Var mættur heim til fyrrverandi og réðst þar á nágrannakonu Kristín Ólafsdóttir skrifar 4. september 2021 11:00 Óvenjumörg líkamsárásarmál gegn konum komu á borð lögreglu í nótt, að sögn aðstoðaryfirlögregluþjóns. Vísir/vilhelm Karlmaður sem réðst á konu í fjölbýlishúsi í Laugardal skömmu eftir miðnætti í nótt er einnig grunaður um heimilisofbeldi. Hann var mættur á staðinn til að vitja fyrrverandi unnustu sinnar og lét ófriðlega, að sögn lögreglu.
Tilkynnt var um fjórar líkamsárásir á höfuðborgarsvæðinu í nótt, þar af þrjár gegn konum, að því er segir í dagbók lögreglu. Jóhann Karl Þórisson aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglu á höfuðborgarsvæðinu segir í samtali við Vísi að þetta séu við fyrstu sýn óvenjumörg líkamsárásarmál gegn konum. Fram kemur í dagbók lögreglu að í einu málanna hafi karlmaður ráðist á konu á stigagangi við heimili hennar í Laugardalnum. Hann hafi hrint henni og skallað hana í andlitið svo gleraugu hennar brotnuðu og hún hlaut áverka. Maðurinn hafi svo farið inn í aðra íbúð á stigaganginum. Jóhann Karl segir að maðurinn hafi þarna verið mættur til að „angra“ fyrrverandi unnustu sína, sem búi í stigaganginum. Hann hafi barið þar allt að utan og konan sem hann svo réðst á hefði farið fram til að athuga af hverju lætin stöfuðu. „Hann hjólar í hana, fer svo inn til fyrrverandi og er farinn þegar lögregla kemur,“ segir Jóhann Karl. Þá segir hann lögreglu vita hver maðurinn sé. Auk líkamsárásarinnar gegn nágrannakonunni sé hann einnig grunaður um heimilisofbeldi.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira