Adomas Drungilas missir bara af leik kvöldsins: Hér má sjá atvikið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. mars 2021 13:31 Adomas Drungilas í leiknum umrædda á móti Haukum þar sem hann var rekinn út úr húsi. Vísir/Hulda Margrét Þórsarinn Adomas Drungilas hefur verið dæmdur í eins leiks bann eftir að hafa verið rekinn út úr húsi á dögunum.
Þórsarar verða því án hans í kvöld þegar þeir koma í heimsókn til Grindavíkur í fjórtándu umferð Domino´s deildar karla. Drungilas var rekinn út úr húsi fyrir að slá til Haukamannsins Breka Gylfasonar í leik Hauka og Þórs í Ólafssal á Ásvöllum en atvikið gerðist beint fyrir framan Davíð Tómas Tómasson dómara. Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í máli Drungilas og lætur sér nægja að dæma hann bara í eins leiks bann. Hér fyrir neðan má sjá atvikið þegar Drungilas slær til Breka en atvikið gerðist langt út á velli. Klippa: Drungilas rekinn út úr húsi Drungilas nær því stórleiknum á móti Stjörnunni í næstu viku en þar mætast tvö af þremur efstu liðum deildarinnar. Adomas Drungilas hefur verið mjög öflugur með Þórsliðinu á leiktíðinni en hann er með 16,0 stig, 10,4 fráköst og 4,4 stoðsendingar að meðaltali í leik. Það verður fróðlegt að sjá hversu mikið Þórsarar sakna hans í kvöld. Í leiknum á móti Haukum þá var hann rekinn út í stöðunni 74-69 fyrir Þór en Þórsarar unnu síðustu rúmu fimmtán mínúturnar án hans með ellefu stigum, 42-31. Bein útsending frá leik Grindavíkur og Þórs Þorl. hefst klukkan 18.05 á Stöð 2 Sport en í kvöld verður einnig sýndur leikur KR og Vals í beinni útsendingu á sömu stöð.
Dominos-deild karla Þór Þorlákshöfn Mest lesið Hnakkrifust en bjuggu svo til jöfnunarmarkið saman Fótbolti Ótrúleg endurkoma hjá Belgum og Tielemans sýndi stáltaugar Fótbolti Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Körfubolti Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Enski boltinn Tuchel um hetjuna Kane: „Það sem hann býst við af sjálfum sér“ Fótbolti Þórsarar taka á móti KR-ingum í Gedda-treyjunni Íslenski boltinn „Þú verður að spyrja hann að því“ Íslenski boltinn „Frábært að fá Martin aftur“ Körfubolti „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Körfubolti Sjokkið breyttist í ævintýri Handbolti Fleiri fréttir „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Keflavík sækir liðsstyrk „Alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar“ Ný lið bætast við Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Sjá meira