upp úr lögregluskýrslum vafasamar. En Sigurður G. fær ekki séð að tjáning hans sé á gráu svæði. samsett/vísir Sigurði Erni Hilmarssyni, formanni Lögmannafélags Íslands, brá beinlínis þegar hann sá ljósmyndir sem Sigurður G. Guðjónsson hæstaréttarlögmaður birti en þar má sjá brot úr lögregluskýrslu þar sem fjallað er um mál þeirra Þórhildar Gyðu Arnarsdóttur og Kolbeins Sigþórssonar knattspyrnumanns. „
Mér var sjálfum mjög brugðið þegar ég las þetta í morgun og fæ ekki skilið hvernig lögmanni getur dottið í hug að birta lögregluskýrslur eða viðkvæm gögn úr sakamálarannsókn á samfélagsmiðlum,“ segir Sigurður Örn í samtali við fréttastofu. Æj, pabbi! Sigurður G. Guðjónsson birti myndirnar í gærkvöldi á Facebook-síðu sinni og með fylgdu orð þar sem hann gagnrýndi það hvernig mál hafa þróast varðandi KSÍ; hann telur framburð Þórhildar Gyðu ótrúverðugan. Færsla hans sem og myndbirting hefur vakið mikla athygli, á þriðja hundrað athugasemdir hafa verið settar fram þar sem ýmsir telja afstöðu lögmannsins ósmekklega og hann sakaður um drusluskömmun. Meðal þeirra sem leggja orð í belg er dóttir hans, Edda Sif, sem segir þessa færslu hvorki honum né málstað Kolbeins til framdráttar. Hún spyr hvað það komi málinu við hverja stúlkan hefur valið að kyssa, sofa hjá og segja frá ? „Og trúðu mér það er ekkert óvanalegt að hún leiti ekki til læknis strax - ég er ekki enn farin 15 árum eftir atvik í mínu lífi.“ Edda Sif segir færslu Sigurðar ekki í nokkrum takti við það hvern mann hann hafi að geyma og vont ef fólk fer að telja hann kvenhatara. Ég held þú ættir að endurskoða þessa færslu og setja fram á þann hátt sem sæmir þér,“ segir Edda Sif sem hefur fengið miklar undirtektir við sínum ákúrum. Segir þetta ekki eiga erindi á samfélagsmiðla Sigurður Örn, formaður félagsins, segir í samtali við Vísi vert að geta þess, í þessu sambandi, að lögmenn gegni margskonar skyldum, bæði gagnvart skjólstæðingi sínum, gagnaðilum og réttarkerfinu sjálfu þar sem þeir starfa. „Ég þekki annars ekki til þessa máls og réttlætingarástæður fyrir svona birtingu eru vandfundnar en sjálfum þykir mér þetta einstaklega ósmekklegt. Á vettvangi lögmannafélagsins starfar sjálfstæð úrskurðarnefnd sem hefur það hlutverk að leysa úr svona málum og þeir sem telja á sér brotið geta leitað þangað,“ segir Sigurður Örn. Sigurður Örn Hilmarsson furðar sig á Facebookfærslu Sigurðar G. svo mjög að honum krossbrá þegar hann las hana í morgun.aðsend Hann segir jafnframt það svo að lögmenn beri ríka trúnaðar- og þagnarskyldu sem gildir með hvaðeina sem þeir verða áskynja og þurfa að gæta að henni í allri sinni tjáningu. Hann segist ekki þekkja hver aðkoma Sigurðar G. Guðjónssonar er að þessu máli né heldur af hverju hann er með þessi gögn undir höndum. „Í öllu falli fæ ég ekki séð að svona lagað eigi erindi á samfélagsmiðla, hvað þá fyrir atbeina lögmanns,“ segir Sigurður Örn. Þekkir þessa ormagryfju Sigurður G. Guðjónsson segir þetta skoðun formannsins. Sjálfum finnst honum birting upp úr lögregluskýrslum ekki á gráu svæði, ekki í sjálfu sér. „Að sannleikurinn komi í ljós? Nei. Ég sé ekki nokkurn mun á því að lögmaður segi frá því eða blaðamaður. Auk þess er ég ekki lögmaður