Sævaldur tekur við Haukaliðinu af Israel Martín Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. mars 2021 11:01 Sævaldur Bjarnason var aðstoðarþjálfari Haukaliðsins en mun nú taka við liðinu. S2 Sport Sævaldur Bjarnason verður nýr þjálfari Hauka í Domino´s deild karla í körfubolta og mun taka við liðinu af Spánverjanum Israel Martín.
Samkvæmt heimildum Vísis þá verður Sævaldur aðalþjálfari liðsins en hann fær síðan tvo Haukamenn með sér til aðstoðar. Þar hafa verið nefndir þeir Steinar Aronsson og Kristinn Jónasson sem báðir spiluðu með Haukum á sínum tíma. Haukar létu Israel Martín fara eftir tapleikinn á móti Þór á sunnudagskvöldið en eftir þann leik eru Haukarnir komnir í slæm mál á botni deildarinnar. Það þarf því hálfgert kraftaverk til að bjarga liðinu frá falli úr þessu. Sævaldur var aðstoðarmaður Israel Martín og þekkir því vel til leikmannahópsins. Hann fær hins vegar ekki langan tíma til að undirbúa liðið fyrir næsta leik en Haukarnir taka á móti Grindavík á Ásvöllum annað kvöld. Sævaldur hefur áður tekið við Domino´s deildarliði á miðri leiktíð en hann tók við Blikaliðinu af Hrafni Kristjánssyni í lok 2009-10 tímabilsins. Blikar unnu bara 2 af 14 leikjum undir stjórn Hrafns það tímabil en unnu 3 af 8 síðustu leikjum sínum undir stjórn Sævaldar og Guðna Hafsteinssonar sem var með honum. Sævaldur hefur þjálfað kvennalið Fjölnis og hann kom kom kvennaliði Stjörnunnar upp í efstu deild í fyrsta sinn vorið 2015. Hann er nú aðalþjálfari átján ára landsliðs kvenna. Árið 2019 kláraði Sævaldur FECC FIBA prófið sem er hæsta gráða FIBA í þjálfun en þar fyrir utan er Sævaldur búinn að sitja fjölmörg námskeið sem tengjast körfubolta- eða hugarþjálfun.
Dominos-deild karla Haukar Mest lesið Þjóðverjar busuðu fámennustu þjóð í sögu HM með rassskelli Fótbolti Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Keflavík-FH 1-2 | Fyrsti sigur FH-inga í sumar Fótbolti Uppgjör: Þór-ÍBV 1-4 | Eyjamenn með annan stórsigurinn í röð Fótbolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Körfubolti Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Handbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Klopp segir þá halda fótboltanum í gíslingu Fótbolti Fleiri fréttir Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Sjá meira