Bjarga verðmætum áður en hraunið tekur bæinn Kristján Már Unnarsson skrifar 23. júní 2021 22:26 Stefanía Haraldsdóttir ber út spegil úr bústað á jörðinni Ísólfsskála í dag. Arnar Halldórsson Landeigendur Ísólfsskála keppast nú við að bjarga lausamunum og öðrum verðmætum áður en hraun flæðir yfir jörðina. Á sama tíma er verið að stika nýja gönguleið á stað þaðan sem sést yfir eldgíginn og áformað að opna nýtt bílastæði.
Dalverpið Nátthagi er fjölsóttasti staðurinn við gosstöðvarnar þessa dagana en þar komast ferðamenn í návígi við nýrunnið hraunið. Í dag virtist okkur sem útlendingar væru þar í talsverðum meirihluta en í fréttum Stöðvar 2 mátti sjá að sumir hikuðu ekkert við að ganga út á hraunið. Á jörðinni Ísólfsskála voru þau Halldór Ármannsson og Stefanía Haraldsdóttir á sama tíma að bera lausamuni úr bústaðnum sínum út í sendiferðabíl. Þau voru að pakka saman. Stefanía Haraldsdóttir og Halldór Ármannsson við bústað sinn, Bjallabæ, í dag.Arnar Halldórsson „Já, það virðist allt stefna í að þetta komi hérna niður, bara á næstu einni eða tveimur vikum, segja þeir,“ segir Halldór, sem er í eigendahópi Ísólfsskála. -Þannig að þið eruð bara í verðmætabjörgun? „Já, við erum bara að reyna að bjarga öllu, - það sem maður getur farið með.“ Þau fóru einnig inn í Nátthaga í dag til að kanna aðstæður. Þar skreið hrauntungan hratt fram um síðustu helgi en hefur síðan lítið hreyfst. Nýtt hraunflæðilíkan Veðurstofunnar gerir þó ráð fyrir að hraunið muni ná Suðurstrandarvegi og Ísólfsskála um síðir, haldi gosið áfram. „Þetta er bara grátlegt, bara í einu orði sagt,“ svarar Stefanía, spurð um tilfinningarnar sem bærast með þeim, núna þegar þessi ógn og örlög vofa yfir jörðinni. „Ég er búinn að vera hérna frá því ég var fimm ára. En maður spyr ekkert almættið. Maður ræður ekkert við það,“ segir Halldór. Niðurstaða yfirvalda var að ekki væri raunhæft að verja Ísólfsskála með varnargörðum. „Í fyrsta lagi er þetta mjög dýrt, hleypur á mörghundruð milljónum. Í öðru lagi þá er ekki víst að þetta myndi duga, allavega ekki til langframa. Þannig að það var ekki talið verjandi að reyna þetta vegna þess að árangurinn gæti verið lítill sem enginn,“ segir Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkur. Séð yfir Suðurstrandarveg og Ísólfsskála.Arnar Halldórsson Í dag var hins vegar unnið að því að verja ljósleiðara við Suðurstrandarveg með því að leggja þykkari jarðveg ofan á hann. „Í þeirri von að hann verði ekki fyrir neinum skemmdum þegar og ef hraun fer að renna þarna yfir,“ segir Fannar. Um leið er þess freistað að greiða leið ferðamanna að sjónarspilinu. Eftir að hraunrennsli lokaði gömlu aðalleiðinni, gönguleið A, virðast ferðamenn núna hafa fundið nýja aðalgönguleið til að geta séð eldgíginn; upp á Langahrygg austan Nátthaga. Þar er núna verið að stika leiðir en einnig áformað að opna nýtt bílastæði á túni í svokölluðum Stóra-Leirdal, en þaðan er styttra upp á Langahrygg. „Þaðan er mjög víðsýnt og sést til gígsins. Og það sést yfir hraunið í Nátthaganum. Þannig að það er eiginlega sá staður sem er langákjósanlegastur núna,“ segir bæjarstjóri Grindavíkur. Hér má sjá frétt Stöðvar 2:
Eldgos í Fagradalsfjalli Eldgos og jarðhræringar Grindavík Náttúruhamfarir Tengdar fréttir Myndi vilja leggja sig hjá kúnum í Nátthaga og láta hrauna yfir sig Guðbergur Bergsson rithöfundur heimsótti æskuslóðir sínar á Ísólfsskála í dag þar sem fornleifafræðingar frá Minjastofnun vinna í kappi við hraunrennslið að kanna fornminjar. Sjálfur skoðaði Guðbergur nýja hraunið í Nátthaga þar sem hann var kúasmali á yngri árum. 27. maí 2021 23:13 Segir alveg skelfilegt að sjá hraunið stefna á Ísólfsskála Talsmaður landeigenda Ísólfsskála segir alveg skelfilegt að hraun stefni núna á bæjarstæðið og hvetur til þess að reynt verði bægja því frá með rásum. 25. maí 2021 22:44 Kannski ætti fólkið líka að hafa tilverurétt, ekki bara náttúran Formaður Landeigendafélags Ísólfsskála óttast að umræða um náttúrurask verði til þess að yfirvöld heykist á því að verja jörðina með varnargörðum og segir mannfólkið einnig hafa tilverurétt. 26. maí 2021 20:10 Svona gæti hraunið litið út í lok sumars Veðurstofan og Háskóli Íslands hafa gefið út nýtt hraunflæðilíkan, sem sýnir tvær mögulegar sviðsmyndir fyrir hraunflæði úr Nátthaga. Óvissa er uppi um hvenær hraun byrjar að flæða suður úr Nátthaga eftir að svæðið fyllist af hrauni. 22. júní 2021 17:23 Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira
Myndi vilja leggja sig hjá kúnum í Nátthaga og láta hrauna yfir sig Guðbergur Bergsson rithöfundur heimsótti æskuslóðir sínar á Ísólfsskála í dag þar sem fornleifafræðingar frá Minjastofnun vinna í kappi við hraunrennslið að kanna fornminjar. Sjálfur skoðaði Guðbergur nýja hraunið í Nátthaga þar sem hann var kúasmali á yngri árum. 27. maí 2021 23:13
Segir alveg skelfilegt að sjá hraunið stefna á Ísólfsskála Talsmaður landeigenda Ísólfsskála segir alveg skelfilegt að hraun stefni núna á bæjarstæðið og hvetur til þess að reynt verði bægja því frá með rásum. 25. maí 2021 22:44
Kannski ætti fólkið líka að hafa tilverurétt, ekki bara náttúran Formaður Landeigendafélags Ísólfsskála óttast að umræða um náttúrurask verði til þess að yfirvöld heykist á því að verja jörðina með varnargörðum og segir mannfólkið einnig hafa tilverurétt. 26. maí 2021 20:10
Svona gæti hraunið litið út í lok sumars Veðurstofan og Háskóli Íslands hafa gefið út nýtt hraunflæðilíkan, sem sýnir tvær mögulegar sviðsmyndir fyrir hraunflæði úr Nátthaga. Óvissa er uppi um hvenær hraun byrjar að flæða suður úr Nátthaga eftir að svæðið fyllist af hrauni. 22. júní 2021 17:23