neins aðila í þessu máli. Og hlýt að hafa mínar heimildir til að tjá mig persónulega eins og allir aðrir í samfélaginu,“ segir Sigurður og vísar til stjórnarskrár hvar tjáningarfrelsi hans er varið. Sigurður G Guðjónsson, lögmaður. Hann segist ekki hafa farið yfir athugasemdir sem fallið hafa á Facebookvegg hans eftir að hann birti hina umdeildu færslu, hann hafi verið of upptekinn.vísir/friðrik Þór En er þetta ekkert vafasamt til dæmis að teknu tilliti til þess að þú gegnir trúnaðarstörfum fyrir KSÍ? „Ég hef enga stöðu þar nema ég er formaður áfrýjunarnefndar KSÍ sem kemur ekkert að daglegum málum heldur fjallar eingöngu um brot leikmanna og starfsmanna á reglum sambandsins. Menn geta velt fyrir sér, hvort ég sé á bandi stjórnarinnar en við höfum þurft að taka á málum sem tengjast stjórn KSÍ; oft sett ofan í við aganefndina og fleiri.“ Sigurður segist hafa starfað fyrir þessi samtök í þrjátíu ár, kosinn af knattspyrnuþingi og ef hann verður ekki kosinn næst þá trufli það sig ekki. Hann segist spurður ekki hafa haft svigrúm til að lesa þær athugasemdir sem fallið hafa á Facebook-vegg hans. En þær þurfi ekki að koma á óvart: „Ég þekki þessa ormagryfju.“
Landsliðsmenn sakaðir um kynferðisofbeldi Persónuvernd Lögreglumál KSÍ Samfélagsmiðlar Mest lesið Vaktin: Björgunarsveitir á fullu um land allt Innlent Kastaðist marga metra eftir að ekið var á hann Innlent Þakkar Google Translate fyrir að engin börn mættu í skólann Innlent Varð fyrir „áfalli“ að sjá uppsagnarbréf Innlent Sjónvarpsfréttir Sýnar vegna óveðursins Innlent Neita að afhenda dóma lögreglumanna Innlent Stúlkan er fundin Innlent Fækka stöðugildum hjá ríkinu um eitt prósent Innlent Framíköll Jóns féllu í grýttan jarðveg: „Flissandi og dónalegur“ Innlent Leyniklefi áhafna uppi í rjáfri Atlanta-flugvéla Innlent Fleiri fréttir Árnesingur og Rangæingur grafa fyrir Hvammsvirkjun „Sem betur fer er okkar maður ekki illa meiddur“ Kastaðist marga metra eftir að ekið var á hann Snör handtök skiptu sköpum á Höfðatorgi Sjö vilja stýra Sjúkrahúsinu á Akureyri Árekstur í Borgarfirði 2025: Hálka ein meginorsaka banaslyss Fækka stöðugildum hjá ríkinu um eitt prósent Bein útsending: Daði Már kynnir fjármálaáætlunina Forseti Slóveníu mætir á afmælisdegi Vigdísar Líf leiðir Sjálfstæðisflokk áfram á Akranesi Stúlkan er fundin Opna nýja möguleika í að binda kolefni með aðferð Carbfix Neita að afhenda dóma lögreglumanna Varð fyrir „áfalli“ að sjá uppsagnarbréf Málþing um konur sem lifa við langvinn veikindi Telja að bílastæðum fækki eftir að þau voru færð úr uppdráttum Þakklátur að flestir fylgdu tilmælunum Geta ekki siglt Herjólfi að höfninni vegna óveðursins Barnlaus leikskóli Menningarhúsið fer ekki í íbúakosningu Þakkar Google Translate fyrir að engin börn mættu í skólann Strætó hættir akstri í dag Ráðin framkvæmdastjóri Rauða krossins Sjónvarpsfréttir Sýnar vegna óveðursins Vetrarþjónusta í gangi og fer á fullt um hádegi Sorphirða fór fram þrátt fyrir vonskuveður Þetta voru vinsælustu nöfnin á síðasta ári Innan við fimmtán prósent telja loftslagsbreytingar ekki staðreynd Leyniklefi áhafna uppi í rjáfri Atlanta-flugvéla Þau skipa lista Samfylkingarinnar á Akranesi Sjá meira