Logi hættur sem þjálfari FH Sindri Sverrisson skrifar 21. júní 2021 11:26 Logi Ólafsson er hættur sem þjálfari FH. VÍSIR/VILHELM Logi Ólafsson er hættur sem þjálfari karlaliðs FH í fótbolta. Samkvæmt tilkynningu frá knattspyrnudeild FH var það sameiginleg niðurstaða beggja aðila að Logi myndi stíga til hliðar. Logi og Davíð Þór Viðarsson hafa stýrt FH saman frá því í desember, eftir að Eiður Smári Guðjohnsen hætti til að taka við sem aðstoðarlandsliðsþjálfari. Davíð átti upphaflega að vera aðstoðarmaður Eiðs hjá FH. Logi og Eiður tóku við FH af Ólafi Kristjánsysni í júlí í fyrra og undir þeirra stjórn vann FH tíu af fjórtán leikjum í Pepsi Max-deildinni. Eftir tímabilið var Logi ráðinn sem tæknilegur ráðgjafi hjá FH en var mjög skammt í því hlutverki eftir að Eiður hvarf á braut. Í yfirlýsingu FH-inga er ekkert sagt um framtíð Davíðs svo ætla má að hann stýri liðinu áfram. Samkvæmt heimildum íþróttadeildar gæti Ólafur Jóhannesson komið inn í þjálfarateymið og þar með snúið aftur í Kaplakrikann þar sem hann var svo sigursæll sem þjálfari. Eftir fína byrjun á Íslandsmótinu í ár hefur FH gengið afar illa undanfarið og aðeins fengið eitt stig úr síðustu fimm leikjum sínum. Lokaleikur Loga var 4-0 tapið gegn Breiðabliki á Kópavogsvelli í gærkvöld.
Logi og Davíð Þór Viðarsson hafa stýrt FH saman frá því í desember, eftir að Eiður Smári Guðjohnsen hætti til að taka við sem aðstoðarlandsliðsþjálfari. Davíð átti upphaflega að vera aðstoðarmaður Eiðs hjá FH. Logi og Eiður tóku við FH af Ólafi Kristjánsysni í júlí í fyrra og undir þeirra stjórn vann FH tíu af fjórtán leikjum í Pepsi Max-deildinni. Eftir tímabilið var Logi ráðinn sem tæknilegur ráðgjafi hjá FH en var mjög skammt í því hlutverki eftir að Eiður hvarf á braut. Í yfirlýsingu FH-inga er ekkert sagt um framtíð Davíðs svo ætla má að hann stýri liðinu áfram. Samkvæmt heimildum íþróttadeildar gæti Ólafur Jóhannesson komið inn í þjálfarateymið og þar með snúið aftur í Kaplakrikann þar sem hann var svo sigursæll sem þjálfari. Eftir fína byrjun á Íslandsmótinu í ár hefur FH gengið afar illa undanfarið og aðeins fengið eitt stig úr síðustu fimm leikjum sínum. Lokaleikur Loga var 4-0 tapið gegn Breiðabliki á Kópavogsvelli í gærkvöld. Yfirlýsing FH: FH og Logi Ólafsson haf komist að sameiginlegri niðurstöðu um starfslok Loga hjá FH. Logi tók við FH liðinu um mitt síðasta tímabil og undir hans stjórn endaði liðið í 2. sæti deildarinnar ásamt því að komast í undanúrslit bikarkeppninnar. Stjórn knattspyrnudeildar þakkar honum vel unnin störf í gegnum tíðina og óskar honum velfarnaðar.
Yfirlýsing FH: FH og Logi Ólafsson haf komist að sameiginlegri niðurstöðu um starfslok Loga hjá FH. Logi tók við FH liðinu um mitt síðasta tímabil og undir hans stjórn endaði liðið í 2. sæti deildarinnar ásamt því að komast í undanúrslit bikarkeppninnar. Stjórn knattspyrnudeildar þakkar honum vel unnin störf í gegnum tíðina og óskar honum velfarnaðar.
FH Pepsi Max-deild karla Mest lesið John Cena hættur að glíma Sport Salah skráði sig á spjöld sögunnar í endurkomunni í dag Enski boltinn „Ég bið Lionel Messi innilega afsökunar“ Fótbolti Segir Norðmönnum að setja hana í karlalandsliðið sitt Handbolti Sjáðu sjálfsmörkin sem björguðu Arsenal og hetju Liverpool skora tvö Enski boltinn Danir og Svíar eiga í deilum um kornunga drengi Fótbolti Þjálfari Orra Steins látinn fara Fótbolti Haaland með tvennu í öruggum útisigri City Enski boltinn Lunga NFL-stjörnu féll saman eftir nálastungumeðferð Sport Valin kona ársins í akstursíþróttum á sautján ára afmælisdaginn Formúla 1 Fleiri fréttir Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Yngir upp í allt of gamalli deild Þróttur keypti Adam Árna frá Grindavík Ástæðan fyrir því að Þorlákur hætti: „Ég var ekki hrifinn af þessu“ Þorlákur sagði upp störfum hjá ÍBV Þrjár ungar KR-konur leggja skóna á hilluna Murielle elti Óskar í Garðabæinn Segir dökk ský yfir íslensku knattspyrnuhreyfingunni Rúnar sækir gamlan félaga sinn inn í þjálfarateymið Fór frá því að mæta á landsliðsæfingu í það að vera fárveikur í öndunarvél Jasmín kom til að vinna titla og er farin frá Val Framlengir við Breiðablik og nálgast fimm hundruð leikina Sjá meira