Virkni bóluefna Moderna og Pfizer sögð 90% Kjartan Kjartansson skrifar 29. mars 2021 15:54 Bóluefni bæði Modern og Pfizer er gefið í tveimur skömmtum. Eftir fyrsta skammt reyndist vernd þeirra fyrir smiti 80% í rannsókn CDC. Vísir/EPA Rannsókn á framlínustarfsfólki í Bandaríkjunum bendir til þess að bóluefni Moderna og Pfizer hafi 90% virkni í að koma í veg fyrir kórónuveirusmit. Niðurstöður Sóttvarnastofnunar Bandaríkjanna (CDC) eru sagðar í samræmi við þær rannsóknir sem lyfjafyrirtækin gerðu með bóluefnin.
Um 4.000 heilbrigðisstarfsmenn, lögreglumenn, slökkviliðsmenn og aðrir framlínustarfsmenn tóku þátt í rannsókninni, að sögn Washington Post. Eftir fyrsta skammt bóluefnanna drógu þau úr líkum á smiti um 80%. Eftir seinni skammt drógust líkurnar á smiti saman um 90%. CDC segir að rannsókn hennar sé ein sú fyrsta sem kannar hversu vel bóluefnin verja fólk fyrir smiti, ekki aðeins hvort að þau komi í veg fyrir einkenni Covid-19. Þá veiti hún innsýn í hversu vel bóluefnin virki fyrir fólk í störfum sem gerir það sérstaklega útsett fyrir smiti. Af hátt í 2.500 manns sem voru fullbólusettir greindust aðeins þrír smitaðir. Af þeim 477 sem fengu aðeins einn skammt greindust átta smitaðir. Í hópnum sem fékk ekki bóluefni, 994 manns, greindist 161 með kórónuveirusmit. Enginn þátttakandi í rannsókninni lést. Í rannsókn lyfjafyrirtækjanna sjálfra reyndust bóluefnin veita 90% vernd fyrir einkennum Covid-19.
Bólusetningar Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bandaríkin Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Fleiri fréttir Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Sjá meira